Vikan

Tölublað

Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 4

Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 4
/ Það er hægt að breyta andlitinu ótrúlega mikið með réttri notkun snyrtivara. Og þar geta augn- og varalitablýantar ráðið miklu um hvernig til tekst. Hérá eftir koma nokkurgóð ráð um hvernig blýantarnireru notaðir. Við gula og appelsínugula augnskugga er fallegt að nota svarta og bláa blýanta. Hvítt stækkar og til að stækka augað er hvítureða mjög Ijós blýantur notaður í augnhvarminn. Ef augun eru of djúpstæð er ráð að setja Ijósan lit í augnkrókinn og þá sýnist líka lengra á milli augnanna. Svart minnkar og ef svört lína er teiknuð allan hringinn í kringum augað sýnist augað minna. Þegar blýantur er notaður undir neðri augnhár skal hann setturfrá miðju auga og útáytri augnkrók. Blýantsstrikið gerir það að verkum að varaliturínn rennur síður til — smitarekki. Einnig skerpir blýantsstrikið varirnar. Þaðer hægt að breyta lögun varanna með réttri notkun blýantsins. Breiðar varir eru þynntar með mjög Ijósum blýanti. Einnig er hægt að láta þunnar varir sýnast þykkri. Oftast er notaður blýantur í sama lit og varaliturinn, þó aðeins dekkri. Fyrst er línan teiknuð á með blýantinum og síðan er varaliturinn borinn á, gjarnan með pensli. En það er ekki nauðsynlegt að nota endilega varalitablýantinn á varirnar, prófið augnblýantana líka á varirnar, að minnsta kosti þið sem eruð á yngri árum. Fjólublá- irogjafnvel grænir litir geta komiðvel útmeð varaglossi. Passið þó að línan sé ekki of sterk. AUGU Hér eru ótal möguleikar og litaúrvalið mikið. Einu sinni átti litur augnsnyrtingarinnar að fara eftir lit augnanna, síðar eftir litfatanna. Þaðerauðvitaðfallegten litirnirfara misvel við augnaumbúnaðinn. Appelsínuguli liturinn ætlar að verða ríkj- andi í fatatískunni í sumar og svo er einnig í snyrtivörunum. AUGABRÚNIR Það er sjaldan ástæða til að breyta lögun augabrúnanna. Nú er alveg hættað plokka augabrúnirnarörþunnareinsog varí tísku fyrir nokkrum árum. Augun virðast þó stærri og snyrtilegri ef plokkuð eru hár undir augabrúnunum og á milli augnanna. En fjarlægið aldrei hárfyrir ofan augabrúnirnar. Notið auga- brúnaplokkara og takið hárin í þeirri röð sem þau vaxa. Ef það er sárt er ráð að kæla húðina með því að nudda hana með ísmola. Ef hárin vaxa ójafnt og dreift er gott að bursta þau og jafna með augabrúnabursta. Hægt er að nota örlitla fitu. Skerp- ið augabrúnirnar með augabrúnalit ef þess þarf. Teiknið fínar línur sem líkjast hárum og strjúkið aftur yfir með augabrúna- bursta. Við tókum saman lista yfir nokkur snyrtivöru- merki þar sem meðal annars kemur fram hve margir litir fást og verð blý- antanna. Frá CLINIQUE eru til 1 5-20 litir af blýöntum og með hverjum þeirra fylgir yddari. Allar vörur frá CLINIQUEeru ofnæmis- prófaðar. Blýanturinn kostar 590 krónur. ESTÉE LAUDER hefur9 liti af blýöntum fyrir augu og 9 liti fyrir varir. Með hverjum blýanti fylgiryddari. Blýanturinn kostar 655 krónur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.