Vikan - 16.01.1986, Qupperneq 23
læra af Japönum sem GM geröi
samning við Toyota. Japanirnir sáu
um uppsetningu nýrrar verksmiðju í
Fremont í Kaliforniu sem nú sendir
frá sér 360 nýjar Chevrolet Nova á
dag. Frosch dregur ekki dul á að
þessi samningur var öðrum þræði
gerður til að læra af Japönum. Flann
og þeir hjá Ford eru sammála um að
eitt af því sem bandariskir bílafram-
leiðendur verði að læra sé að bregð-
ast fyrr og ódýrar við duttlungum
markaðarins en nú er. Við óbreytt
ástand tekur það allt upp í fimm ár og
fjóra milljarða dollara að koma bil af
teikniboröinu út til kaupenda, með
sæmilegri tryggingu fyrir því að hann
uppfylli þær kröfur sem gera verður
til hans.
Meiri samvinna nauðsynleg
Allir hinir þrír stóru eru sammála
um að til þess að þetta verði mögu-
legt þurfi miklu meiri samvinnu allra
stiga framleiðslunnar, allt frá upphafi.
Donald Kopka segir: ,,l gamla daga
sat ,,listamaðurinn" með bláu húfuna
sína og teiknaði fallegan bíl. Svo fór
teikningin i boddídeildina og tók þar
breytingum, síðan i undirvagnsdeild-
ina og tók þar breytingum — guð má
vita hve mörgum sinnum upprunaleg
teikning breyttist áður en hún komst
alla leið á færibandið. Það er ekki
skrýtið þó sumir bílarnir séu eitthvað
undarlegir." Nú er hins vegar lögð
áhersla á að allir þessir þættir séu
hugsaðir samtímis þannig að upp-
runaleg teikning geti gengið upp
óbreytt þegar í stað og tölvur geta
stytt tilraunatímann verulega. Til
framleiðslunnar sjálfrar eru í sívax-
andi mæli notuð „vélmenni" sem
leyst geta störfin af hendi hraðar og
með meiri nákvæmni en áður var
mögulegt.
Og það eru ekki bara japanskir bilar
sem Bandarikjamenn þurfa að keppa
við. Á lista timaritsins Road & Track
yfir athyglisverðustu bilana árið 1984
— þá bíla sem ánægjulegast er að aka
miðað við dollarana sem þeir kosta
(hvernig sem það er svo reiknaðl —
er hvorki meira né minna en þriðjung-
urinn þýskir bílar: Mercedes-Benz,
BMW, Porsche og Audi. Þetta eru
merki sem ekki eru likleg til að gefa
neitt eftir og sem dæmi má nefna að
Volkswagenverksmiðjurnar lAudi)
hafa tekið í notkun nýja verksmiðju í
Wolfsburg. Hún er talin sú sjálfvirk-
asta og fullkomnasta I heimi sem
stendur. Það er ekki aðeins að
róbótar („vélmenni") séu notaðir til
allrar suðuvinnu heldur sjá þeir líka
um fjórðung allrar samsetningarinn-
ar, þar með talin nákvæmnisverk eins
og að setja vélina niður, tengja raf-
geyminn og skrúfa hjólin undir.
En hinir þrir stóru í Bandarikjunum
eru að berjast fyrir lifinu. Þar varður
ekki þumlungur eftir gefinn baráttu-
laust. Og hver útkoman verður fáum
við aðsjá í kringum 1990.
(Meginheimild: Science Digest,
nóv. 1985)
't í
o £
0
(0 0)
to r
e 2
ij
| i
5 o
t 8
o E
o 5
to *■
O 0)
0 0
DONALDKOPKA
I
aðstoöarforstjóri Ford, yfir-
maöur hönnunardeildar Ford.
Tilraunastofur hafa tekið tölvur og leysigeisla í sina
þjónustu. Hérna er leysitœki sem fylgist með þvi
sem gerist þegar bensínblanda springur i sprengihreyfli,
varpar upplýsingunum til tölvu sem gerir kleift i fyrsta
sinn að vita nékvæmlega hvað gerist i þessu ferli.
Vikan 3. tbl. 23
Umsjón: Sigurður Hreiðar