Vikan - 13.08.1987, Síða 61
Kjólar eru í sókn. Fatahönnuðir sækja fyrirmyndir til 6. áratugarins, nú
er það kvenleikinn sem ræður. Axlir eru berar, mittið mjótt og mjaðmirnar
breiðar. Allmargir teiknarar sýna eingöngu stutta kjóla, vafða frá brjósti nið-
ur að mitti. I þessar flíkur nota þeir silki eða taft I öllum regnbogans litum.
Bleikir, rauðir, sægrænir og fagurbláir tónar njóta hvað mestrar hylli. Innan
um stuttu kjólana leynast glæsilegir síðkjólar sem eru ermalausir, þröngir í
mittið og með stíf pils.
Síðustu árin hefur mikilvægi jakkans aukist jafnt og þétt og heldur sú
þróun áfram. Sniðin í ár eru úr öllum áttum; jakkarnir eru stuttir og síðir,
víðir og þröngir, kvenlegir og karlmannlegir. Erlendis hrífast menn mest af
millisíða jakkanum sem er ein helsta nýjungin á þessu hausti. Hann er mik-
ill um herðarnar, þröngur í mittið og víður um mjaðmirnar. Kraginn er
áberandi stór. Jakkinn er fleginn og hann er með breitt belti. Millisíðu jakk-
arnir eru efnismiklir; ýmist úr kasmírull, skinnum eða gerviefnum, og þeir
eru litskrúðugir: gulir, appelsínugulir, rauðir, bleikir og fjólubláir. Ekki má
gleyma fuchismalitnum en sá tónn er nýr af nálinni og nota fatahönnuðir
hann óspart í vetur. Helst mætti á íslensku kalla þennan lit kirsuberjarauðan.
Kápurnar eru á sínum stað. í ár renna fatahönnuðir augunum til austurs.
Þeir nota rússneska ofurstafrakka úr fyrri heimsstyrjöld og kósakkastakka
sem fyrirmynd. Þessar flíkur eru breiðar yfir axlirnar, þröngar í mittið, víðar
um mjaðmir og hné og ná niður á kálfa. Þær eru hnepptar til hliðar með
stórum tölum eða sylgjum. Flestar eru saumaðar úr kasmírull eða skinnum
sem svo aftur eru lituð appelsínugul, dumbrauð eða heiðblá.
Þótt flestir teiknarar noti skinn og ull eru gerviefnin að sækja á. I Mílanó
sýndi Valentino sæg af yfirhöfnum úr apaskinni, velúr og öðrum gerviefn-
um. Stuttu pelsarnir hans vöktu sérstaka hrifningu. Þeir minna á pelsa sem
þóttu mjög smart á síðari hluta 6. áratugarins. Þessar flíkur láta lítið yfir
sér. Þeirra aðalsmerki er fyrirferðarmikill, tvöfaldur kragi. Hins vegar eru pels-
arnir í öllum regnbogans litum. Eflaust rekum við augun í fagurgula,
skærgræna eða fjólubláa stuttpelsa hér í Reykjavík á vetri komanda.
Blússurnar víkja fyrir rúllukragabolum. Bolirnir eru einfaldir í sniði, flestir
I dökkum litum; gráir eða svartir. Þeir stinga óneitanlega i stúf við skæra
jakkana og skrautleg pilsin.
I vetur eru stórir og klossaðir skartgripir á bak og burt en í þeirra stað
getur að líta ýmiss konar slæður og hanska. Þá dregur úr mikilvægi herða-
púðanna. Þeir eru minni en fyrr. Aftur á móti halda flest tískuhúsanna tryggð
við breið belti og ólar og enn prýða alls kyns hattar og der kolla tískudrós-
anna.
33. TBL VIKAN 61