Vikan


Vikan - 21.09.1989, Page 14

Vikan - 21.09.1989, Page 14
LEIKLI5T getur verið alveg ótrúlegur og gengur yfir bæði maka og vini. Bæði kærleikur og af- brýðisemi birtast í ótrúlegustu myndum og sjást alls staðar í samskiptum fólks — ekki bara í ástarsamböndum. Er einhver boðskapur í persónu Fuhrmanns? Auðvitað er ég að segja ákveðna hluti með Fuhrmann. Ég er að segja að maður eigi að taka afstöðu — á öllum sviðum. Maður á ekki að láta reka á reiðanum, hvorki í einkalífinu né í stærra samhengi. Maður á að sjá það sem er að gerast í kringum mann bæði í heiminum og hjá því fólki sem skiptir mann máli í lífinu. Er ekki hans afstaða að flýtur með- an ekki sekkur? Jú, og kannski er maður fyrst og fremst að sýna það. Jafhframt er ég að reyna að sýna fram á hvernig einn maður getur lent í þeirri stöðu að geta aldrei staðið við það sem hann vill. Ég reyni að blanda inn í þetta tilfinningalegu áreiti sem gerir það að verkum að hann verður lokaður og kaldur tilfinningalega. Hann er nánast óvirkur að lokum. Svona sambönd þekkir maður allt í kringum sig, fólk sem aldrei er í neins kon- ar jafhvægi í samskiptum við aðra. Fólk er læst í þessu mynstri alla ævi og kemst ekki einu sinni út úr þvi þó að það skilji. Það á í sífelldri valdabaráttu og hana sér maður vel hjá Níelsi og Appolóníu. Hún afvopnar hann á einhvern hátt sem enginn annar gerir. Er liann háður hennl kynferðis- lega? Hann er það, þó hann skammist sín að vissu leyti fyrir hvatir sínar og finnist losti á einhverju óæðra plani. Það tengist líka trúarbrögðum þeirra tíma og jafhvel því að hann er ekki þátttakandi í því þegar hún á og missir barnið, sem er mikill steinn á hans samvisku. Ég vil að það sé al- veg ljóst að hún er eina manneskjan sem hann raunverulega elskar. En það er hræðileg árás á hann, þennan passasama mann í peningamálum, þegar hún lætur dæma hann til að borga sér stórfé. Þetta hefur maður iðulega séð, hvernig fólk get- ur umturnast út af peningamálum og þau eyðilagt samskipti sem að öðru leyti eru mjög góð. Stendur Fuhrmann í stað tilfinn- ingalega? Þegar hann tekur íslensku telpuna að sér finnst mér hann vera að byrja að þroskast. Þetta hef ég séð hjá karlmönnum sem mér finnst alveg ótrúlega lokaðir, hvað þeir geta verið hreinir og beinir til- finningalega gagnvart börnum. Þá er engin valdabarátta og ekkert til að skammast sín fyrir og þá er hægt að gefa sig hreint og opið og það finnst mér Fuhrmann gera gagnvart Guðrúnu litlu; hún er hans eina von. Þegar hún svo deyr verður það enn ein refsingin og veldur því að hann lokast ennþá meira tilfinningalega. Að sumu leyti eru forsendur karlmanna til að ná tilfinningalcgum þroska miklu verri en hjá konum. En um leið sér maður „Maður á að taka afstöðu - á öllum sviðum." „Konurá framabraut sofa bara hjá einu sinni í mánuði og eru snöggar að því!“ þessar óveðursblikur nálgast okkur kven- fólkið líka vegna þess að konur eru komn- ar í þennan sama framadraum og eru farn- ar að velja sér lífsmáta og verkefhi í sam- ræmi við einhverjar ytri kröfur en ekki það sem þær langar til að gera. Þær verða svona smám saman líka. Það er mikið um konur sem eru í sömu aðstöðu og Fuhr- mann í dag — ganga í Cartier-drögtum með stresstöskur og látast vera eitthvað. Lestu bara silkitímaritin og viðtölin þar. Færðu mikil viðbrögð við Haust- brúði? Verkið virðist hafa snert einhvern streng í samskiptum kynjanna sem ég gerði mér enga grein fýrir. Ég gat ekki séð fyrir að samband Níelsar og Appolóníu myndi snerta fóik svona einkennilega. Ég hef verið í leikhúsi í tuttugu og fimm ár og oft verið í sýningum sem hafa gengið lengi og margir hafa séð en ég hef aldrei lent í eins miklum hávaðaumræðum um nokk- urn skapaðan hlut og þetta verk. Fyrir utan allt það fólk sem ég þekki þá er ég að tala um hvað það er merkilegt þegar fólk, sem ég þekki ekki neitt, kemur og hvíslar ein- hverju að mér um verkið mitt. Ég veit ekki hvort það skiptir tugum eða hundruðum. Ég hef vísvitandi spurt mjög margar konur hvort þeim finnist Fuhrmann ganga upp og engin þeirra hefur haft neitt við hann að athuga en nánast hver einasti karlmað- ur hefur komið með athugasemd um hann. Svo standa þeir gjarnan einhvers staðar til hliðar og horfa á mig eins og ég hafi svikið þá í tryggðum. Það er eins og allir karlmenn taki hann til sín og fái sekt- arkennd. Ég sagðist þurfa að skrifa þetta leikrit því að íslendingar hefðu tekið við samviskubiti Fuhrmanns, það hefði hrein- lega orðið eftir hérna — að það þyrfti að vinna úr því. Fólk þekkir og eitthvað í þeirra sögu og karlmenn virðast hver og einn taka það á sig að hafa svikið Appol- óníu. Svo eru einhverjir karlmenn að skrifa hér í blöðin um hvað Fuhrmann sé mikill drullusokkur að hafa ætlað að láta hana fara í fóstureyðingu. Mér er bara spurn: Hvaða hugmynd hafa karlmenn um sína kynbræður? Halda þeir að karlmenn viti ekki af öllum þeim fóstureyðingum sem eru ffamkvæmdar á konum sem þeir hafa barnað? Eru þetta allt saman drullusokkar, nánast hver einasti maður? Fóstureyðing er bara eitt af því sem fólk lendir í í lífinu og auðvitað setja þær sín spor á karlmenn líka, það er enginn vafi. En það vita hins vegar allar konur sem gengið hafa í gegn- um fóstureyðingu að þær eru aldrei sömu manneskjurnar á eftir, hvorki á sál né likama. Þess vegna er svo skrítið hvernig karl- menn vilja sjá sjálfa sig sem góða, hugaða menn með hetjulund en Fuhrmann sem drullusokk og þetta er ekki réttlátt. Karlar segja við mig að maður eins og Fuhrmann hljóti að vera miklu heilsteyptari! Mér finnst þó jákvætt að menn skuli hleypa þessu að sér, það er uppreisn í loftinu og menn skynja hana allt í kringum sig. Þetta eru menn á miðjum aldri sem ég er að tala um, viðbrögð ungra manna gagnvart verk- inu eru allt öðruvísi, það er ekki hægt að líkja þeim saman. Én þessir miðaldra menn sýna þó núorðið þá viðleitni að þeir eru að reyna að skoða sjálfa sig svolítið. Karlmenn fara í meðferð vegna ofdrykkju og fá meðferð við margs konar öðrum vandamálum. En þessi venjulegi íslenski maður sem drekkur bara í hófi og allt gengur sæmilega hjá á ytra borði; hvert á hann að fara? Hann þarf að lenda í meiri háttar vandamáli til að fara að stunda sjálfsskoðun og taka á sínum málum. Og mér skilst að það að fara til sálfræðings eða geðlæknis sé eitt almesta tabú sem íslensk- ir miðaldra karlmenn heyra minnst á. Heldurðu að kreppti karlmaðurinn sé séríslenskt fyrirbæri? íslenski karlmaðurinn er séríslenskt fyrirbæri, já. Ég er ekki að segja að konur vinni ekki margfalda vinnu en það er ógur- legur þrældómur á íslenskum karlmönn- um. Þrældómur lokar fýrir aðgang fólks að eigin tilfinningum og hvötum. Það er ekki einu sinni hægt að lifa kynlífi þegar fólk er gersamlega á hvolfi í vinnu. Þetta á ekki síður við um konur. Konur á framabraut sofa bara hjá einu sinni í mánuði, segja kannanir, og eru snöggar að því! Þörfinni til að sanna sig og marka einhver spor er ekki heldur hægt að fullnægja undir þess- um kringumstæðum og þá grípur ómeð- vituð getuleysishræðsla karlana. Konur þurfa ekki að burðast með slíkan ótta og þess vegna getum við orðið svo miklu grimmari. Sjáðu bara Thatcher. Mér finnst öll þessi pæUng ægUega Frh. á næstu opnu. 14 VIKAN 19. TBL 1989

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.