Vikan

Útgáva

Vikan - 18.12.1986, Síða 15

Vikan - 18.12.1986, Síða 15
6. þáttur Tafla 1 Vistrými í íbúðum fyrir aldraða 1985-1986 Fjöldi Vistrými á hverja 100 vistrýma íbúa eldri en 65 ára Reykjavík 521-642 4,6-5,6 Vesturland 20-40 1,4-2,9 Vestfirðir 48 5,1 Norðurland vestra 52-56 4,3-4,6 Norðurland eystra 24 0,9 Austurland 41-18 3,3-3,9 Suðurland 77-83 4,0-4,3 Reykjanes 144-206 4,2-6,0 Samtals 927-1147 3,8—1,7 Tafla 2 Vistrými i dvalarheimilum aldraðra 1985- 1986 Fjöldi Vistrými á hverja 100 vistrýma íbúa eldri en 65 ára Reykjavík 368 3,2 Vesturland 158 11,3 Vestfirðir 27 2,9 Norðurland vestra 0 0 Norðurland eystra 268 9,9 Austurland 27 2,2 Suðurland 354 18,2 Reykjanes 135 3,9 Samtals '1337 5,5 halda, annaðhvort af heilsufarsástæðum, fé- lagslegum ástæðum eða hvoru tveggja. Enn sem komið er hefur ákvæðum laganna um vistunarmat sem forsendu dvalar á öldr- unarstofnun ekki verið hrundið í framkvæmd. Ein ástæða þess er sú að samræmdar reglur um vistunarmat hafa ekki verið gefnar út. Engu að síður beita margar stofnanir, einkum stofnanir í eigu sveitarfélaga, einhvers konar mati við ákvörðun um vistun. Stjórnendur margra öldrunarstofnana hafa hins vegar ver- ið ntjög tregir til að beita slíkum aðferðum við val sitt á vistmönnum. Þess í stað eru tekn- ar frarn yfir aðferðir sem byggjast á hversu lengi einstaklingar hafa átt nafn sitt á biðlista viðkomandi stofnunar, kunningsskap eða jafnvel möguleikum viðkomandi gamalmenn- is (eða ættingja) á að styðja stofnunina fjárhagslega. Þess eru jafnvel dæmi að dregið hafi verið um hverjir fengju dvöl i húsnæði fyrir aldraða. Vorið 1985 voru biðlistar öldrunarstofnana kannaðir lauslega. Könnunin leiddi í ljós að fyrir lágu um það bil 2500 umsóknir. Vafa- laust eru einhverjar umsóknir tví- ef ekki margtaldar, því í mörgum tilvikum hefur sarni einstaklingurinn sótt unt dvöl á fleiri en einni stofnun. Um 1800 þessara umsókna voru um vist á öldrunarstofnunum sent ekki beita neinu vistunarmati til að velja úr umsóknum. Um þessar mundir er verið að ljúka vand- aðri könnun á biðlistum öldrunarstofnana. Könnunin hefur verið í höndum landlæknis- embættisins samkvæmt beiðni heilbrigðisráð- herra. Fyrstu niðurstöður leiddu í ljós tæplega 2400 umsóknir frá urn það bil 2000 einstakl- ingum. Langflestir umsækjenda bjuggu á Reykjavíkursvæðinu og sóttu flestir um dval- arheimilisvist. Meðalaldur umsækjenda var 79 ár og var þriðjungur þeirra karlmenn. Endanlegar niðurstöður könnunarinnar eiga að líggja fyrir nú í árslok. Ætlunin er að meta einnig heilsufar og félagslegar aðstæður þeirra aldraðra sem eru á biðlistum. Athyglis- vert væri að bera niðurstöður könnunarinnar saman við heilsufar og félagslegar aðstæður þeirra sem þegar hafa fengið inni á dvalar- stofnun fyrir aldraðra. Slíkur samanburður myndi leiða í ljós hvort og í hvaða mæli gamal- menni hafa fengið vist á öldrunarstofnun án þess að nægar forsendur væru fyrir stofnana- dvöl. Vistrými og vistunarþörf Vistrými fyrir aldraða og vistunarþörf eru hugtök sern halda þarf vandlega aðgreindum. Biðlistar unt vist í húsnæði fyrir aldraða sanna ekki einir sér að skortur sé á vistrými. Þjónusta við aldraða verður að mynda eina samfellda keðju. Engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Ef einn hlekkurinn er veikur eykst þrýstingurinn á aðra hlekki keðj- unnar. Biðlistar eftir vistrými endurspegla meðal annars að þjónustukeðjan er missterk. Einn hlekkurinn, heimaþjónustan, er ekki eins öflugur og æskilegt væri. Vandann verður því að leysa með því að efla heimaþjónustana frekar en að ráðast í stórkostlega íjárfrekar byggingarframkvæmdir. Þegar búið er að leysa vanda þeirra gamalmenna sem eru á biðlistum og þurfa ekki annarrar þjónustu við en heimaþjónustu er hægt að meta biðlistana á raunhæfan hátt og sjá hversu margir hafa raunverulega þörf fyrir dvöl á öldrunarstofn- un. Þjónustuhópar aldraðra Áður hefur verið minnst á þjónustuhópa aldraðra í þessum þáttum. Hlutverk þeirra er geysilega mikilvægt því í tilvist þeirra felst grundvallarbreyting í afstöðu okkar til þess hvernig við þjónum öldruðum. Hlutverk þjón- ustuhópanna er að miðla heimaþjónustu til þeirra sem þurfa á henni að halda og að tryggja að þeir sem ekki geta lengur lifað eðlilegu heimilislífi þrátt fyrir heimaþjónustu fái vist á öldrunarstofnun. Ef þjónustuhóp- arnir eiga að geta sinnt þessu starfi sínu þurfa þeir jafnframt að hafa yfir að ráða þeim vist- rýmum sem eru fyrir hendi á öldrunarstofnun- um í hverju umdæmi. í því felst að öldrunarstofnanir myndu fella niður eigin bið- lista og losna þar með við það umstang og skriffínnsku sem þeim fylgja. I stað þess myndi öldrunarstofnun snúa sér til þjónustuhóps aldraðra á svæðinu í hvert sinn sem vistrými losnar á stofnuninni og þjónustuhópurinn myndi síðan sjá um að ráðstafa rýminú i þágu einstaklings sem þarf á stofnanavist að halda. Margir munu sjálfsagt kalla fyrirkomulag af þessu tagi miðstýringu. En í þessu tilviki er þetta miðstýring sem á rétt á sér. Kostnað- ur við dvöl á öldrunarstofnunum er greiddur af hinu opinbera, með öðrum orðum greiddur af skattgreiðendum. Skattgreiðendur eiga kröfu á því að þessir Ijármunir séu nýttir í þágu þeirra sem mesta þörf hafa fyrir dvöl í húsnæði fyrir aldraða. Öðruvísi verður heldur ekki tryggt jafnræði aldraðra ogjafnir mögu- leikar þeirra á stofnanavist þegar heilsu hefur hrakað svo að þeir fá ekki lifað eðlilegu heim- ilislífi. 51. TBL VIKAN 15

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.