Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 18
PPNEFND
Nokkur fórnarlömb tekin tali
EFTIFt JOHÖNNU S. S/GÞÓRSDÚTTUR
Allt frá landnámstíð hefur tíðkast að uppnefna
fólk eða gefa því viðurnefni. í seinni tíð mun
þetta þó hafa minnkað nokkuð. Enn fmnast
þó staðir á landinu þar sem þessi siður heldur
velli. Má þar öðrum fremur nefna Vest-
mannaeyjar.
Þegar menn eru uppnefndir eða gefið viðurnefni er það oft
gert til að kenna þá við tiltekna staði, föður eða móður, tiltek-
in atvik, sem hafa hent þá, eða þá að viðurnefninu er ætlað
að undirstrika viss persónueinkenni. I sumum tilvikum virð-
ast nafngjafirnar vera út í loftið. Frægir eru albræðurnir í
innbænum á Akureyri. Þeir gengu undir nöfnunum Lilli
Kobba, Haukur Dúdda og Killi Boggidei. Helgi pinkill hafði
nappað einhverju smáræði þegar hann var strákur fyrir vest-
an. Gobbe-dí var mikill áhugamaður um hestamennsku nefnd-
ur og raunar gobbe-dí-gobb þegar mikið var haft við. Rúnki
rindill þótti ekki með alhæstu mönnum. Svona mætti lengi
telja.
Þá virðast viðurnefni tíðkast mjög innan tiltekinna íþrótta-
greina, til dæmis meðal lyftingamanna. Flestir kannast við
Arthúr Bogason, oft nefndan norðurhjaratröllið, eða Víking
Traustason, heimskautabangsa.
Og svo eru það þeir sem þykja áberandi í þjóðlífinu. Þeir
mega alltaf búast við að gerðar séu tilraunir til að skreyta
þá með viðurnefnum. Eða hvað segja viðmælendur okkar,
sem allir eiga það sameiginlegt að hafa verið uppnefndir?
ÁRNI
|JOHNSEN-„EYJAJARL‘
ÞARFLITIÐ TILEFNI'
'<<
„Ég hef ýmist verið kallaður
„Eyjatröllið" eða „Eyjajarlinn".
Ég veit nú ekki hver skýringin á
þessu er. Þetta getur komið allt í
einu upp og oft þarf lítið tilefni.
En einhvern veginn hefur það
æxlast þannig að ég hef lent í sviðs-
ljósinu sem Vestmannaeyingur.
Líklega fékk ég þessar nafngiftir
fyrst þegar ég var í Surtsey 1965-66.
Þá birtist við mig viðtal í sænsku
I blaði. Þar var ég kallaður „Eyja-
jarlinn". Greinin birtist svo þýdd i
Vísi. Síðan þefur þetta flotið með
mér,“ sagði Árni og bætti svo við:
„Annars er ég kallaður Addi í
Vestmannaeyj um.“
18 VIKAN 15. TBL.