Vikan - 16.04.1987, Side 27
Það var á síðasta ári sem þessi
dúett festi sig í sessi meðal stærstu
poppstjarna Bretlands. Fyrsti smell-
urinn, sem bar nafnið West End
Girls, fór á toppinn bæði í Bretlandi
og Bandaríkjunum svo ekki sé talað
um hin ýmsu lönd Evrópu. Síðan
hafa fylgt nokkur lög sem hafa öll
farið ofarlega á lista og tvær breið-
skífur. Þeir sem skipa þennan dúett
heita Chris Lowe og Neil Tennant.
Þótt það hljómi undarlega þá hitt-
ust þeir fyrst í rafmagnsbúð í
Chelsea. Þeir þurftu víst að bíða eitt-
hvað eftir afgreiðslu og fóru að tala
saman. Síðan hittust þeir aftur, urðu
mestu mátar og hófu í framhaldi af
því að semja lög. Þannig varð hljóm-
sveitin til. Þeir kölluðu vini sína, sem
unnu í gæludýrabúð, gælunafninu
Pet Shop Boys og tóku það einfald-
lega upp og notuðu sem nafn á
sveitina. Til aðstoðar við sig fengu
þeir bandarískan upptökustjóra sem
heitirBobby O og var kunningi
Chris.
Neil var á þessum tíma blaðamað-
ur við breskt tónlistartímarit og fór
til New York til að taka viðtal við
breska tónlistarmanninn Sting.
Hann notaði tækifærið og hitti
þennan Bobby O. Þeim tveim kom
það vel saman að Bobby samþykkti
að aðstoða þá án þess að hafa nokk-
urn tímann heyrt í þeim.
Lagið sem þeir tóku upp bar nafn-
ið West End Girls. Það náði
nokkrum vinsældum í Frakklandi
og á diskótekum á vesturströnd
Bandaríkjanna. Það dugði til þess
að þeir fengu hljómplötusamning.
Næsta smáskífa þeirra hét Oppor-
tunities en hún gekk engan veginn
nógu vel. Þá tóku þeir upp á því að
hljóðblanda West End Girls upp á
nýtt og ætluðu að gefa lagið út á
ný. Það voru þó Ijón í veginum,
ráðamenn í hljómplötufyrirtæki
þeirra voru ekki alveg á sama máli
og þeir tveir. Þeim tókst þó að hafa
sitt fram ogeiga menn í hljómplötu-
fyrirtækinu líklega ekki eftir að sjá
eftir að hafa látið undan því lagið
fór á topp bandaríska og breska
smáskífulistans og einnig á toppa
flestra lista í Evrópu. Síðan fylgdu
á eftir lög eins og Love Comes
Quickly, Opportunities, Suburbia
og breiðskífurnar Please og Disco
(sem inniheldur 12" útgáfur af smell-
um þeirra).
Þeir líta á sjálfa sig sem ósköp
venjulega stráka, ekki sem einhvers
konar stjörnur. Hér eru smábrot úr
viðtali við þá félaga:
- Nú hafa margar hljómsveitir
tekið sér rúmlega árs hlé og svo snú-
ið aftur (samanber Spandau Ballet,
Frankie. . . og fleiri). Haldið þið að
Pet Shop Boys komi til með að gera
það sama?
Neil: Það er ekki svo slæm hug-
mynd. Eg held að margir bíði með
meiri eftirvæntingu eftir plötu frá
hljómsveitum sem hafa verið í hléi
vegna þess hve langt er síðan heyrð-
ist í þeim síðast.
Hvað finnst ykkur um þessar
nýju hljómsveitir sem eru að koma
fram, til að mynda A-Ha og fieiri?
Neil: A-Ha er góð popphljómsveit
og ég kann vel við hvernig Morten
notar röddina.
Finnst ykkur að fólk sé að bíða
eftir að eitthvað „stórt“ gerist í
poppheiminum?
Neil: Ég veit ekki, það er mjög
sjaldgæft að eitthvað mikið gerist.
Ég býst við að nýrómantíska stefnan
hafi verið það síðasta sem ,,gerðist“
en það var ekkert miðað við pönkið
sem hristi vel upp í öllu. Núna fer
allt eftir einhverri formúlu, um leið
og einhver er kominn með smell
kemur sá hinn sami fram í ákveðn-
um sjónvarpsþáttum, veitir viðtöl
við ákveðin blöð og svo framvegis.
Ef velgengni Pet Shop Boys
heldur áfram, sjáið þið þá fram á
að lifa eftir þessum hefðbundna
rock'n'roll lífsstíl?
Chris: Nei, við erum ekki þannig.
Neil: Við erum mjög ólíkir þeim
stíl, við erum greinilega í röngu
starfi hvað þessu viðkemur.
Chris: Við komum ekki einu sinni
nálægt börunum á hótelherbergjum
okkar, en núna eru komnar nokkrar
hljómsveitir sem eru á móti öllu
svona löguðu og þeim fer fjölgandi
svo við erum ekki alveg sér á báti
með þetta.
NAFN: Neil Francis Tennant.
FÆDDUR: lO.júlí 1959.
HÆÐ: 184cm.
HÁRALITUR: Svartur.
AUGNLITUR: Blár.
Neil Tennant er 27 ára. Áður en
hann hitti Chris hafði hann verið í
hljómsveit sem kallaðist Dust en
starfaði sem blaðamaður hjá bresku
tónlistartímariti. Helsti galli hans er
ráðríki en helsti kostur hans er ör-
læti. Það sem hann hræðist mest er
að lokast inni í lyftu.
NAFN: Christopher Sean Lowe
FÆDDUR: lO.október 1965
HÆÐ: 179cm
HÁRALITUR: Svartur
AUGNLITUR: Brúnn
Chris Lowe er 21 árs. Eins og
Neil hafði hann bara verið í einni
hljómsveit. Sú kallaðist One Under
the Eight. Hann var að læra arki-
tektúr en hefur gefið það nám upp
á bátinn í bili. Hans stærsti galli er
hve skapstyggur hann er en helsti
kostur hans er góð kímnigáfa. Það
sem hann hræðist mest er að fljúga
og vera rændur. Þeir staðir á jarðar-
krinjglunni, sem hann kann best við,
eru Italía og New York. Að hans
sögn er mjög erfitt að vinna með
honum.
AÐDÁENDAKLÚBBUR:
Pet Shop Boys
c/o Parlophone Press Office
20 Manchester Square
London W1
England
BREIÐSKÍFUR:
Please
Disco
16. TBL VIKAN 27