Vikan - 07.11.1985, Blaðsíða 49
Kata með sér, en ekki eins og
lesendurnir héldu. Þetta var eng-
inn léttúðarlifnaður í stöðugum
kampavínsboðum og á tísku-
sýningum. FJÖR! krafðist
mikillar vinnu. Það var mesta
skemmtunin sem hægt var að
hugsa sér. Hún sat með sex urr-
andi síma fyrir framan sig og
tvær manneskjur biðu eftir
henni. Kata hugsaði með sér að
sennilega myndi flestum
lesendum hennar leiðast starfið
hennar óstjórnlega, hún hefði
sjálf fegin viljað borga fyrir að fá
að vinna við þetta. Að koma
FJÖRI! af stað var það mest
spennandi starf sem hún hafði
nokkru sinni unnið. Það var
sama hvað hún var kúguppgefín
á kvöldin, henni leiddist alltaf að
faraheim.
Það var bara eitt sem var að.
Henni fannst ekki létt að vinna
með Tom. Hann var alinn upp á
vesturströndinni og áður en
hann gekk til liðs við Júdý hafði
hann unnið í kvikmyndaiðnaðin-
um og hafði það óneitanlega
áhrif á skoðanir hans á kvenfólki.
Hann gat ekki að sér gert að
flokka konur stöðugt annað-
hvort sem mæður eða mellur af
einhverri gerð. Sumar voru líka
eign og þær gátu orðið til vand-
ræða. Maður varð að koma fram
við eignirnar af varfærni eins og
tígrisunga. Tom leit ájúdý sem
mjög dýrmæta eign. En Kata —
ja, hún hafði ekki enn sannað
gildi sitt. Tom áttaði sig ekki á
henni. Jú, hún hafði skrifað bók,
hún var svolítið fræg, en það
þýddi ekki endilega það að hún
myndi græða peninga fyrir hann.
Það var sífellt að skerast í odda
með þeim Tom og Kötu þar til
Júdý varð að róa Kötu. ,,Heyrðu
mig, Kata, allir þeir sem leggja
fram mikið fjármagn í fyrirtæki
eru erfiðir viðfangs. Ein af
ástæðunum fyrir því að Tom
gengur svo vel að hafa þá góða er
sú að hann hugsar eins og þeir.
Við tökum mikla áhættu og við
gætum ekki gert þetta án Toms.
Gallarnir á honum í persónuleg-
um samskiptum við hann eru
kostir í viðskiptum. Hann sér um
allt vesenið og lætur okkur um
vinnuna við blaðið.” Júdý tók
utan um axlirnar á Kötu.
,,Mundu að það er þitt verk að
koma blaðinu út á hans kostnað.
Það er hans að sjá um að fyrir-
tækið skili hagnaði og hann er
mjög snjall við það. En hann
væri það ef til ekki ef hann væri
svona jafnréttissinnaður maður
eins og þér fellur best við. ”
Þegar útgáfudagurinn nálgað-
ist heyrðist urrið í Tom um alla
skrifstofuna. „Vitið þið hvað
það kostar að láta gera þetta?...
Það virðist öllum vera alveg sama
um það...”
Kata hafði alltaf óttast ofbeldi
— bæði líkamlegt og andlegt.
Þegar hún var barn þorði hún
aldrei að láta reiði sína í ljós og
bliknaði alltaf fyrir framan föður
sinn. Nú þegar hún var orðin
fullorðin dró hún sig alltaf í hlé
þegar menn tóku að brýna raust-
ina. En hún gleymdi hvorki né
fyrirgaf. í stað þess að fá útrás
fyrir reiði sína byrgði hún hana
inni. Hún safnaðist fyrir og varð
sífellt magnaðri þar til kom að
því að hún blossaði upp.
— 51 —
Allt rétta fólkið lét sjá sig í
samkvæminu sem haldið var
þegar fyrsta tölublaðið af FJÖRI!
kom út.
Það var kliður í salnum, það
klingdi í glösum, vindlareykur-
inn blandaðist dýrum ilmvötn-
um og kampavínið flóði. En
samkvæmið, sem Kata hafði
hlakkað til mánuðum saman,
virtist svo ótrúlega lítilfíörlegt
miðað við það sem hún var búin
að ganga í gegnum. Hún hefði
heldur viljað að þessum pening-
um hefði verið eytt í blaðið
sjálft. Henni leið svo illa og leit
svo vesældarlega og raunalega út
að Tom gekk til hennar.
„Svona, svona,” sagði hann,
„við erum rétt búin að koma út
fyrsta tölublaðinu með glæsibrag
og þessi viðbrögð þín eru eðlileg
og skiljanleg. Það sækir að þér
þunglyndi vegna ofþreytu eftir
að hafa lokið erfíðu verki sem
tekist hefur vel. Þannig hefur
Shakespeare ömgglega liðið
þegar hann var búinn með
Hamlet.”
Kata fór ekki að hlæja. „Ég
veit að þér fínnst þetta allt ömur-
legt,” bætti Tom við. „Þúhefur
ekki hugsað um neitt annað síð-
ustu þrjá mánuðina. Ég veit að
sumir gestanna líta út eins og
þeim hundleiðist en þegar fólk
SÍGILD HÖNNUN
Borðstofustóll án Borðstofustóll m. örm-
arma kr. 3.865 stgr. um kr. 4.175 stgr.
Stóll m. leöri eða Stóll m.. leðri kr.
hrosshári kr. 9.620 10.700 stgr.
stgr.
Legubekkur meö svörtu leöri eöa hross-
hári kr. 32.555 stgr. sem sagt
.. á oumflyjanlega
hagstæðu verði
ffv
ILJI
Bláskógar
Ármúla 8, s. 686080 - 686244.