Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 27
um. Þettu varekki að ástæðulausu
því þeir komu i veg fyrir margar
sprengingar og náðu mörgum
h ry ðj u verk a mön num.
Það gerðist reyndar svolitið
skemmtilegt í sambandi við lögg-
una. Einu sinni var Gunnar að
mynda mig í almenningsgarði í
voða dularfullu gervi. svörtu
dressi með lepp fyrir öðru auganu.
stóra keðju um hálsinn og leik-
fangabyssu í hendi. Skyndilega
komu að okkur tjórir alvopnaðir
lögreglumenn til að kanna málið
og hættu ekki fyrr en þeir voru
búnir að tæma knallhetturnar úr
byssunni og skipa Gunnari að
stinga henni í vasann. Eftir á
þakkaði ég mínum sæla að hafa
ekki óvart miðað byssunni á lögg-
una. En stærsta sjokkið. sem ég
lékk þarna úti, var þegar ég kom
heim eitt kvöld og steig út úr lyft-
unni á sjöttu hæð. Þá kom að
mér svona hræðilega tötraleg ung
kona og bað mig um peninga.
Mér brá svo mikið að ég bara
hljóp að dyrunum. með konuna
hangandi á mér, en náði þó að
komast inn og skella í lás. El'tir á
var ég alvcg miður min og sá eftir
að hal'a ekki gellð henni eitthvað,
en hugsaði svo að kannski hefði
það ekki borgað sig þar eð hún
vissi livar ég átli heima.
Öll sú reynsla. sem ég upplifði
þarna úti. er ekki síðri lærdómur
en ár á skólabekk. lyrir nú utan
það að sjá hvað við íslcndingar
höfuni það raunverulega gott. Eg
vil hvetja alla sem eiga kost á ein-
hverju svona tækifæri að nýta sér
það. þó ekki sé nema til að öðlasl
meiri þroska og reynslu."
Ilvað tekur næst við hjá þér?
..Eg verð úti i Þýskalandi með
kæraslanum mínum i sumar, en
hann er búinn að fá starl' við að
lcmja hesla. Við j'áum litla íbúð
réll fyrir utan llamborg og mein-
ingin er svo að rcyna að komasl
inn hjá einhvcrri umboðsskrifslof-
unni. I haust kem ég svo heitn til
að l'ara í skólann og vonandi klára
stúdentsprófið í dcscmber. El'lir
það ræðst bara hvað gerist.
kannski held ég ál'ram barátlunni
i módelbransanum cða þá ég l'er
i hjúkrun eins og ég hef lengi ætl-
að mér. Og hver veit nema ég
geti tekið báða kostina einhvern
tím.iV"
Tvær myndir sem Gunnar Larsen tók fyrir tískublað sitt, Gunnar International
Dularfull meó lepp og keöju — vakti grunsemdir lögreglumanna,
25. TBL VIKAN 27