Vikan


Vikan - 07.11.1985, Page 56

Vikan - 07.11.1985, Page 56
Pósturinn Flöt eins og 10 ára — get ég farið í brjóstastækkun? Halló Póstur. Ég vona ad þú birtir þetta bréf og svarir því ad sjálf- sögðu. Þad mgndi létta af mér þungri bgrdi sem þessa dagana er gjörsamlega ad sliga mig. Ég er meö svo lítil brjóst! Bíddu hœgur. Ég veit hvað þú hugsar (þið hugsið): ,,Ó, enn ein sama gamla lumman. ” En elsku besti, ekki segja mér að bíða, þetta komi allt saman með árunum. Ég hef hegrt þetta einum of oft og ef þú bgrjar líka þá gef ég hreinlega upp öndina. Ég hef rœtt þetta við vinkonur mín- ar en það dugar skammt svo ég get gert eins og ástföngnu stelpurnar og þœr sem eru í ástarsorg. Ég er að verða 17 ára (kannski orðin of gömul til að skrifa Póstinum en það sakar ekki að regna!) og er með álíka stór brjóst og 10 ára stelpa, eða sem sagt nœstum alveg flöt að framan. (Kannski ég hafi átt að verða strákur en guð skipt um skoðun á síðustu stundu og ákveðið að ég skgldi verða stelpa. Hver veit?) Jœja, ég hef beðið einum of lengi eftir að brjóstin stœkki en þó ég hafi verið þolinmóð með afbrigðum þá er ekki þar með sagt að ég hafi biðlund til eilífðarnóns. Mamma er með ósköp lítið stœrri brjóst en ég svo ekki er hœgt að búast við miklum sjálfkrafa framförum. Ég þori ekki að minnast á þetta við hana. Hún er af gamla skólanum og mgndi drekkja mér í predikunarflóði ef ég gerði það. Það má vel vera að hún hafi lifað þetta af í gamla daga en ég veit ekki hvort ég geriþað. Eins og skiljanlegt er hef ég hrœðilega minnimáttar- kennd út af þessu og það er hún sem er að drepa mig þessa dagana. Þegar ég fer í sund og svoleiðis finnst mér allir glápa á mig og ég er nœstum hœtt að þora í sund út af þessu. En mest er minnimáttarkenndin gagn- vart hinu kgninu. Ég get bara ekki meir. Ég er ekki Ijót (vinsamlegast takist ekki sem mont) og margir strákar hafa sgnt mér áhuga, en eftir örlítið nánari kgnni dregið sig í hlé. Sumir hafa sagt mér að hafa samband við þá þegar ég vœri orðin ögn þroskaðri og aðrir dregið í efa að ég vœri að verða 17 ára. Enn fleiri hafa ekki sagt neitt en ég finnþað alveg á þeim. Þetta kvelur mig ofboðs- lega og nú er ég komin með þetta á sálina. Þau eru ófá, tárin sem ég hef skœlt gfir þessu oq spurt: ,,Af hverju ég?” Ég var búin að vera með strák í rúman mánuö og við sváfum auðvitað saman og svoleiðis. Hann sagði að sér vœri alveg sama þótt ég vceri svona og hló að móralnum í mér. Ég var nœstum búiti að glegma þessu öllu þegar hann sagði bless upp úr þurru og bgrjaði með ann- arri forljótri með heilt mjólkurbú. Það var kornið sem fgllti mœlinn. Kœri Póstur, eftir langa og stranga umhugsun ákvað ég að leita tilþín. Ég trúiþví ekki að þú sért það kald- Igndur að henda bréfinu í ruslið, eins og ég þurfti að taka á til að skrifa það, og láta mig sitja eftir í áhgggju- súpunni. Hvað á ég að gera? Eða œtti ég frekar að spgrja: Hvað get ég gert? Ég veit að það er hœgt að stœkka brjóst með líkamsœfingum en ég held að það dggði skammt í mínu tilviki því ekki nenni ég að standa íþví alla œvi. Getur lœknir gert eitt- hvað ? Ég hef hegrt um aðgerðir en veit lítið um þœr og ekki heldur meira um það hvert maður sngr sér til að fá upplgsingar um þetta. Ég er geðveikislega feimin við ókunnugt fólk. Kostar það ekki heil ósköp að fara í aðgerð og er ekki aldurstak- mark? Þú getur kannski gefið mér einhver svör við þessu? Ég get ekki átt von á neinni aðstoð að heiman, ég hef engan til að raeða þetta við. Mamma rífst bara og pabbi samsinnir eins og hlgðinn rakki, og ekki vœnti ég neins stuðnings frá þessum bræðraómgndum mínum. Ég fel þér því málið til íhugunar og bíð eftir birt- ingu og svari. Bless. ,, i. Hebba. P.S. Kurteisleg smáábend- ing um efnisval í blaðinu. Þið mœttuð bœta inn sauma- þœtti með léttum sniðum að fötum sem eru í tísku, svona fgrir manneskjur sem ekki þola að prjóna!!! Þú ert vitanlega ekki orðin of gömul til að skrifa Póstinum. Þar gilda engin aldurstakmörk. öllum er frjálst aö skrifa Póstinum, þó svo að flest bréfin, sem Pósturinn fær, séu frá fólki á aldrinum 10 ára til tvítugs. Þú líður fyrir aö hafa of lítil brjóst og veist að Pósturinn veit að það er sama hvaö sagt er við þig, þá breytist þaö ekki neitt. Þegar fólk hefur eitthvert „lýti” á líkamanum, sem það hefur minnimáttarkennd út af, þýðir oft ekk- ert fyrir aðra aö telja því hughvarf. Þó svo að öðrum finnist lýtið alls ekki vera neitt lýti, taki oft varla eftir því, þá veit enginn nema sá sem lýtið hefur hvernig þaö er að þurfa aö vera svona. Það getur haft mjög slæm áhrif á and- lega líðan fólks og því eru lýtalækning- ar alls ekki hégómaskapur heldur mikilvægur þáttur læknisfræðinnar. Því er best að segja þér strax að það er hægt aö stækka brjóst meö því aö sprauta gerviefnum undir húðina. Þaö gerir sérfræðingur í skapnaðar- lækningum en Pósturinn veit ekki hvort það er hægt að gera það nú þegar eöa hvort þú þarft aö bíða í einhvern tíma þar til brjóstin eru örugglega búin aö ná fullum þroska. En fyrst þarftu að fara til heimilislæknis, síðan færöu tilvísun á sérfræðinginn. Þaö er mjög erfitt aö komast að hjá þessum sérfræðingum og þú mátt búast við að þurfa að vera lengi á biöiista. Einnig er það læknisins aö ákveöa hvernig og hvort aðgerðin verður gerð á þér. Þessar aðgerðir eru annaðhvort alveg ókeypis eða kosta eitthvað lítilsháttar. En þú skalt íhuga allt þetta mál gaumgæfilega. Þú hefur lítil brjóst — það hafa margar konur. Líttu bara í kringum þig í sundi. Þú skalt ekki halda að konur séu eitthvað aö stara á þig vegna þess. Sum brjóst eru eins og melónur og önnur eins og spæld egg, þannig er bara fjölbreytnin í sköpun- inni. Og karlmenn hafa líka mismun- andi smekk, sumum þykja lítil og nett brjóst sérlega aðlaðandi og aðrir falla fyrir stórum, en fyrir karlmenn með viti eru það ekki brjóstin sem skipta sköpum um hvort þeim líst á stelpu eða ekki. Auðvitað er það manneskjan í heild, heildarútlitiö, kyntöfrarnir, skapgerðin, persónuleikinn, húmorinn, áhugasviðið, sem gerir manneskjuna aö því sem hún er og aölaöandi eða ekki fyrir hinn aðilann. Strákurinn sem þú varst með, sem sagði að brjóst- in skiptu engu einasta máli, hefur áreiðanlega talaö fyrir munn allra stráka sem eitthvað er varið í. Ástæðan fyrir því að þið hættuö saman hefur verið einhver önnur og þú hefðir átt að fá það á hreint í stað þess að kenna brjóstunum á þér um. Hættan í sambandi við lýta- og skapnaðarlækn- ingar, sem allir sérfræðmgar á því sviöi benda á, er að svo margir kenna „lýtum” sínum um allt sem aflaga fer í lífi þeirra og halda að aögeröin ein og sér kippi bara öllu í lag. En þannig er það ekki. „Lýtið” getur stuðlað að feimni og minnimáttarkennd en veldur henni ekki eitt og sér og hún hverfur ekki um leið og þaö. Þetta er of flókið mál til þess. Sá sem ætlar í svona aðgerð verður að gera sér ljóst að það að lagfæra „lýtið” getur hjálpað honum aö sigrast á minnimáttar- kenndinni og feimninni smám saman með vilja, dug og ákveðni. En ættir þú ekki bara aö sætta þig við þig eins og þú ert? Þaö er önnur spurning sem þú skalt velta fyrir þér fram og aftur í einrúmi og áöur en þú ferð til læknis. Þú segir að mamma þín hafi lítil brjóst og „hún hafi lifað það af í gamla daga”. Geturðu ómögulega talað við hana í alvöru um þetta. Það hefur áreiðanlega ekki veriö neitt auðveldara fyrir hana að vera með lítil brjóst í „gamla daga” en fyrir þig nú, jafnvel verra því konum hefur alltaf verið talin trú um að þær veröi að hafa stór brjóst til að ganga í augun á karl- mönnum (og það er auövitað bara eitt af mörgu). Þú vanmetur áreiðanlega mömmu þína. Hún getur örugglega miðlað þér af sinni reynslu ef þú ferð rétt að henni, það er hvernig hún sætti sig við þetta, eöa hefur hún ef til vill aldrei sætt sig viö það? Á fólk ekki bara aö sætta sig við að vera eins og þaö er? Hvers vegna skyldi fólk reyr.a að falla inn í ein- hverja staðlaöa mynd af fólki sem búin hefur veriö til í heimi tísku og auglýsingaiðnaðar? Hví ekki aö vera bara stoltur af því að vera eins og guö skapaði mann og gefa fordómum og tilskipunum um hvernig fólk á að líta út bara langt nef? Þú talar sjálf um eina „forljóta með heilt mjólkurbú”, það eru dæmigerðir fordómar. Hin stelpan getur ekkert gert að því hvern- ig hún litur út og hefur þér aldrei dottið í hug að það gæti verið eitthvaö annað viö hana sem strákurinn hefur fallið fyrir? Þú veist ósköp vel sjálf aö það er margt við þig líka þó þú sért grönn og með lítil brjóst. Leggðu áherslu á alla kosti þína, viðurkenndu gallana og reyndu að gera sem minnst úr þeim. Leitaðu læknis ef það er eindreginn vilji þinn en gerðu þaö ekki fyrr en þú ert búin að hugsa málið fram og aftur. Hugmyndin um sniöin er góð og hefur reyndar verið til umræöu á Vikunni. Það má meira en vera að ósk þín verði uppfyllt. $6 Vikan 45. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.