Vikan - 18.12.1986, Page 50
A l\!
D R A U M A R
SKURÐUR,
LÚMBOG
SITTHVAÐ
FLEIRA
Kæri draumráðandi.
Mig dreymdi draum fyrir nokkru
og hann veldur mér áhyggjum.
Mér fannst ég vera að vaða í
skurði sem er rétt fyrir utan húsið
hjá afa og ömmu.
Ég geng eins og leið liggur nið-
ur skurðinn þar til ég kem að
beygju. Þar stoppa ég og mér
finnst að ég standi fyrir kindum
sem koma eftir skurðinum á móti
mér. Skurðurinn er næstum mann-
hæðar hár og kindurnar þurftu að
komast upp úr honum og þurfti
ég að hjálpa þeim flestum upp úr,
en þær voru milli tíu og tuttugu.
Þegar kindurnar voru komnar upp
ætlaði ég að halda áfram en þá
kom mikið hrossastóð, milli tutt-
ugu og þrjátíu stykki, á harða
stökki á móti mér. Ég fór til baka
og stóð í beygjunni á meðan hest-
arnir stukku upp. Þegar hestarnir
voru komnir upp leit ég eftir skurð-
inum í þá átt sem hestarnir komu
úr. Þá sá ég að bróðir minn og
pabbi komu eftir skurðinum og
fannst mér þá að þeir hefðu verið
að reka hestana. Enn sneri ég við
og hélt í sömu átt og ég ætlaði.
Þá fannst mér allt í einu að eitt-
hvað lifandi væri ofan í skurðin-
um. Þegar ég leit betur i kringum
mig sá ég að við annan bakkann
var krökkt af lömbum. Þau voru á
stærð við rottur, flest nýfædd, með
gráa snoppu og gráa depla í eyr-
unum. Ég hófst handa við að tína
lömbin upp en þá sá ég allt í einu
á sem lá á skurðbakkanum og bar
hverju lambinu á eftir öðru ofan í
skurðinn. Hún bar þremur eða
fjórum á augnablikinu sem það
tók mig að tina eitt lamb upp úr
skurðinum. Lömbin voru svört og
grá en ærin hvít. Eins var með þær
fimm eða sex ær aðrar sem voru
á túninu rétt hjá skurðinum, en
það var allt krökkt af svörtum og
gráum lömbum. Ærnar voru ekki
snjóhvítar heldur gular og skítugar
eins og þær hefðu verið lengi inni.
Þær voru allar nýrúnar. Ég tók
nýfæddu lömbin líka upp úr
skurðinum en rak ána ekki í burtu,
fannst allt í lagi að hún bæri lömb-
unum ofan í skurðinn.
Það var ekkert vatn í skurðinum
eða þá sáralítið og ég man ekki
eftir því að það hafi gruggast eða
ég blotnað þó að ég gengi í því.
■ 5
er óvenjulega skýr og fullur af
táknum.
Það eina sem þú gætir þurft að
vara þig alvarlega á er að láta ekki
einhvern annan - til dæmis ein-
hvern sem þú ert verulega hrifin
af- taka fram fyrir hendurnar á þér.
Það var líka mikill gróður í skurð-
inum. Ég hélt síðan áfram upp
eftir skurðinum og var alltaf annað
slagið að tína upp lömb þar til ég
vaknaði.
Takk fyrir birtinguna.
Þura.
Þetta var mjög greinargott bréf
og einnig var gagn i þeim upplýs-
ingum sem ekki birtast hér.
Það er alveg Ijóst að fram undan
hjá þér eru einstakir tímar i þinu
lífi, þú virðist hafa ákveðið eitt-
hvað og þér verður ekki haggað,
en mætir öflugri mótspyrnu sem
þér þæði tekst að sigrast á og leið-
ir jafnframt að einhverju leyti hjá
þér. Ekki er ósennilegt að hún
komi að einhverju leyti frá þínum
nánustu. Þú munt hafa þetta allt
með se/glunni en þarft að berjast
hart á köflum. Þú þarft líka að
reyna töluvert á skynsemina og
þú kemst ekki hjá því að gera mis-
tök og /æra af þeim. Þú ert dálítið
gjörn á að hlýða tilfinningum þín-
um um of en munt læra að beita
skynseminni afauknum krafti. Það
verður þér til góðs.
Það sem fram undan er tengist
veraldlegum málum talsvert, starfi,
námi, fjármálum. Fjármálin eru
heldur átakamik/l en I heildina
hagstæð og það er eins og pen-
ingar spili þarna töluvert inn i.
Ef þú hefur sett þér mark sem
er metnaðarfullt muntu sennilega
ná þvi en ekki átakalaust. Ef þú
hefur enn ekki sett þér ákveðið
takmark í lífinu ættir þú að spyrja
sjálfa þig hvað þú raunverulega
v/ljir og hvika ekki frá ákvörðun
þinni, jafnvel þótt á móti blási.
Þetta er inntak draumsins og hann
HANNKOM
AFTURTIL
MÍNÍDRAUMI
Kæri draumráðandi!
Ég ætla að biðja þig um að ráða
fyrir mig draum sem mig dreymdi
fyrir nokkru. Hann var á þessa leið:
Ég var stödd í búó í heimabæ
minum og inn til mín kom strákur
sem ég var með fyrir um það bil
hálfu ári. Hann byrjaði að tala við
mig og þegar við vorum búin að
tala saman í smástund spurði
hann mig hvort við gætum ekki
byrjað saman aftur. Þá sagði ég
við hann að hann væri bara að
plata mig og að hann myndi bara
nota mig eins og þegar við vorum
seinast saman. Þá byrjaði hann
að reyna að sannfæra mig um að
þetta yrði miklu betra núna. Siðan
kysstumst við smávegis og svo
spurði hann mig hvort hann mætti
sofa hjá mér þessa nótt. Þá sagði
ég að hann mætti sofa hjá mér
þegar við kæmum til Reykjavíkur.
Síðan man ég ekki meira en
þegar ég vaknaði sló hjartað í mér
mjög ört.
Það skrýtna við þetta allt saman
er að rétt áður en hann sagði mér
upp fyrir hálfu ári dreymdi mig að
ég væri inni í sömu búðinni og
að hann kæmi þangað inn og
segði að þetta væri búið á milli
okkar. Ég grátbað hann um að
vera lengur hjá mér en hann vildi
það ekki. Svo vaknaði ég um
morguninn með tárin i augunum
eins og að ég hefði verið að há-
gráta. Eins og áður sagði sagði
hann mér upp nokkrum dögum
síðar.
Ein ástfangin.
Þú virðist vera mjög móttækileg
fyrir öllu varðandi þennan strák
fyrst þú fannst það á þér að hann
myndi segja þér upp. Draumurinn,
sem þig dreymdi nú, er enginn
eiginlegum tákndraumur en ef til
vill er hann á sama hátt og hinn
fyrirboði þessi sem koma skal. Við
skulum bara vona það þviþú virð-
ist hafa mikinn áhuga á drengnum
og vonandi er hann þess verður.
VITLAUSIR
SKÚR
Kæri draumráóandi.
Hvað merkir að dreyma að mað-
ur fari út i vitlausum skóm? Mig
dreymdi í nótt að ég færi út í öðr-
um skóm en ég er vön, ég held
svei mér þá að það hafi verið inni-
skór. Viltu segja mér hvað þetta
merkir?
Með fyrirfram þökk.
G.H.
Skór þykja heldur táknríkir i
draumum og í þínu tilviki má gera
ráð fyrir að draumurinn sé þér til
áþendingar um að þú sért að ein-
hverju leyti að leiðast út á aðra
braut en þú hélst og ætlaðir þér,
en þá jafnframt að ef til vill ættir
þú stundum að líta þér nær. Ann-
ars fer ráðn/ng draumsins að
nokkru leyti eftir þvi hvort þú varst
ánægð eða óánægð með að vera
á inniskónum. Draumráðandi hef-
ur á tilfinningunni að þú hafir ekki
verið neitt sérstaklega ánægð með
þetta þannig að ef til vill muntu
ákveða að breyta aftur í fyrra horf
og ert óánægð með að hafa verið
aó breyta svona til.
50 VIKAN 51. TBL