Vikan - 10.04.1986, Blaðsíða 28
Sonja Ekvall heitir kona sem rekur
umboðsskrifstofu í Hamborg í Vest-
ur-Þýskalandi. Það er einmitt hjá
þessari konu sem Helga Melsteð
hefur nú starfað í hálft ár. Model
Team, en svo heitir þessi skrifstofa,
er samstarfsskrifstofa Ford Models í
New York. Það var í fyrirsætukeppn-
inni Face of the 80's sem þær Helga
og Sonja hittust í fyrsta sinn. Sonja
hefur verið einn af dómurum í
keppninni frá upphafi og hefur starf-
að með Eileen Ford í tæplega tuttugu
ár. Sonja bauð Helgu að koma til sín
til Þýskalands og starfa þar og það
var svo fyrir milligöngu Ford Models
að hún fór til Hamborgar til Sonju
og Ralf Ekvall, en þau hjón hafa rekið
fyrirtæki sitt í Hamborg í fimmtán ár.
Sonja og Ralf eru bæði sænsk.
Hún er frá Hálsingborg og hann frá
Sundsvall. Þau fluttu frá Svíþjóð
vegna starfa hans hjá stórfyrirtæki í
Hamborg og þar byrjaði Sonja
umboðsstörf fyrir fyrirsætur. Eftir
nokkurra ára starf í Hamborg var
starfið hennar orðið svo umfangs-
■ mikið að þau hjón ákváðu að setjast
þar að og einbeita sér að umboðs-
störfum. Umfang fyrirsætustarfanna
hefur vaxið ár frá ári í Þýskalandi.
Þar eru mörg stórfyrirtæki og þar er
gefinn út fjöldinn allur af glæsilegum
tímaritum sem mörg eru á boðstólum
hér í bókabúðum. Það er því mjög
eftirsóknarvert að starfa við fyrir-
sætustörf í Þýskalandi og samkeppni
orðin mikil.
Þar sem þau hjón eru sænsk starfa
margar stúlkur frá Norðurlöndunum
hjá þeim. Einnig koma til þeirra
margar stúlkur frá Bandaríkjunum
sem vilja kynnast Evrópu og starfa
þarumtíma.
Það var Sonja sem uppgötvaði
Annette Stai, norsku stúlkuna sem
sigraði í fyrstu Ford-keppninni.
Andlit Annette er löngu orðið heims-
frægt enda hefur hún verið á forsíð-
um allra frægustu tímarita heims.
Annette kom frá Noregi til Hamborg-
ar þar sem hún starfaði fyrir Sonju
um tíma. Henni gekk ekki vel í fyrstu
en eftir nokkra mánuði, þegar hún
var komín með góðar myndir í bók-
ina sína, fór hún að fá nóg að gera.
Eftir sigurinn í Ford-keppninni hefur
hún verið ein hæst launaða fyrirsæta
heims. Álagið varð svo mikið að hún
tók sér árs frí frá störfum og bjó
heima í Noregi en nú er hún komin
áfullaferðáný.
Annette Stai. Það var
Sonja sem uppgötvaði
hana.
ú er Ford-keppnin komin í fullan gang og í júní
kemur Lacey Ford og velur fulltrúa Islands í næstu
Ford-keppni. Þið sem hafið áhuga á að vera með
sendið sem fyrst up£
og aldur ásamt mynd.l
Vikunnar um
Helga hefur nú starfað í
Þýskalandi í hálft ár. Sonja Ekvall.