Vikan - 13.08.1987, Blaðsíða 12
Samkomur Krossins eru mjög líflegar.
KROSSINN
Heimildarmaður:
Gunnar Þorsteinsson
í ágúst árið 1979 hóf lítill hópur fólks að
hittast á samkomum í þeim tilgangi að lofa
Drottin. Fólk þetta hafði áður hist í heima-
húsum og beðið saman til Guðs, sungið
honum lof og lesið Biblíuna. Síðan fyrsta
opinbera samkoman var haldin eru tæp átta
ár. í dag hefur starfsemi þessa litla hóps auk-
ist mikið og margir bæst við. Flestir upphafs-
mannanna eiga það sameiginlegt að hafa áður
verið starfandi i Hvítasunnusöfnuðinum.
Samnefnari yfir hópinn og starfsemi hans er
Krossinn. Segja má að Krossinn eigi rætur í
hvítasunnuhreyfmgunni. Söfnuðir þessir eru
sammála í mörgu en ágreiningsefni eru nokk-
ur. Sjálfur skilgreinir hópurinn sig sem hóp
af hressu fólki sem á þá ósk heitasta að þjóna
Guði í anda og sannleika.
I dag eru um 180 manns á skrá hjá söfnuðin-
um og sífellt bætist við að sögn forstöðu-
mannsins, Gunnars Þorsteinssonar. Flestir
meðlimanna eru ungt fólk.
Krossinn er kristið trúfélag. Þar er meginá-
herslan lögð á að allir fylgi Jesú Kristi og trú
á friðþægingardauða hans. Jesús Kristur er
vegurinn, sannleikurinn og lífið. Meðlimir
Krossins segja að aðeins fyrir trú á dauða
hans og upprisu geti menn hlotið eilíft líf.
Þetta telja þeir grundvallaratriði sem skilji á
milli kristinna manna og ekki kristinna. Einn-
ig trúa meðlimir Krossins því að myrkravöldin
og djöfullinn séu að verki úti í þjóðfélaginu.
„Herra þessa heims er djöfullinn,“ segir for-
stöðumaðurinn. „Djöfullinn er alls staðar að
verki. Það þarf ekki annað en að labba inn
á myndbandaleigu, horfa á sjónvarp eitt kvöld
eða skoða sig um á Hlemmi. Alls staðar blas-
ir sorinn við.“ Krossinn berst gegn myrkra-
völdunum. Þrátt fyrir að vakning sé hjá
djöflinum er einnig vakning hjá Guði. Þess
vegna þýðir ekki að gefast upp fyrir hinu illa
heldur mun Krossinn halda áfram að berjast
því samkvæmt Biblíunni sigrar það góða hið
illa að lokum.
Til þess að berjast gegn hinu illa rekur
Krossinn margháttaða starfsemi. Útvarps-
stjóri kristilegu útvarpsstöðvarinnar, ÖÍfu, er
meðlimur í Krossinum. Samtökin .vinna nú
að gerð sjónvarpsþátta í samvinnu við fleiri.
í bígerð er að koma upp hljóðveri í húsakynn-
um Krossins til að gera mögulegt að hljóðrita
hljómplötur með kristilegu efni. Útgáfustarf-
semi er rekin af félaginu. Biblíuskóli tekur til
starfa nú í haust og síðast en ekki síst má
nefna áfangaheimilið sem samtökin reka.
Áfangaheimilið var stofnað í mai siðastliðið
vor. Markmið heimilisins er að hjálpa þeim
sem villst hafa af réttri braut og beina þeim
inn á hinn rétta veg sem mörgum reynist svo
vandrataður. í flestum tilfellum er um að
ræða fíkniefnaneytendur á aldrinum 16 til 30
ára. Krossinn hefur átt samstarf við ýmsa
opinbera aðila í baráttunni gegn ávana- og
fikniefnum. Til dæmis hefur verið samstarf
milli samtakanna og félagsstofnana og heil-
brigðisráðuneytisins.
Starf samtakanna er fjánnagnað með fram-
lögum félagsmanna og með almennum fjáröfl-
unarleiðum, svo sem bösurum og jólakorta-
sölu.
Trúboð er ekki starfrækt skipulega hjá
Krossinum heldur kynna meðlimirnir ættingj-
um sínum, vinum og kunningjum starf og trú
safnaðarins. Þannig berst boðskapurinn
áfram, mann frá manni.
Meðlimunum eru ekki sett nein boð eða
bönn en aftur á móti reyna þeir sem í söfnuð-
inum eru að lifa eftir kristilegu siðgæði. Menn
drekka ekki áfengi, kynlíf utan hjónabands
samrýmist ekki skoðunum hópsins og fíkni-
efna á enginn að neyta. Ef einhver hrasar,
gerir eitthvað af þessu, er engum refsingum
beitt heldur reynir söfnuðurinn að beina við-
komandi inn á rétta braut og biður fyrir
honum.
Eitt af því sem kemur á óvart þegar komið
er inn á samkomur Krossins er form þeirra.
Krossinn á samkomusal í stóru húsnæði. Þar
eru mjög sérstakar samkomur haldnar.
Fremst í salnum má sjá hljómsveitargræjur
sem strax vekja athygli þegar komið er inn í
salinn. Á samkomunum er spiluð rokkuð
poppmúsík og önnur létt tónlist samhliða
hefðbundnum sálmasöng. Menn tala um að
þar mæti þeir Guði. Þeir fá trúarlega upplif-
un, syngja með, hrópa, kalla og dansa. Það
er því mikið líf og fjör á samkomunum þann-
ig að gestkomandi verður stundum nóg um
allan hamaganginn. Einnig er predikað á sam-
komunum en enginn einn einokar ræðustólinn
heldur geta allir safnaðarmeðlimir fengið
tækifæri til að tjá sig ef svo ber undir.
Krossinn víkur einnig frá siðum þjóðkirkj-
unnar með því að boða niðurdýfingarskírn
og skírn í heilögum anda með tungutali.
Meðlimir eru ekki skírðir sem börn heldur
verða þeir að vita hvað fer fram og láta skír-
ast af einlægri trú. Athöfn sem þessi, ásamt
giftingum og greftrunum, er framkvæmd af
forstöðumanni safnaðarins, Gunnari Þor-
steinssyni. Forstöðumaður þiggur laun frá
söfnuðinum fyrir starf sitt og er hann eini
fasti starfsmaðurinn.
12 VIKAN 33. TBL