Vikan - 18.12.1986, Blaðsíða 56
S T J Ö R N U S P Á
m
SPÁIN GILDIR FYR
18.-24. DESEMBER
HRÚTURINN 21. mars-20. apríl
Freistingarnar hlaðast að þér þessa
dagana og þú átt bágt með að stand-
ast þær. Þér helst illa á peningum
og mátt búast við að nokkur átök
kosti að velja og hafna. Láttu samt
eftirþéreitthvað afþví sem hugurinn
girnist, píslarvættið fer þér hvort sem
erekki vel.
TVÍBURARNIR 22. maí-21. júní
Þér verður það á að fuilyrða of mik-
ið og færð hörð viðbrögð. Þér er
hollast að draga í land hið snarasta
til að halda friðinn enda lítið vit í
að láta ekki stærra mál spilla fyrir
sér. Forðastu óhófímat ogdrykk.
Þér kemur til með að líða betur ef
þú lætur vera að kýla vömbina.
LJÓNIÐ 24. júlí-23. ágúst
Notalegt tímabil er fram undan og
ánægjustundir fjölskyldufólks venju
fremur margar. Svo virðist sem allt
leggist á eitt til að gera jólahaldið
ánægjulegt og ættir þú að meta það
þar sem slíkt er hreint ekki sjálfgef-
ið. Þú býrð lengi að þessunt meðbyr
ef þú kannt að nýta þér hann.
VOGIN24.scpt.-23.okt.
Þú verður að stilla kröfunum í hóf
og skalt hafa hugfast að sælla er að
gefa en þiggja. Ekki á þetta einungis
við um áþreifanleg verðmæti og á
næstunni gefast þér ófá tækifæri til
að styrkja tengslin við þá sem þér
eru kærir. Enginn er fullkominn en
hver hefur til síns ágætis nokkuð.
BOGMAÐURINN 24. nóv.-2I. des.
Þú verður störfum hlaðinn og finnst
þú ekki sjá fram úr því sem gera
þarf. Ekki er víst að öllum þyki það
nauðsynlegt sem þú ert að sýsla en
ef til vill getur þú farið bil beggja svo
að allir verði ánægðir. Þú getur ekki
ætlast til að aðrir sýni hugðarefnum
þínum jafnmikinn áhuga og þú.
VATNSBERINN 21.jan.-19.fcbr.
Y rnsir viðburðir eru í vændum en
ekki gera þeir allir boð á undan sér.
Þú ættir að láta slag standa, taka
þátt í því sem fram fer en láta ekki
á þig fá þó að ekki verði allt eins
og þú hafðir hugsað þér. Ánægjuefn-
in leynast víðar en þig grunar og þú
hefur gott af að kynnast því.
IR VIKUNA
NAUTIÐ 21. apríl-21. maí
Þú átt von á hrósi fyrir vel unnið
verk. Viðbrögð þín fara eftir því
hvort þér finnst þú verðskulda lofið.
Þetta er líklegt til að verða þér
hvatning til dáða og framhaldið
markar tímamót. Þú hefðir gott af
að leiða hugann að fleiru en verald-
legum efnum yfir hátíðirnar.
KRABBINN 22. júní-23. júlí
Fólk hyllist til að halda að þú hafir
ótaknrarkaðan tíma til að sinna alls
kyns kvabbi. Þótt þú hafir gaman
af að gera öðrum greiða skaltu ekki
láta spilla fyrir þér jólafriðnum. Sjái
aðrirekki sóma sinn í að stilla tilætl-
unarseminni í hóf verður þú að sjá
um að setja mörkin.
MEYJAN 24. ágúst-23. sept.
Mótvindur getur verið hressandi
þótt hann sé óþægilegur meðan mest
gustar. Þú átt í vændum að læra af
mistökum sem reynast þér ekki eins
dýrkeypt og í fljótu bragði gæti litið
út fyrir. Það er gott að vera vandur
að virðingu sinni en nauðsynlegt að
taka sjálfan sigekki of hátíðlega.
SPORÐDREKINN 24. okt.-23. nóv.
Reyndu að vera jákvæðari og bjart-
sýnni en að undanförnu. Þú ættir
að leggja áherslu á það sem vel tekst
í stað þess að tönnlast í sífellu á þín-
um eigin mistökum ogannarra. Þú
hefur áhrif víðar en þig grunar og
beðið er eftir uppörvun sent aðeins
þú getur látið í té.
STEING EITIN 22. dcs.-20. jan.
Notaðu hátíðina til að hafa sam-
band við fólk sem þú metur mikils
en þér finnst þú vera í þann veginn
að missa tengslin við. Fullvíst má
telja að þér verði vel tekið og þarf
ekki að verða fyrirhafnarsamt. Þetta
auðgar líf þitt og þú glöggvar þig á
hvað þú metur í rauninni mest.
FISKARNIR 20. febr.-20. mars
Það segir til sín hversu hart þú hefur
lagt að þér. Nú er tími til korninn
að sinna eigin þörfum. Þú sérð ekki
eftir því að verðlauna þig ærlega og
getur með góðu móti látið aðra njóta
góðs af. Leggðu höfuðið í bleyti,
fmndu út til hvers hugurinn stendur
og láttu til skarar skríða.
Nú er komið að því að líta aðeinsá steingeilina. Einkunnar-
orð dæmigerðrar sleingeitar gætu verið að búast við hinu
versta því að hið góða skaðarekki. Hún rasarsjaldan um ráð
fram og kann því betur að hafa sitt á þurru. Til að ná mark-
miðum sínum er hún reiðubúin að leggja hart að sér og sýnir
ofl á tíðum óírúlega þolinmæöi. virðist ekkert liggja á. Stein-
geitur setja sér markmið, vinna skipulega að því að ná þeim
en eru ólíklegar lil að grípa þau tækifæri sem gefast sýnist
þeim ekki allt gulltryggt. Þær reiknaeinfaldlega með að þurfa
að hafa fyrir hlutunum og eru tilbúnar að bíða síns tima. Þær
bera virðingu fyrir verðmætum og hættirá stundum lil að
meta hlutina heldureinhliða út frá veraldlegu sjónarmiði. Þær
kunna vel að meta ýmsar af lystisemdum lífsins, allt óhófer
þeinr þó fjarri skapi og þær hafa megna skörnrn á hvers kyns
sóun. í slórum dráttum hentar steingeitinni að ljúka fyrst því
sem gera þarf en leika sér á eftir og þá er stundum undir
hælinn lagt hvort nokkur lími er til að leika sér. Þarer komið
að snöggum bletti á steingeitinni, hún á ekki gott með að
nálgast fólk, er hlédrægogoft svo feimin að þótt hana langi
að taka þátt i gleðskap kemur hún sér ekki að því. Hún er
seintekin en trausta vini og greiðvikna er að finna nreðal stein-
geita. Þærerujarðbundnar, taka heilbrigða skynsemi fram
yfir tillærðarkennisetningaren skortir þóekki hugmyndaflug
til að hafa gaman af því sem nýstárlegt er. Steingeitin hefur
meiri þörf fyrir félagsskapen i fljótu bragði kann að virðast,
að henni sækir gjarnan einmanaleiki en hún er of vör um sig
til að nálgast fólk að fyrra bragði. Hún er traust á heimili.
vill gjarnan hafa alla þræði i sínum höndum en hættir lil ráð-
ríki. Hún þarf að hafa fyrir því að varðveita hugarróna og
hefði gott afað temja sér að hugleiða hvar raunveruleg verð-
mæti erað finna.
56 VIKAN 51. TBL