Vikan


Vikan - 18.06.1987, Síða 26

Vikan - 18.06.1987, Síða 26
Dökk og dreymandi. franka á dag (um 13.000 íslenskar krónur) en þar af tók umboðs- skrifstofan 60%. Fyrstu nránuð- irnir eru yfirleitt hreinn kostnaður því í flestum tilfellum þarf að borga ljósmyndurunum fyrir myndatökurnar sem eru fyrir mann sjálfan og svo fara margir dagar, jafnvel vikur, i vinnuleit. En ég var ofboðslega heppin þvi Gunnar bauð nrér ókeypis myndatökur gegn því að hann fengi að nota myndirnar í blaðið sitt, Gunnar International. sem kemur út i júní. Hann sagði reynd- ar í gríni að það þyrfti að heita Thora International því blaðið væri fullt af myndum af mér. Gunnar reyndist mér alveg ótrú- Iega vel og eftir nokkra daga á hóteli bauð hann mér lítið her- bergi, alveg frítt, heima hjá sér og sambýliskonu sinni. Hann er alveg einstakur rnaður; ef hann tekur stúlkur upp á arma sína á annað borð hjálpar hann þeim eins og hann getur og það er hægt að treysta hverju einasta orði sem hann segir. Einu sinni fylltist íbúð- in hans í nokkra daga af stelpum frá ýmsum löndum sem voru að æfa í sýningunni hans og á meðan gisti Gunnar á vinnustofunni sinni.“ - Hvernig líkaði þér i París? „París er alveg yndisleg, algjör ævintýraborg, allt svo ólíkt því sem rnaður á að venjast. Það var gaman að vera þarna þegar allur gróður var að springa út í apríl og götulífið að lifna við, þá gat maður borðað úti undir berum himni seint að kvöldi. Lifnaðar- hættir eru svo allt öðruvísi, til dæmis fer fólk út að borða kvöld- mat alveg franr undir miðnætti, svo er ekki farið á fætur fyrr en um níuleytið og búðir ekki opnað- ar fyrr en unr tíu, ellefuleytið. Það er alveg æðislega gaman að sitja á útikaffihúsunum og bara virða fyrir sér fólkið, skoða mannlífið. Auðvitað kemur manni margt á óvart í svona stórborg og margt dapurlegt að sjá. Til dæmis voru vopnaðir lögreglumenn út um allt og maður þurfti að opna töskuna sína í hverri búð til að sýna að maður væri ekki með neitt hættu- legt. En maður vandist þessu, jafnvel því að sjá suma lögreglu- mennina vopnaða hriðskotabyss- 26 VIKAN 25. TBL

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.