Vikan


Vikan - 18.06.1987, Side 7

Vikan - 18.06.1987, Side 7
Frá Lúxemborg, hinu græna hjarta Evrópu. Hið græna hjarta Evrópu hefur Lúx- emborg gjama verið kölluð. Orð að sönnu því borgin, sem og landið allt, er iðjagræn og falleg og þaðan liggja leiðir til allra átta um meginland Evrópu. Mjög hagstætt er að fljúga til Lúxemborgar og taka þaðan lest eða bílaleigubíl á fyrir- hugaðan áfangastað eða bara eitthvað út í bláinn. Ekki þar fyrir að nauðsynlegt sé að þeysa eitthvað út í bláinn þegar komið er til Lúxemborgar því það land leynir á sér. Það er sannarlega þess virði að staldra við og njóta þeirra ijölbreyttu möguleika sem landið býður upp á - og ef út í það er far- ið stendur Lúxemborg fyllilega undir nafni sem endanlegur áfangastaður... Lúxemborg á sér þúsund ára sögu eða frá því grunnur var lagður að sjálf- stæðu ríki þar árið 963. Áður liöfðu ýmis nágrannaríki sem og Rómveijar skipst á um yfirráðin á þessu landsvæði. Árið 1354 var síðan landið gert að því stór- hertogadæmi sem það er enn í dag en stjómendur annarra ríkja héldu áfram að eigna sér skika og ráðskast með það allt fram á þessa öld. íbúar landsins em í dag rúmlega 360.000, þar af um 30.000 útlend- ingar. Alls búa þar um 80 íslenskar íjöl- skyldur eða um 355 einstaklingar. Opinber tungumál eru franska, þýska og lúxemborg- íska en flestir tala ensku að einhvetju leyti. Helstu atvinnuvegir em iðnaður, land- búnaður og vínrækt. Vegna legu landsins hefur það orðið fyr- ir valinu sem aðsetur höfuðstöðva ijöl- margra ráða, nefnda og sameignarfyrirtækja Evrópuríkja, eins og European Center. Þar er og mikill fjöldi erlendra banka og mikið um alþjóðlegt ráðstefnuhald. Verslun og þjónusta er blómleg og verðlag nokkuð hagstætt. Lúxemborg er sérkennilega falleg borg, staðsett á klettum að hluta. Eiginlega er hún byggð á nokkrum hæðum því í gegnum borgina bugðast þröngir dalir og af brúm, sem liggja yfir þá, horfir maður niður á húsþök, garða og skóga. í klettaveggjunum em ótal minjar frá fyrri tíð, hellar og göng, sem nýttust vel til að verjast óvinum. 25. TBL VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.