Vikan - 13.08.1987, Síða 34
velt að hafa tónlistarþátt eftir að hafa
verið með blandaðan þátt en það reyndist
misskilningur. Ég bjóst við að geta tekið
það rólega og spilað plötur. En það kom
annað á daginn um leið og ég vann fyrsta
þáttinn. Ég fann að maður sjálfur og hlust-
endur sömuleiðis gera sams konar kröfur
til tónlistarþátta og annarra þátta. Að
vísu er maður betur settur að því leyti að
maður er á einu afmörkuðu sviði og þarf
ekki að elta efni út um borg og bý. Samt
sem áður er ekki nóg að spila tónlist og
blaðra eitthvað út í loftið. Þættirnir verða
að hafa einhvern heildarsvip. Það þýðir
ekkert að spila sinfóníu eftir Beethoven
og koma síðan með Sex pistols á eftir,
ekki nema það sé með ráðum gert og lagt
út af því. Svipmót þáttanna ræðst af
hversu langir þeir eru og á hvaða tíma
dags þeir eru. Þemaþætti er hægt að halda
uppi í klukkutíma en eftir tvo tíma nennir
enginn að hlusta. Fólk kemur ef til vill inn
í þættina miðja og veit ekki hvaðan á sig
stendur veðrið. Það er álíka mikilvægt í
þáttagerðinni og skriftum að fara vel af
stað og slá lipran botn í endinn. Upphafið
ræður úrslitum um hvort hlustandinn
hækkar í tækinu eða slekkur. Og loka-
spretturinn er það sem festist í minni
fólksins. Þetta þýðir þó ekki að unginn
úr þættinum megi vera kolómögulegur.
Það er með dagskrárgerð eins og kökuupp-
skrift eða matseld, það verður að blanda
efnunum rétt saman ef kakan á ekki að
falla og fáum dettur í hug að bera fram
fisk með brúnni sósu. Þrátt fyrir að þessir
þættir krefjist undirbúnings vokka þeir
ekki sífellt yfir hausamótunum á manni
eins og unglingaþættirnir gerðu. Nú læt
ég hverjum þætti nægja sína þjáningu.“
- Er dagskrárgerð þitt aðalstarf?
„Það hefur ekki verið það. Ég byrjaði í
þessu jafnhliða skólanum til að komast
undan samskiptum við Lánasjóð íslenskra
námsmanna. Hvað sem um launakjör rík-
isins má segja þá koma launin alltaf á
réttum tíma og það er nokkuð sem skiptir
máli þegar maður er í námi. Ég hef verið
í lausamennsku hjá útvarpinu í fimm ár
með hléum.“
- Hvað finnst þér um gagnrýni með-
al ykkar útvarpsmanna, er hún virk?
„Það er jafnmisjafnt og alls staðar ann-
ars staðar. Sumir biðja mann að hlusta á
sig og gagnrýna en aðrir taka ábendingar
óstinnt upp, þó svo að þeir geri sig seka
um hræðilega hluti. Þegar allt kemur til
alls held ég að naflaskoðunin mætti að
ósekju vera meiri.“
- Leggur þú þig eftir vönduðum
framburði?
„Ég reyni hvað ég get. En ég hef varast
að vanda mig of mikið því það fer óskap-
lega í taugarnar á mér þegar menn eru svo
uppskrúfaðir að þeir bíta í tunguna á sér
af harðmæli.“
- Liggur mikil vinna á bak við mús-
íkþætti eins og þá sem þú sérð um?
„Það ræðst af því sem maður er að fást
við í hvert og eitt skipti. Ef maður hefur
verið lengi með sama þáttinn verður þetta
rútína. Þó kemur stundum fyrir að maður
lokast og þá þýðir ekki að reyna. Afrakst-
urinn verður kannski ein blaðsíða á
klukkutíma sem telst slæleg frammistaða.
Þátturinn sem ég er með núna, Kvöld-
kaffi, er þess eðlis og á þeim tíma að hann
verður að vera þaulundirbúinn. Ég tek
hlustendur með mér í kvöldkaffi og leik
rólega tónlist. Ég held að svoleiðis þáttur
þurfi að vera vel og rækilega undirbúinn
af því að þeir sem á annað borð hafa út-
varpið opið eru að hlusta. Ég geri ráð fyrir
að hann höfði misvel til fólks. Sumir sperra
eyrun en aðrir heltast úr lestinni. Ég vona
að þetta sé þáttur sem hlustendur láta sig
einhverju varða, hvort sem það er með eða
á móti. A daginn skiptir ekki eins miklu
máli að vera með undirbúið handrit því
þá fer þátturinn inn um annað eyrað og
út um hitt. Fólk er jafnan við vinnu og
hlustar á útvarpið með öðru eyranu.“
- Maður hefur heyrt að grimmustu
húmanistar hafi orðið auglýsingasölu-
mennskunni að bráð og hugsi sem svo
að dagskrá, sem selur auglýsingar, sé
góð. Telur þú þessa hættu fyrir hendi
hjá útvarpinu?
„Vissulega er þessi hætta fyrir hendi.
Ég held að þetta sé hluti af því sem kemur
fyrir margan útvarpsmanninn. Þeir fara
að líta á útvarpið sem tæki þar sem þeir
eru að skemmta sér og „útvarpið, það er
ég. Ef mikið selst af auglýsingum merkir
það ég er stjarna." Þetta leiðir til þess að
þeir verða „sniðugri“ ef þættirnir eru þess
eðlis, nú, ef þetta eru alvarlegir þættir
verða þeir enn „alvarlegri" og málin eru
tekin fastari tökum. Því miður verð ég að
segja að þetta á við um Rás 2 ekki síður
en hinar stöðvarnar. Fjöldi fólks fer í út-
varpið vegna þess að því fmnst þetta
gaman. Auðvitað er það af hinu góða ef
fólk hefur ánægju af vinnunni og nauðsyn-
legt í þessu starfi. Einkaflippið má þó ekki
verða yfirgengilegt. Það verður að hlusta
eftir rödd hlustandans og taka gagnrýni
hans, ekki að hrista hausinn og segja:
„Þeir geta vel hlustað. Þetta er andskot-
ans nógu gott. Þetta er minn þáttur, ég
veit að hann er góður og þú ert bara eitt-
hvað ruglaður. Bölvað vanþakklæti alltaf
í þessum hlustendum." Viðhorf af þessu
tagi eru hættuleg og þáttagerðarmaðurinn
þar með fallinn í sömu gryfju og ég held
að hafi verið landlæg á Rás eitt meðan
hún var ein um hituna. Þá var pínt ofan
í okkur klassískri tónlist og einhverjum
hroðalegum erindum og fleiru sem vitað
var að fólk hlustaði ekki á heldur skrúf-
aði fyrir og setti kassettu í. Maður komst
ekki hjá að láta sér detta í hug að hugsun-
arhátturinn hefði verið: „Þetta skal ofan
í ykkur hvort sem ykkur líkar vel eða illa.
Ef þið viljið á annað borð hlusta á útvarp,
eruð menn með mönnum og þykist búa í
siðmenntuðu landi þá er það þetta sem
gildir. Þetta höfum við valið og það er
gott.“ Ég hélt fyrst þegar poppstöðvarnar
byrjuðu að þetta myndi breytast en það
er sama sagan þar. Það kemur kannski í
ljós í könnun að hlustendur vilja ákveðna
tónlist á ákveðnum tíma dags. En þá hitt-
ist þannig á að á útvarpsstöðinni er þáttur
með allt öðru sniði. Viðbrögð mannsins
verða: „Ég fer ekki að spila hér eitthvert
skallapopp. Mér finnst það svo ódýrt, ég
get miklu meira. Mín tónlist er miklu
menningarlegri og mannbætandi - skil
ekkert í fólki að vilja hlusta á þetta.“
Niðurstaðan verður sú að þátturinn breyt-
ist ekki hót. Maður hefur séð fólk falla í
þessa gryfju smátt og smátt því þegar fólk
byrjar er það að berjast við að standa sig
og fá að halda þessu áfram. Það spyr vini
og kunningja hvort hægt sé að hlusta á
þetta. Þegar í ljós kemur að þetta gengur
upp hættir naflaskoðunin."
- Fáið þið mikil viðbrögð frá hlust-
endum öðruvísi en í gegnum skoðana-
kannanir?
„Alltof lítil. Þó kemur fyrir að okkur
34 VIKAN 33. TBL