Vikan


Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 29

Vikan - 18.06.1987, Blaðsíða 29
VIKAN OG TILVERAN Rífuin mistökin Einu sinni var lítill bær. í litla bænúm voru lítil, snotur hús sem mynduðu vinalega heild. Dag einn komu stórhuga menn með vit frá útlöndum og byggðu þar nokkur stór og voldug hús en stækkuðu önnur með nýstárlegum viðbygging- um. Litli bærinn fékk smám saman á sig heimsborgarlegri svip. En ekki voru allir bæjarbúar jafnsáttir við þessar breyt- ingar og kölluðu sumir nýju byggingarnar mistök. Þar kom að öðrum stórhuga mönnum, líka með vit frá útlöndum, fannst bærinn orðinn ögn sundurleitur og vildu aftur fá fallegan heildarsvip. Þingað var um málið fram og til baka og komu jafnvel upp hugmyndir um að rífa mistök- in, þau væru orsök ósamræmisins. En auðvitað vissu mennirnir með vitið betur. Rífa skyldi gömlu, þreyttu húsin, þau væru orsök ógæfunnar, og byggja ný. Þar skyldi sýnt og sannað enn betur en áður hversu fjölbreytileg byggingar- list bæjarins er. Svona einfalt er þetta. Skítt með það þó verið sé að rífa einhverja „menningar- arfleifð“, enda er hún eitthvað svo hallærisleg hér miðað við samskonar fyr- irbæri í útlöndum. Um að gera að byggja fleiri nýtiskuleg hús og hallir svo útlend- ingar haldi ekki að hér hafi búið ein- hverjir molbúar fyrr á árum. Fyrir nú utan þá staðreynd, sem einn arkitekt benti svo réttilega á í útvarpsviðtali fyrir nokkru, að ef ekkert má byggja og sí- fellt er verið að gera upp gömul hús. þá er lítið fyrir arkitekta að gera. Allir hljóta því að vera sammála um að hér sé um brýnt þjóðþrifamál að ræða. Ekki má vísvitandi stuðla að atvinnuleysi arki- tekta, okkur ber skylda til að leyfa þeim að æfa sig á hinum ýmsu stílbrigðum byggingarlistar. Þeir verða líka að fá að byggja sína Morgun- blaðshöll og sína nýstárlegu viðbyggingu einhvers staðar. En gamanlaust, hvað er það sem liggur að baki ákvörðun- ar um óbætanleg skemmdarverk eins og fyrirhuguð eru á Kvosinni svokölluðu? Skammsýni eða peningar? Gefa þessir menn virkilega skít í menningu forfeðra okkar eða eru lóðirn- ar of verðmætar fyrir gamalt timbur? Allavega trúi ég ekki að ástæðan sé aðeins sú að borgaryfirvöld beri hag arki- tekta svo mjög fyrir brjósti. Ég vil heldur ekki trúa að skemmdarverkasinnar séu svo gjörsneyddir þjóðernisvitund að þeir séu tilbúnir að fórna sögunni vegna þrýstings ein- hvers staðar frá. Því er það með ólíkindum að menn skuli finna hjá sér hvöt til að rústa þessum gamla bæjarkjarna sem enn stendur og gefur örlitla mynd af upphafi Reykjavíkur- bæjar. Flestir borgarbúar hafa hingað til borið hlýhug til þessara gömlu húsa og skynjað þar fortíð sína og ég er sann- færð um að það er almennur vilji fyrir vernd þeirra. Fyrir alla muni komum í veg fyrir þá eyðileggingu sem Kvosar- skipulagið er og síðar verður hörmuð. Leyfum gömlu húsunum að standa og setjum fjármagn í að gera þau upp, eins og aðrar siðmenntaðar þjóðir hafa borið gæfu til að gera. Þar með varðveitum við örlítið af séreinkennum okkar byggingarsögu og sitjum ekki eingöngu uppi með ópersónu- legar nýbyggingar. Komum í veg fyrir að borgaryfirvöld samþykki Kvosarskipulagið, okkur ber siðferðileg skylda til að hlúa að gömlum minjum og skila þeim til afkomenda okkar. Við höf'um akkúrat ekkert leyfi til að eyða þeim. Rökin fyrir nauðsyn á stækkun miðbæjarins (með nýjum og stærri húsum) eru engan veginn raunhæf. Kvosin hvorki þarf né ber meira umfang en er nú þegar og þar hjálpa niður- grafnar bílageymslur lítið. Verslunar- og þjónustukjarnar eru að rísa á öðrum stöðum í borginni og nágrenni og þeir létta miklu af miðbænum. Miðbærinn aftur á móti, í endurbættri núverandi mynd, verður vin að sækja í, hvíld frá kuldaleg- um steinsteypuhöllum. Húsin á Bernhöftstorfu ættu að vera skýrt dæmi um hvernig stórslysi var af- stýrt og hver vildi vera án þeirra nú? Torfusamtökin og almenningur í landinu börðust fyrir__vernd húsanna og það tókst. Grjótaþorpið átti að fjúka en er smám saman að taka á sig vinalegan heildarsvip með endurbótum húsa og umhverfis. Erfitt vefður þó að fyrirgefa þann glæp að rífa Fjalaköttinn, nær hefði verið að rífa aðalmistök miðbæjarins, Morgunblaðshöllina. En það eru flciri hús sem þarf að vernda, til dæmis Bei gs- hús við Skólavörðustíg. Sigurður Þór Guðjónsson skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið fyrir skömmu er nefndist „Björgum Bergshúsi“. Þar bendir hann á að Bergshús sé „mikilvægt frá sjónarmiði bókmennta- sögu, byggðasögu, persónusögu og almennrar menningar- sögu“ og varpar fram þeirri hugmynd að gera húsið að „minjasafni um manninn og rithöfundinn Þórberg Þórðar- son“. Heyr! Heyr! Sigurður fullyrðir líka réttilega í greininni að niðurrifsmenn gömlu húsanna í miðbænum „þurfi engar áhyggjur að hafa af orðstír sínum í framtíðinni. Hann mun aldrei deyja“. Kæru borgarbúar, komum í veg fyrir þau „frægðarverk", komum í veg fyrir að menn með annarlegar hvatir tortími fortíð okkar. Stöpdum saman um varðveislu hennar, bætum og byggjum upp hús forfeðra okkar. Gerum miðbæinn við Tjörnina að þeirri manneskjulegu vin í steinsteypueyðimörk- inni sem hann hefur alla burði til að vera. Rífum mistökin, forðumst að gera ný. Texti: Guðrún Alfreðsdóttir 25. TBL VIKAN 29
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.