Vikan - 21.09.1989, Blaðsíða 6
TÓMLI5T
„Pser vilja fá eínhvern
sem enginn tekur eftir"
Þorsteinn Eggertsson textahöfundur rœðir við Jón Sigurðsson textahöfund
3
„Einsi kaldi úr Eyjunum", „Nína og Geiri“, „Vertu ekki a horfe svona alltaf á mig“,
„Komdu í kvöld" og „Ég vU £ara upp í sveit“ eru allt vel þekkt lög, sem gestir Broad-
way fa að heyra á skemmtun, sem tileinkuð er Jóni Sigurðssyni.
IParadísarheimt Halldórs Laxness segir
frá bóndanum Steinari í Hlíðum undir
Steinahlíðum. Hann átti einhvem
mesta gæðing sem feðst hafði á íslandi og
hann dundaði við það í hjáverkum að smíða
vandaðan kistil með svo flókinni tesingu að
hann varð ekki opnaður nema með rím-
galdri. Sagt er að fyrirmyndin að þessari
söguhetju sé þjóðsagnapersónan Eiríkur á
Brúnum undir Eyjafjöllum. Á þeim sama bæ
feddist viðmælandi okkar, Jón Sigurðsson,
kallaður bankamaður, og ég er ekki frá því
að hann búi yflr einu og einu af einkennum
Steinars bónda, þótt hann fari fínt með það.
Hann hefur stundað rímgaldur, bæði til hug-
ar og handa, um áratugaskeið. Hann iauk
prófi frá Kennaraskólanum á sínum tíma en
gerðist þó aldrei kennari. Hins vegar var
það alger tilviijun að hann sótti um starf í
Búnaðarbankanum fyrir tæpum þrjátíu og
sjö árum og fékk starfið sem átti eftir að
verða ævistarf hans, eiginlega án þess að
hann vissi af því. Hann hafði verið atvinnu-
laus um skeið og var bent á að sækja um
starf í bankanum. Hann mætti í viðtal hjá
Hilmari Stefánssyni, þáverandi bankastjóra,
sem spurði hvort hann kynni að skrifa. Jón
hélt það og var látinn skrifa nafiiið sitt og
nokkra tölustafi. Síðan voru lagðar fyrir
hann faeinar spumingar og bankastjórinn
spurði hvenær hann gæti byrjað, ef svo feri
að hann fengi starfið. Reyndar væru margir
búnir að sækja um. Jón sagðist geta byrjað
hvenær sem væri. Bankastjórinn virti pÚtinn
fyrir sér og taldi rétt að sýna honum vinnu-
staðinn. Þegar þangað kom sneri hann sér
að einhverjum starísmannanna og bað hann
að finna eitthvað handa þessum pilti að
gera. Hann væri nýbyrjaður í bankanum.
Jón er þó betur þekktur fýrir tónlist sína
og texta en bankastörfin. Tæp tylft laga og á
þriðja hundrað texta eftir hann hafa verið
gefhir út á hljómplötum og hann hefúr spil-
að opinberlega á harmóníku, gítar og önnur
hljóðferi, ýmist einn eða með öðrum, í hálía
öld. Hann býr í glæsilegu húsi í Kópavogi
þar sem gengið er undir þéttvaxin trjágöng
að útidyrunum og á annað hundrað tegund-
ir blóma prýða firamhlið garðsins frá vori og
fram á haust. Hann sker út vandaðar myndir
og muni í tré í hjáverkum eða þá að hann
semur lög og texta þegar aðrir á heimilinu
eru famir að sofa. Hann hefúr sungið í reví-
um og um þessar mundir treður hann upp í
Broadway og spilar meðal annars á harmón-
íku með belgvettlingum. Maðurinn er ekki
allur þar sem hann er séður og ég hef ekki
Frh. á næstu opnu.
6 VIKAN 19. TBL1989