Vikan - 28.12.1987, Qupperneq 4
I BYRJUN VIKUNNAR
R.K. Anand sendiherra ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, formanni
Alþýðubandalagsins, og Trausta Eiríkssyn^ forstjóra Trausts hf.,
sem framleiðir m.a. hátæknibúnað fyrir fiskveiðiskip. Áhugi Ind-
verja á auknum viðskiptum við ísland mun hafa vaknað eftir
fúnd Ólafs Ragnars og Rajivs Ghandis forsætlsráðherra í haust,
þegar Ólafur tók við friðarverðlaunum indversku stjómarinnar
fyrir hönd Alþjóðlegu þingmannasamtakanna sem hann veitir
forstöðu.
Sendiherra Indlands:
„Er mjög bjartsýnn
um viðskipti
á milli landanna"
Sendiherra Indlands á íslandi,
R.K. Anand, serp hefur aðsetur í
Osló, heimsótti nokkur íslensk
fyrirtæki rétt fyrir jólin til að
kanna grundvöll fyrir auknum
viðskiptum á milli landanna.
Sendiherrann sagðist mjög hrif-
inn af íslenskri hátækni í tengsl-
um við sjávarútveg og sagði Ind-
verja hafa mikinn áhuga á að
hefja raunhæfar viðræður við ís-
lendinga um samstarf á sviði
fiskveiða. Indverjar hafa áætlan-
ir um að gera stórátak í að
byggja upp flota togveiðiskipa
til djúpsjávarveiða, en slíkar
veiðar eru enn mjög vanþróaðar
við Indland. Þar hafa íslensk fyr-
irtæki mikla möguleika á að taka
þátt, að sögn Anand sendiherra.
Sérfræðiþekking Islendinga á
jarðhitanýtingu gæti einnig leitt
til mikilla viðskipta á milli ís-
lands og Indlands, segir sendi-
herrann, þar sem Indverjar hafa
mikinn áhuga á að nýta sér eigin
jarðhitaauðlindir.
íslenskir hagsmunaaðilar
munu koma saman til fundar
um þessa nýju möguleika á við-
skiptum við Indverja þann 20.
janúar næstkomandi.
Aö kunna að tefla
Skákáhugi okkar íslendinga
er meiri en gengur og gerist
meðal nágrannaþjóðanna en
þessi áhugi getur stundum
tekið kúnstugar myndir.
Á Keflavíkurflugvelli er nú
áformað að bandarískir lög-
gæslumenn starfi við hlið þeirra
íslensku í þeim tveimur hliðum
sem eru inn á Völlinn. Þetta
fyrirkomulag sætti nokkurri
mótspyrnu af hálfu hinna ís-
lensku lögregluþjóna og var ein
aðalröksemd þeirra að hinir
bandarísku kynnu ekki að tefla.
Málið verður sennilega leyst á
þann hátt að ávallt verði tveir ís-
lenskir lögreglumenn í hvoru
hliði þannig að þeir geti áfram
stundað þetta tómstundagaman
sitt.
Þetta vandamál hefði senni-
lega ekki komið upp ef herstöð-
in í Keflavík væri rússnesk ...
ífnimanftsstauiin
VARÐSTÖO
LaixuLi
lULMILl
CMECKPOINT
Mtirt
i , mlöifs
Hér halda þelr Albert Erlingsson, stofnandi Velðimannsins,
og Paul O’Keeffe, einn eigandl búðarinnar, á forláta Hardy-
stöng en stöng þessi ber nafnið Iceland Special og er smíðuð
sérstaklega fvrir íslenskan markað.
Veiðimaðurinn flytur
Ein elsta sportveiðiverslun
landsins, Veiðimaðurinn,
sem stofnuð var af Albert
Erlingssyni í byrjun seinni
heimsstyrjaldarinnar, flutti
nýlega um set.
Verslunin flutti reyndar að-
eins um nokkra metra, frá horni
Tryggvagötu og Nausta að horni
Nausta og Hafharstrætis þar sem
áður var Ingólfsapótek. Húsa-
kostur verslunarinnar stækkaði
við flutninginn úr 70 fm í rúma
200 ffn, að sögn eigenda Veiði-
mannsins, Paul O’Keefe.
Paul O’Keefe, sem er Breti að
uppruna, hefur búið á íslandi
um margra ára skeið og að eigin
sögn er hann sjálfur ákafur
sportveiðimaður.
4 VIKAN