Vikan


Vikan - 13.08.1987, Page 55

Vikan - 13.08.1987, Page 55
Heba Herbertsdóttir söm jörð - grjót og grasstrá - réðu ríkjum. „Jú, þær voru þarna. Þær höfðu komið í ár eins og alltaf áður,“ hugsaði konan með sér. Stundum á veturna, þegar litla húsið hennar í þorpinu var á kafi í snjó, hafði hún óttast að þegar hún kæmi hingað næst myndi hún ekki fmna þær. Hún hafði verið hrædd um að þær myndu ákveða að fara eitthvað annað eða gleyma þessum stað, hennar eigin einkavinir. En hún hafði haft á röngu að standa hingað til. Hún hafði aldrei getað skilið fólk sem talaði illa um þær og sagði að þær væru leiðinlegar, bæði í útliti og hvað hljóð snerti. Ein þeirra var nálæg núna. Konan brosti og hló við endur- fundina. Hvað hún var stórkost- leg, krían: mjúkar og ávalar línur hins gráa bols, hinir glæsilegu vængir, svört hettan og rauður goggurinn. „Ó, þú þokkafulla vera. Ó, elskulega vinkona. Vel- komin. Velkomin," sagði konan grátandi og breiddi út faðminn eins og hún ætlaði að faðma fugl- inn að sér. Hún horfði á flug fuglsins og hún eins og drakk í sig hreyfing- ar hans þar sem hann var kyrr í loftinu með hröðu vængjablaki, þá hin snögga dýfa og hið letilega svif upp á við aftur. Fuglinn end- urtók fiugsýningu sína hvað eftir annað. Full aðdáunar á þessari dásamlegu veru leit konan niður á sinn eigin þunglamalega líkama og fannst samanburðurinn órétt- látur. Eftir að hafa horft á fuglana og hlustað á fagnaðaróp þeirra opnaði hún töskuna og tók upp hádegisverð sinn. „Krí-krí,“ sungu fuglarnir og frelsisóður þeirra bergmálaði í sál hennar. Sólin skein og það var smáand- vari. Ró færðist yfir konuna. Munaður þessa græna hásætis og útsýnið yfir þorpið með sínu svarthvíta lífsmynstri mynduðu algerar andstæður, að henni fannst. Lengi vel, eftir að hún hafði lokið nesti sínu, naut hún sól- arylsins, einverunnar og þess að horfa á fuglana. í sátt við sjálfa sig og alheiminn sofnaði hún. En skyndilega hrökk hún upp. Það var farið að hvessa, skýja- bólstrar hrönnuðust upp við sjóndeildarhringinn og hún gat heyrt eitthvert framandi hljóð sem átti ekki heima í þessu um- hverfi. Hún reis upp við dogg, hallaði sér áfram og virti sléttuna fyrir neðan hólinn rannsakandi fyrir sér þar til hún kom auga á skæra liti á hreyfingu. Þegar deplarnir komu nær sá konan að þarna voru sjö börn á ferðinni. Um sama leyti gat hún greint söngl þeirra: „Krííjja, krííjja - þig á ekki að endurnýýjja." Hún mundi nú eftir þessu fábjánalega rími sem maðurinn hennar hafði kastað fram eitt vetrarkvöldið. Hann hafði kallað kríuna fugl sem færi í taugarnar á sér og það ætti að eyða henni. Margir af þorpsbúunum voru honum sam- mála. Hávaðinn óx og varð yfir- þyrmandi. Kríuóp barnanna blönduðust skerandi ópum fugl- anna eins og vopnabrak. Hún stökk á fætur, handleggir hennar flugu út frá síðunum og hún hrópaði: „Nei - nei!“ En vindur- inn feykti neitun hennar burt. Orrusta var háð á skerinu fyrir neðan hólinn. Börnin sjö, vopn- uð smásteinum, grýttu fuglana sem snerust til varnar með því að steypa sér yfir þau. Eitt barn- anna var í skærrauðri skyrtu. Konan mundi eftir að hafa straujað hana þá um morguninn fyrir yngsta son sinn. Hún sá hann beygja sig niður, rísa svo upp aftur, miða og kasta. Svo sá hún skotmark hans falla til jarð- ar. Reiðin ólgaði upp í konunni og fyllti hana. Hún gleymdi stund og stað og byrjaði að hlaupa en þrepahóllinn gerði henni erfitt fyrir. Hún datt endilöng, slengd- ist utan í brattann og valt niður þangað til hún að lokum stöðv- aðist. Hún opnaði hægt augun og eins og í þoku sá hún ung og hrædd andlit fyrir ofan sig. Hvers vegna störðu þau svona á hana? Þeirra var sigurinn hvort eð var. Hið svarthvíta hafði sigrað. 33. TBL VIKAN 55

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.