Vikan


Vikan - 21.09.1989, Page 13

Vikan - 21.09.1989, Page 13
stéttarlegum forsendum en það er ekki hægt að segja að Fuhrmann hafl verið fæddur með neina silfurskeið í munninum og þess vegna er honum ávallt mjög mikið í mun að sinna sínu starfi vel. Hann fórnar öllu fyrir starfið. En það sem gerist hjá honum er að ytri og innri sjálfsmynd hans ganga alls ekki saman frekar en ósamstæðir kubbar í púsluspili. Hans ytri sjálfsmynd er alfull- komin og honum er mikið í mun að við- halda henni, eins og auðvitað mörgu fólki er, bæði körlum og konum sem eru svo allt aðrar manneskjur innávið. Pað skapar alltaf óhamingju að geta ekki verið í beinu sambandi og sátt við sinn innri mann. Það er svo mikið til af fólki sem er að gera hluti sem því þykja ekkert skemmtilegir. Og ein frumforsendan fyrir því að geta verið í ein- hverju sambandi við sinn innri mann er að gera það sem mann langar til, þó vitanlega verði maður að gera kröfur til sín líka. Fuhrmann er „hæfilega valdafus" og þykir nokkur upphefð af stöðu sinni en það tekur þó ekki af honum ráðin. Sumir geta látið valdadraumana kynda undir í vinnu sinni og það gerir hann. Hann er ekki dæmigerður karlpungur sem ráðskast með alla af fullkominni eigingirni. Hann er alltaf að marka spor sem hugsjónamaður og góðmenni en fómar sjálfum sér og sínu einkalífi algerlega. Ég þekki margar konur sem eru Iíkar Níelsi að þessu leyti og sé sjálfa mig í þessu líka. Við erum öll að velja „Konur hafa þörf fyrir að láta karlmenn drýgja hetjudáðir11 „Svo koma önnur tímabil þar sem virðist vera samhengi og tilgangur í öllu.“ „f tilfinninga- samböndum getur fólk verið að refsa fyrir eitthvað sem hinn aðilinn er jafnvel búinn að gleyma.“ í þessa margumræddu forgangsröð enda- laust. Ég fékk alltaf meiri og meiri samúð með honum eftir því sem ég skoðaði hann lengur og ég dæmi hann ekki frekar en hana. Þær kröfur, sem gerðar eru til fólks í dag, til dæmis í starfi, em þannig að maður getur ekki alltaf sinnt því sem maður vildi helst á hverju augnabliki — þeim sem næst manni standa eða fólki sem manni þykir vænt um. Fuhrmann stendur frammi fyrir þessu allan tímann. Síðan em tilviljanirnar í lífinu svo einkennilegar. Allt líf Níelsar og Appolóníu er mjög illa tímasett, þar er alltaf allt á skjön. Þetta þekkir maður úr eigin lífi, stundum er eins og ekkert gangi upp og allt fari í kross en svo koma önnur tímabil þar sem er eins og allt smelli og það virðist vera samhengi og tilgangur í öllu. En hjá þessu fólki gerast hlutir samtímis sem geta ekki gengið saman. Þegar hún verður ófrísk um leið og hann fær sitt starf standa þau frammi fyrir tveimur kostum sem báðir em jafhslæmir. Ég á enga lausn fyrir þau sem er betri, því miður. Því á vissan hátt fyrirgefur hún honum aldrei þetta með barnið. í tilfinningasamböndum getur fólk verið að refea fyrir eitthvað sem hinn aðilinn er jafhvel búinn að gleymaþó fæstir myndu fást til að viðurkenna slíkt. Þetta finnst mér gaman að stúdera og skrifa inn í verk; þennan undirtexta sem er í tilfinningalegum samskiptum fólks og 19. TBL 1989 VIKAN 1 3

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.