Vikan


Vikan - 13.08.1987, Page 8

Vikan - 13.08.1987, Page 8
bærinn á Gufuskálum fór i auðn en „túninu grand- ar sandQúk i mesta lagi, svo að moka þarf að húsum eftir hvert norðan stórviðri". HÚSFREYJAN Á GUFUSKÁLUM Svo sleppt sé löngum kafla i merkilegri sögu Gufuskála er þess næst að geta að árið 1931 gaf Elínborg Þorbjarnardóttir, þávcrandi húsfreyja á Gufuskálum, út litinn, prentaoan bækling sem nefndist einfaldlega „Gufuskálar". Þar segir hún sluttlcga frá jörðinni en víkur síðan að sögninni um Gufu landnámskonu. Elínborg heldur því nefnilega fram að þrátt fyrir góðan efnahag íbúa á Gufuskálum sé eins og menn kinoki sér við búa þar vegna bölbæna Gufu. Vist sé að óvenjumarg- ir skipsskaðar hafi orðið þaðan; líklega farnir að nálgast annan tuginn. Síðan segir orðrétt: „Eg sem þetta rita er nú orðin ekkja á Gufuskál- um, missti mann minn i sjóinn, frábæran dugnað- armann, sem oft hafði róið aleinn og aflað vel, en í það sinn voru þrír menn með honum og fórust allir. Þessi missir minn, nam mér djúpt að hjarta, og voru það máske hinar fornu bölbænir, sem jörð- inni fylgja, scm komu mér til að kaupa þá jörðina, i þeirri von að ég gæti lagt eins miklar blessunar- bænir yfir jörðina og hafið, eins og hin gamla landnámskona lagði bölbænir, svo engin kona þyrfti framar á Gufuskálum að gráta mann sinn né sonu drukknaða á hafinu nær Gufuskálum." BLESSUNARBÆN ELÍNBORGAR Elínborg endar síðan mál sitt á bæn sem beint er gegn 1000 ára gömlum áhrínsorðum Gufu: „Þú hinn voldugi herra hafs og lands, Drottinn alls- herjar, blessa þú hafið og ströndina fyrir Gufu- skálalandi, svo að enginn sem héðan leitar á sjóinn verði fyrir grandi, né neinn sem leitar hér lands af sjónum farist. — Þín blessun hvili yfir hverjum kima og hverjum tanga landsins yfir hafinu og þeim, sem á jörðinni búa nú og framvegis, meðan land er byggt.“ Elínborg bjó á Gufuskálum til 86 ára aldurs eða til 1946. Ekki hefur verið róið þaðan til fiskjar eftir að hún missti mann sinn og ekki er vitað til að skipsskaði hafi þar orðið síðan. í túnfætinum hefur nú verið reistur bautasteinn til minningar um þessa óvenjulegu konu og bæn hennar. Með tilliti til sögu hennar á það einstaklega vel við að lóranstöðin skuli einmitt hafa verið reistt á Gufu- skálum; ef til vill færir það okkur heim sanninn um að blessunarbæn hennar hafi haft tilætluð áhrif. GÓÐKYNJAÐIR KRAFTAR Lóranstöðin var reist á sjötta áratug þessarar aldar og er hún hlekkur í lórankerfi á norður- hveli sem bandaríska strandgæslan á. Sambærileg- ar stöðvar cru meðal annars á Grænlandi, i Færeyjum og á Jan Mayen. Stöðvarnar senda frá sér sérstök hljóðmerki sem skip, flugvélar og bílar geta fundið staðarákvörðun sína út frá. Til þess er nauðsynlegt að hafa þar til gert móttökutæki og ná sendingum frá þremur lóransendum í einu. Lórankerfið gegnir mikilvægu öryggishlutverki þannig að þeir sem þess njóta geta vitað 'nákvæm- léga hvar þeir eru staddir enda þótt þeir sjái ekki út úr augum fyrir þoku eða hrið. Hvað sem or- kunni frá Snæfellsjökli líður má því til sanns vegar færa að frá Gufuskálum berist ósýnilegir en góð- kynjaðir kraftar. Húsin á Gufuskálum eru byggð eftir staðli strandgæslunnar og það skýrir hve yfirbragð stað- arins er ameriskt. Enda þótt strandgæslan greiði rekstrarkostnað stöðvarinnar er öll starfsemi hennar í höndum íslendinga og undir umsjón Pósts og síma. Nú vinna þarna 15 fastir starfs- menn, rafeindavirkjar og vélstjórar; 12 sem búa á staðnum en 3 sem koma frá Hellissandi. HIMINHÁTT MASTUR Vissulega er athyglisvert að bcra saman þá verk- kunnáttu. sem þurfti til að þurrka fisk i hinum aflöngu, fátæklegu hraunbyrgjum, saman við þann tæknibúnað sem þarfi nútímalóranstöð. Aförygg- isástæðum er að minnsta kosti þrefalt kerfi á fiestum búnaði lóranstöðvarinnar. Lóransendarnir eru til dæmis tveir og ef rafmagnið fer af eru tjór- ar dísilrafstöðvar tilbúnar að fara í gang og Ytri lendingin á Gufuskálum. Ef grannt er skoðað sést kjölfar í Stóruklöpp fremst á myndinni. framleiða rafmagn. Hins vegar er aðeins eitt send- ingarmastur. Það er hvorki meira né minna en 412 metra hátt og var hæsta mannvirki i Evrópu þegar það var byggt árið 1963. Það var því eícki að undra þótt mastrið teygði sig langleiðina upp i skýin þegar ekið var úr hlaði á Gufuskálum. Snæfellsjökullinn lá hins vegar ennþá undir móskulegri skýjasæng sinni, þögull um eigin hagi sem annarra. Kannski finnst honum nóg um þá ósýnilegu orku sem berst reglulega frá lóránstöðinni en kýs að hvílast sjálfur. Kristleifur Kolbeinsson, yfirvélstjóri á Guluskálum, sem hafði verið leiðsögumaður okkar þennan dag, vildi allavega ekki kannast við neina sérstrauma frá blessuðum jöklinum: „Ég held að það sé bara svona til að tala um á hátíðisdögum." 8 VIKAN 33. TBL

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.