Vikan - 13.08.1987, Side 48
Vikan — handavinna
Heklaðar glasamottur og diskaservíettur
Umsjón og hönnun: Ragnheiður Gústafsdóttir
Ljósmynd: Valdís Oskarsdóttir
Mörgum er þannig farið að geta helst aldr-
ei setið auðum höndum. Fyrir þá er handa-
vinnan einkar góð. Prjónaskapur er mjög
almennur hér á landi enda góður siður sem
vonandi leggst aldrei af. Þar vinna saman
hugur og hönd eins og oftast við góða iðju.
Það er sjálfsagt ekki eins almenn iðja að hekla
eins og að prjóna en ekki síður gefandi eða
nytsamleg. I handavinnuþættinum erum við
nú með hekluppskriftir að glasamottu og
diskaservíettu sem til margs er hægt að nota.
Glasamottur má líka setja undir skrautvasa
eða muni til að hlífa viðkvæmum húsgögnum.
Diskaservíetturnar, sem við setjum á milli
diska, eru til mikillar prýði þegar efnt er til
veislu og skarta á því besta. Slíkar handgerð-
ar diskaservíettur voru mikið notaðar áður
fyrr og njóta nú aftur meiri og meiri vin-
sælda. Eins og með glasamotturnar eru
möguleikarnir margir með diskaservíetturnar.
Ef við setjum nokkrar saman getum við búið
til dúka af ýmsum stærðum. Við skulum snúa
okkur að uppskriftunum og myndunum sem
skýra að hluta verkið. Til frekari stuðnings
höfum við nokkrar skýringarmyndir til að
rifja upp undirstöðuatriði heklsins.
GLASAMOTTUR
CB bómullargarn, heklunál nr. 2.
Heklið 7 loftl. og myndið hring með
því að hekla 1 keðjul. í 1. loftl.
1. umferð: 2 loftl., 2 hálfst. í hring-
inn. Lokið umferð með 1
keðjul. í 2. loftl.
2. umferð: 6 loftl. * Hoppið yfir 1
loftl., 1 st. í næstu 1., 3
loftl. Endurtakið frá * og
lokið umferð með 1 keðjul.
í 3. loftl. (11 bogar).
3. umferð: Heklið í hvern boga 1
fastal., 1 hálfst., 1 st., 1
hálfst., 1 fastal.
4. umferð: 7 loftl. * 1 tvöf. st. í st.
frá fyrri umferð, 3 loftl.,
1 tvöf. st. milli 2ja fastal.,
3 loftl. Endurtakið frá *.
Lokið umferð með 1
48 VIKAN 33. TBL