Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 42
L3I
Vídeó-Vikan
VINSÆLIR LEIKARAR:
SISSY SPACEK
Rauðhærö, lítil og freknótt. Þannig hljóðar
lýsing á einni frægustu kvikmyndaleikkonu
sem nú er uppi, Sissy Spacek, ekki beint lýs-
ing á Hollywoodstjörnu. Þó er hún talin meðal
allra eftirsóttustu leikkvenna. Þrátt fyrir að
Sissy Spacek sé komin vel yfir þrítugt á hún
einkar auðvelt með að leika ungar stúlkur og
hefur það hjálpað henni á framabrautinni. Má
nefna að í fyrstu myndinni, sem hún vakti
verulega athygli í, Carrie, lék hún táning þótt
hún væri komin vel á þrítugsaldurinn.
Sissy Spacek fæddist á jóladag árið 1949,
dóttir landbúnaðarráðunautar. Hún var skírð
Mary Elizabeth. Fljótt festist nafnið Sissy við
hana og kom það til vegna þess aö hún átti
eldri bróður. Hann lést úr hvítblæði aðeins
nítján ára gamall. Þegar Spacek var orðin
sautján ára hélt hún að heiman með gítarinn
um öxl, staðráðin í að gerast sveitarokksöng-
kona. Þegar sú fyrirætlun mistókst hélt hún
til New York. Þar fékk hún inni hjá frænda
sínum, Rip Torn, og eiginkonu hans, Gerald-
ine Page. Þau eru bæði þekktir leikarar á
sviði og í kvikmyndum. Hún reyndi fyrst fyrir
sér sem fyrirsæta en gafst fljótt upp á því,
fékk enga vinnu vegna þess hversu lítil hún
þótti.
Þá lá leið hennar eins og margra annarra í
hinn þekkta leikskóla Actors Studio. Eftir
veru sína þar fékk hún smáhlutverk í sjón-
varpsþáttum. Hennar fyrsta kvikmyndahlut-
verk var í Prime Cut þar sem hún lék á móti
Lee Marvin. Fyrsta stóra hlutverkið var í
hinni frábæru kvikmynd Terence Malick,
Badiands. Þar lék hún á móti Martin Sheen.
Þau léku tvö ungmenni á flótta undan réttvís-
inni. Badlands fékk frábæra dóma þegar hún
kom á markaðinn og var þeim Spacek og
Sheen hælt á hvert reipi. Meðan á kvikmynda-
töku stóð hitti Sissy Spacek Jack Fisk sem
starfaði sem listrænn leikstjóri við myndina.
Þau giftust og hafa síðan búið á bóndabæ í
Virginiu.
Sissy Spacek hitti Brian De Palma meðan á
tökum á Phantom in Paradise stóð yfir, en
eiginmaður hennar starfaði við þá mynd. De
Palma hreifst af þessari litlu leikkonu og
bauð henni aðalhlutverkið í næstu kvikmynd
sinni. Það var Carrie, gerð eftir sögu Stephen
King. í Carrie leikur hún saklausa skóla-
stúlku sem breytist í hefndarengil með ægi-
legum afleiðingum fyrir bekkjarfélaga henn-
ar. Fyrir þetta hlutverk hlaut hún sína fyrstu
tilnefningu til óskarsverðlauna. Eftir Carrie
hefur Sissy Spacek ekki þurft að hafa áhyggj-
|| / '
ijiglll!
HIÍIIÍ!
Freistandi
demantar
★ ★
LIVE A LITTLE STEAL A LOT
Leikstjóri: Marvin Chomsky.
Aðalleikarar. Robert Conrad, Don
Strout og Donna Mills.
Sýningartími: 102minútur.
Live a Little Steal a Lot fjallar um
innbrotsþjófa sem hafa þaö aö sér-
sviöi aö stela demöntum. Myndin er
sögö byggð á sannsögulegum atburö-
um þótt mig gruni aö nokkuö sé ýkt
til aö gera frásögnina meira spenn-
andi.
Alan (Robert Conrad) er mjög
slyngur innbrotsþjófur. Hann tekur
Jack (Don Strout) í félag viö sig.
Hann er mikið hörkutól en ekki eins
varfærinn og Alan. Þeir vinna fyrir
sér meö að stela demöntum frá ríku
fólki. Dag einn er þeim gert tilboö um
aö ræna stjörnu Indlands sem er
verðmætasti demantur í heimi. Fyrir
vikiö eiga þeir að fá fimm hundruð
þúsund dollara. Þeir undirbúa rániö
vel og þótt þeim mistakist í fyrstu til-
raun gefast þeir ekki upp og næst
tekst þeim auðveldlega aö ræna
stjörnu Indlands úr safni í New York.
I leiöinni taka þeir meö sér aðra
þekkta gimsteina.
Vandræði þeirra byrja fyrir
alvöru þegar þeir eru komnir meö
þessa dýrmætu vöru heim til sín.
Fylgst hefur veriö meö þeim um
nokkurt skeiö og eru þeir handteknir
strax morguninn eftir. En lögfræö-
ingi þeirra tekst aö fá þá lausa. En
þá kemur New York-lögreglan og
tekur þá meö sér til New York. Enn
tekst lögfræðingi þeirra að fá þá
lausa vegna skorts á sönnunargögn-
um en lögreglan er handviss um aö
þeir félagar hafi stolið gimsteinun-
um og gerir þeim tilboö um eins árs
fangelsi og að skila steinunum eöa
þrjátíu ára fangelsi. . .
Live a Little Steal a Lot er spenn-
andi afþreying. Myndin byrjar á
stóra ráninu. Meöan á ráninu
stendur er horfiö aftur í tímann og
fylgst meö ferli þeirra félaga og
skemmtunum. Eins og oft vill verða,
þegar í hlut eiga stórþjófar, er frekar
lítiö gert úr lögreglunni. En í heild má
hafa gaman af þessari sakamála-
mynd.
islenskur textl
Sannsöguleg
morðsaga
★ ★
MORÐiÓBYGGÐUM
(THE AWAKING OF CANDRA)
Leikstjóri: Paul Wendkos.
Aðalleikarar. Blanche Baker, Cliff
De Young og Richard Jaeckel.
Ung og nýgift hjón ætla aö eyða
nokkrum dögum í óbyggðum Oregon
við veiði og útilegu. Allt gengur sam-
kvæmt óskum. Candra og Julio eru
mjög hamingjusöm þótt lítið veiðist.
Sú hamingja breytist í martröð
þegar þau hitta ungan mann, Tom,
sem segist vita hvar mikinn fisk sé
aöfá.
Hann fer meö þau enn lengra inn í
óbyggðimar. Brátt kemur í ljós aö
hann er ekki allur þar sem hann er
séöur og fara nýgiftu hjónin aö óttast
um líf sitt og ekki aö ástæðulausu
eins og á daginn kemur. Tom er
geöveikisjúklingur sem áöur hefur
komist í kast viö lögin. Þaö kemur
berlega fram aö hann girnist Cöndru
og gerir hann sér lítiþ fyrir og drepur
Julio.
Þrem dögum seinna kemur Tom
til byggöa meö Cöndru sér viö hlið og
segir aö þaö hafi orðið slys, Julio hafi
látist af slysaskoti. Candra segir
sömu sögu í byrjun, en þegar frá
líður fer hana að dreyma óhugnan-
lega atburði sem hún man ekki og
lögregluna grunar aö ekki sé allt meö
fellduvaröandifrásögnToms...
Morö í óbyggöum er byggt á moröi
sem framið var 1976. Ekki veit ég
hversu sannleikanum er hagrætt til
að fá meiri spennu en í heild er
myndin trúveröug og raunsæ, þótt
ekki sé hún nógu vel gerð til að geta
kallast úrvalsmynd. Það er helst
starfsemi lögreglunnar sem er ekki
trúverðug. Lögreglan í Oregon virö-
ist treysta á lygamæli þegar á aö
taka orö sakbominga trúanleg. Ekki
er það traust aðferö eins og berlega
kemur í ljós. Leikarar eru frekar
yfirboröskenndir í leik sínum.
Gamla kempan Richard Jaeckel
leikur lögregluforingjann og hef ég
oft séð þann ágæta karakterleikara
betri. Morö í óbyggöum er sæmileg
afþreying, lítiö meira.
42 Vikan 4S.tbl.