Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 39
Guðrún Guðmundsdóttir og Þóra Einarsdóttir félagsmálafulltrúi.
í góðu
andrúmslofti með
öldruðu fófld
Það var hlýlegt og notalegt andrúmsloft
sem mætti okkur, ásamt henni Þóru Einars-
dóttur, er við gengum inn í íbúðir aldraðra á
Melabraut 3-5 á Seltjarnarnesi.
Þóra, senr er félagsmálafulltrúi þar, bauð
okkur hjartanlega velkomnar og fylgdi okkur
inn til gamla fólksins þar sem það sat.við
tómstundaiðju. Sköpunargleðin skein úr
hverju andliti. Okkar beið kaffi og meðlæti
og það ekki af verri endanum, þessar líka frá-
bæru kökur sem Hjördís húsvörður hafði
bakað. Þar sem við sátum í eldhúsinu og
gæddum okkur á finiríinu kom eldri kona i
gættina, ávarpaði Hjördísi og sagði: „Mikið
ertu nú alltaf sæt, elskan, þú ert svo brún og
falleg!" Og með þeim orðum fóru þær út úr
eldhúsinu.
Þóra sagði okkur frá því að á sumardaginn
fyrsta hefði verið haldin sýning á munum sem
unnir hafa verið af íbúum hússins ásamt öðr-
um öldruðum sem koma af Nesinu, 67 ára
og eldri. Aldraðir íbúar á Seltjarnarnesi eru
um 250 talsins.
Á sýningunni var margt fallegra muna, það
sýndu ljósmyndir sem við fengum að skoða.
Sérstaka athygli okkar vöktu bastkörfur með
loki, fóðraðar með glansefni, hinireigulegustu
gripir. Dúkar voru þar í öllum stærðum og
gerðum, með handmáluðum rósum. Þegar við
vorum búnar að dást að öllum þessum fallegu
hlutum var okkur boðið að skoða íbúð Guð-
rúnar Guðmundsdóttur sem hefur búið á
Melabrautinni frá_ því að húsið var tekið í
notkun árið 1982. I samtali við Guðrúnu kom
fram að hún hefur búið á Nesinu í mörg ár
og sagðist ekki geta hugsað sér að búa ann-
ars staðar. íbúð Guðrúnar er tvö herbergi og
eldhús og öll hin vistlegasta.
í spjalli okkar við Þóru kom fram að sum-
um íbúunum finnst þeir of ungir til að vera
þarna og nýta sér ekki þá þjónustu sem þeim
stendur til boða. Þeir eru sjálfstæðir og eins
og hverjir aðrir íbúar í fjölbýlishúsi.
„Hér er aðstaða fyrir alla þá aldraða sem
kæra sig um. Á fimmtudögum er spilað og
tvisvar í viku er föndur. Margt fleira stendur
þeim til boða, ýmis þjónusta eins og hár-
greiðsla og fótsnyrting, leikhúsferðir og styttri
og lengri ferðir. Heimsókn til forseta Islands
vakti sérstaka ánægju og gleði. Fjölmennt
þorrablót var haldið þar sem aðstandendur
og fleiri fjölmenntu og voru þar um hundrað
manns samankomnir.
Nýlega var tekið í notkun húsnæði í kjall-
ara sundlaugarbyggingarinnar þar sem boðið
er upp á heilsurækt undir leiðsögn íþrótta-
kennara.
Fólkinu stendur til boða að kaupa tilbúinn
mat en það vill helst elda sjálft ef það mögu-
lega getur. Þetta er eiginlega ekki byggt upp
fyrir fólk sem er veikt. Ymsa aðstoð veita
tvær konur í fullu starfi, ein í hálfu starfi og
þrjár í hlutastarfi. Vanti lækni eða hjúkrunar-
fræðing er stutt i heilsugæslustöðina. Rauði
kross íslands gaf íbúunum sérstakt sjúkrabað-
ker með lyftibúnaði og hjólastól og hefur það
komið sér mjög vel. Hægt er að veita öllum
þjónustu sem þéss þurfa og hér eru engir bið-
listar. Þetta er eins og lítið bæjarfélag úti á
landi. Sú þjónusta sem bæjarbúar fá frá
Reykjavík er ekki ókeypis. Við Seltirningar
greiðum fyrir þá þjónustu sem við fáum, til
dæmis strætisvagna, slökkvilið og sjúkrabíla."
Þóra hafði orð á því að Seltirningar væru
almennt sérstaklega félagslyndir og taldi upp
ýmsa klúbba og félög. í byggingu eru tuttugu
og tvær íbúðir við hliðina á Melabraut 3-5
en þar eru sextán íbúðir og af þeim eru fjórar
leigðar út en hinar eru í eigu íbúanna sjálfra.
Er við minntumst á andrúmsloftið góða sem
þarna ríkir, sagði Þóra að Hjördís húsvörður
ætti veigamikinn þátt í því. Og þegar við
þökkuðum fyrir okkur og kvöddum þetta
prýðisfólk á Melabraut 3-5 á Seltjarnarnesi
hljómuðu orð Þóru Einarsdóttur í eyrum
okkar: „Hér er unnið af krafti."
Föndrað af kappi.
25. TBL VI KAN 39