Vikan - 07.11.1985, Side 37
E
■Ingum blöðum er um
það að fletta að Madonna er sá
listamaður í poppinu sem hefur
átt hvað mestan og bestan frama
á þessu ári og sýnist nú sitt
hverjum í því máli. Kvenréttinda-
konur segja að hún hafi fært bar-
áttu þeirra tíu ár aftur í tímann en
þrátt fyrir að mikið sé rætt um
hana og ritað, bæði gott og slæmt,
er ekki annað hægt en hrífast af
þessari stúlku sem nú á hug og
hjörtu milljóna um víða veröld.
Platan hennar, Like a Virgin,
hefur selst í yfir sjö milljónum ein-
taka í Bandaríkjunum og nánast
verið stanslaust inni á vinsælda-
listum. Svipaða sögu er að segja
af vinsældum hennar í öðrum
löndum. Madonna lék í bíómynd
áður en hún sló svona rækilega í
gegn, það er myndin Desperately
Seeking Susan sem sýnd var í
Regnboganum nú í haust. Vegna
vinsælda Madonnu hefur myndin
orðið óhemju vinsæl og malað gull
fyrir aðstandendur sína. I mynd-
inni þykir Madonna sýna góð til-
þrif en hún mun bara hafa verið að
leika sjálfa sig, að mati þeirra
semtilþekkja.
I sumar tók Madonna sig til og
giftist bandaríska leikaranum
Sean Penn og mun það vera eitt-
hvert umtalaðasta brúðkaup síðan
Kalli og Díana létu pússa sig sam-
an hér um árið. Stúlkan þykir
metnaðargjörn í meira lagi og
mun hún hafa hug á að verða eins
og aðalhetja hennar, Marilyn
Monroe, þ.e. goðsögn í lifanda lifi.
Madonna Louise Ciccione fædd-
ist einhvern tíma á árunum 1957—
60 í bænum Pontiac nærri stór-
borginni Detroit, ein af átta systk-
inum. Móður sína missti hún
þegar hún var aðeins sjö ára, faðir
hennar giftist aftur og var Ma-
donna lítið hrifin af stjúpu sinni og
ber henni illa söguna.
Madonna flutti til New York ár-
ið 1978 með 35 dollara í vasanum.
Hún fór þegar að reyna að vinna
fyrir sér sem dansari en varð lítið
ágengt, þetta voru aðallega til-
raunadansflokkar sem hún vann
með. Þetta ástand varð til þess að
Madonna lék í kvikmynd sem á
vondu máli mætti kalla „mjúka”
klámmynd og þykir með af-
brigðum illa gerð í alla staði. Leik-
stjóri myndarinnar, sem var kær-
asti Madonnu um þetta leyti, segir
að henni hafi á þessum tíma orðið
tíðrætt um þá þörf sína að vera
virt og elskuð af fólki og að hún
ætlaði á toppinn. Hún fékk loksins
vinnu sem söngvari/dansari með
hljómsveit manns að nafni
Patrick Hernandes og varð þessi
vinna til þess að hún dvaldi í París
í sex mánuði en lungnabólga varð
til þess aö hún varð að snúa aftur
til New York, alveg skítblönk.
Skipti um kærasta eins og
sokka
Þegar veikindin voru að baki
sneri Madonna sér að poppinu og
stofnaði hverja hljómsveitina á
fætur annarri. Flestar urðu aðeins
nokkurra daga gamlar og hún
skipti um kærasta eins og sokka.
Segja má að hún hafi verið með
mönnum eins lengi og þeir gátu
orðið henni til framdráttar.
Fyrstu lögin hljóðritaði Ma-
donna í apríl 1982, það voru lögin
Everybody og Burning up og varð
hið fyrmefnda þónokkuð vinsælt á
diskótekum víða um heim. í kjöl-
farið fylgdi að sjálfsögðu stór
plata, bar hún nafn Madonnu og
fór lítið fyrir henni á vinsældalist-
um heimsins. Þó mun lagið Holi-
day af plötunni hafa notið nokk-
urra vinsælda. Fleiri lög fylgdu í
kjölfarið, eins og Lucky Star og
Borderline, en þau nutu lítið meiri
hylli en þau fyrri. Þá ákvað Ma-
donna að fá til Uðs við sig þann
upptökustjóra sem er í hvað
mestum metum meðal poppara í
Sean Penn Don Johnson John F. Kennedy Jnr,
Madonna og nokkrir af þeim gaurum sem hún hefur verið orflufl vifl.
dag, nefnilega Nile Rogers sem
hefur unnið með fólki eins og
Bowie, Duran, Jagger, Sister
Sledge, Debbie Harry úr Blondie
og fleiri og fleiri. Og vinsældirnar
létu ekki á sér standa, eins og áður
var getið, algjört Madonnuæði fór
í hönd og sér ekki fyrir endann á
því. Stelpan uppgötvaði til að
mynda naflann á sér og er þetta
líklega frægasti nafli heims, að
hinum gamla nafla alheimsins
undanskildum, hvar sem hann nú
annars er.
Nektarmyndir
Þegar stúlkan hafði slegið svona
hressilega í gegn dró ljósmyndari
nokkur fram fimm ára gamlar
myndir af Madonnu þar sem hún
sat fyrir nakin. Playboy og Pent-
house, tvö af þekktustu karla-
blöðum í heiminum, bitust um að
kaupa myndirnar en það fór svo
að lokum að bæði blöðin birtu
þessar myndir. Myndbirtingarnar
urðu til þess að hætt var við að
gera Madonnu að heiðursborgara
í heimaborginni, Pontiac.
Madonna er rétt að byr ja og of
fljótt um það að segja hvort hún
getur fylgt þessum miklu vinsæld-
um eftir. Ekki skortir hana metn-
aðinn, einhver af hinum f jölmörgu
samstarfsmönnum hennar í gegn-
um tíðina hefur sagt að hún sé
mannætuhákarl í gullfiskabún-
ingi.
45. tbl. Vikan 37