Vikan

Útgáva

Vikan - 18.12.1986, Síða 28

Vikan - 18.12.1986, Síða 28
þvi á miðöldum. Fólk, sem heyrði okkun syngja í þessari ferð, er ennþá að sendá mér aðdáendabréf til að segja að það hafi aldrei lifað aðra eins stund og þegar það hlýddi á okkur. Margt af þessu fólki veit ekki hvað ég heiti og sum bréfm eru stíluð á Frú kórstjóri, Hamrahliðarkórinn, Island, en það er nóg. Þessi saga kórsins, sem gerist á erlendri grund, er mjög sérstæð. Um hana vita fæstir hér heima. Kórinn er síbreytileg stofnun, þetta er alltaf nýtt fólk og stundum er ég óörugg og bág yfir því að vera að missa mitt góða fólk sem búið er að byggja upp og kenna. En það er ekki hægt að vinna þetta starf nema trúa á að það hafí eitthvert meira gildi en tónlistarlegt, það þarf að hafa manneskjulegt gildi líka: að fólk læri að gefa eitthvað af sjálfu sér í þessum heimi sem er að verða allt of kaldur - að það sé eitthvað þama inni sem getur glatt. Það hafa þessir krakkar getað gert í gegnum tón; getað fengið fólk til að gráta, til að hlæja, látið það fmna fyrir því að það sé lifandi. Efvió sjálf, sem lifum og búum hér,flytjum ekki og kynnum þessa tónlist, hverjir eiga þá að gera það? Það er ekki það að allir þessir krakkar verði söngvarar þegar fram líða stundir. Þó hefur það komið fyrir. Ég man eftir Kristni Sigmundssyni, hann söng í fyrsta skipti einsöng opinberlega með Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Stuðmenn- imir Egill Ólafsson og Valgeir Guðjónsson vom líka í kómum okkar og það em marg- ir sem hafa lagt út á tónlistarbrautina fyrir bein og óbein áhrif kórsins. í kórstarfinu hefur verið lögð áhersla á að kynna tónverk frá ýmsum tímabilum, innlend sem erlend, allt frá miðöldum fram til okkar daga. Við höfum lagt aðaláhersl- una á að kynna íslenska tónlist á ferðum okkar erlendis sem ég tel mjög mikilvægt. Ef við sjálf, sem lifum og búum hér, flytjum ekki og kynnum þessa tónlist, hveijir eiga þá að gera það? Ég tel það hafa gefið þess- um ferðum aukið gildi að kynna þessa hlið íslenskrar menningar. En þetta geri ég ekki ein, kór er samvinna þeirra sem í honum starfa. Hann er þess eðlis að það verða all- ir að leggja mikið á sig til að ná árangri. Síðastliðið suinar var okkur ekki auðvelt, 28 VIKAN 51. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.