Vikan


Vikan - 21.09.1989, Blaðsíða 16

Vikan - 21.09.1989, Blaðsíða 16
0LEIKLI5T spennandi. Stundum held ég að ég sé bara svona stríðin. Mér finnst svo gaman að stríða karlmönnum og sjá hvað þeir þola. En ég vil ekki vera of grimm enda hef ég séð alltof mörg dæmi um það hvernig karl- menn bregðast við tapi, til dæmis ef konan fer ffá þeim. Karlmenn taka slíkt nær undantekningarlaust sem „ósigur". Og oft eru mestu tilfinningamennirnir á bak við hörðustu grímuna. Eiginlega finnst mér karlmenn alveg Ifábærir - þrátt fyrir allt! Og tryggustu vinir mínir hafa oftast verið karlmenn. Hvemlg sérðu fjölmiðlaumhverfið í dag? Hér hafa fjölmiðlar búið til fáránlegan glansheim. Maður sér risastór viðtöl við menn þar sem farið er í gegnum allt. Menn gefa margfalda, pottþétta mynd af sér; hvað þeir séu góðir menn, frábærir lista- menn, góðir við fjölskylduna, duglegir, fjölhæfir og Guð má vita hvað og lífið er bara afgreitt á fjórum litprentuðum síðum, innpakkað með slaufú! Það er gert upp við aíla og allt í eitt skipti fyrir öll. Menn sjá aldrei sjálfa sig í réttu ljósi í svona viðtöl- um. Ég var sjálf lengi blaðamaður og hef tekið viðtöl við stórstjörnur á borð við Miu Farrow og Margot Fonteyn og þetta er tilgerðarlausasta fólkið. Það er ekkert að trana sér fram, er bara eins og það er og ekki í neinni taugaveiklun út af því. En það þekkir allt fjölmiðlafólk til fólks sem liggur á því endalaust eða þá tegund sem alltaf þarf að láta ganga á eftir sér að koma í fjöl- miðla. Ert þú ekki í sömu liættunni og allir aðrir? Jú - og ég veit af því. En ég haft aldrei haft efrii á að taka sjálfa mig mjög hátíð- lega. Það var ekkert sjálfgefið fyrir mig að ég yrði leikritahöfúndur, hvað þá að ég myndi koma upp sýningu sem yrði svona vinsæl eins og þetta verk núna. En það sem vonandi bjargar mér er að hafa þurft að fara í hverja einustu tröppu — ég hef aldrei fengið að hoppa yfir neitt eins og margir fá að gera. Langflestir sem ég hitti núna eru mjög elskulegir og ég finn mikla hlýju frá fólki. Einstaka manneskja um- gengst mig eins og ég sé holdsveik og mér er svo sem alveg sama. Ég nýt þess þegar ég finn að ég næ til fólks en ég nýt ekki fjölmiðlafársins. Nútíminn er athyglissjúkur — fólk er að deyja ef það er ekki í fjölmiðlum vikulega, það er bókstaflega líkamlega veikt. Þetta fólk þarf nánast að láta „trappa" sig niður. Fjölmiðlarnir kynda auðvitað undir þetta. Ég verð að segja að mér leiðist þessi nýja fréttamennska mikið, sérstaklega allt þetta fólk sem er að leika að það sé ægi- lega hresst, það getur alveg drepið mig úr leiðindum. Að vera hress kemur innan ffá, eins og auðvitað allt. Mér finnst allt þetta fjölmiðlafrelsistal vera tómt rugl. Nú er búið að opna heilu útvarpsrásirnar fýrir sama fyrirbærið og gamli sveitasíminn var þegar allir lágu á línunni að hlusta á sveita- slúðrið. Fólk hringir inn til að tala nógu illa um nógu marga á nógu stuttum tíma „Lífið er afgreitt á fjórum litprentuðum síðum, innpakkað og með slaufu.“ „Það er engin lausn að hœtta bara í hassinu og verða fínn borgari úti í bœ.“" svo nógu margir heyri það og það er svo leiðinlegt! Þetta er eins og að lenda ofan í ruslatunnu hjá fólki — alger hryllingur! Og þetta er kallað frelsi! Finnst þér fólk af þinni kynslóð vera að velta heilindum sjálfsins fyrir sér? Ég held að við sem gengum í gegnum þessa mögnuðu upplausn, hippastandið, þegar lifið varð svo ofsalega einfalt allt í einu, og fórum síðan mörg hver út í ein- hvers konar uppastand, annað hvort til vinstri eða hægri, höfúm flest gleymt að spyrja sjálf okkur hvað sé aðalatriðið hverju sinni. Fyrstu viðbrögðin við ’68- byltingunni voru auðvitað að setja allt í röð og reglu. Fólk eignast dýrar eignir og allt er ógurlega fínt og pottþétt en málið er bara ekki þar með afgreitt. Fólk er ekki komið í gegn með sjálft sig. Fólk er búið að ganga í gegnum þessar stóru sveiflur og það eru fáir sem hafa tækifæri til að komast heilir í gegnum slíkt. Það er auðvitað eng- in lausn að hætta bara í hassinu og verða fínn borgari úti í bæ. Öll þessi velsæld og þessi pæling um metorð og eignir gefúr ekkert, þetta er í sjálfú sér dauði! Það get- ur aldrei orðið markmið í sjálfú sér að búa fallega og lifa vel. Það er bara dauði — ytra borð, eins og föt — ekki það sem skiptir meginmáli. Sama máli gegnir um metorð — þau gefa ekki neitt þegar þau eru orðin aðalatriðið. Þess vegna er Fuhrmann aldrei hamingjusamur, sama hvort hann er amt- maður eða hvað hann er. Hinu íslenska velsældarkjaftæði fylgir líka endalaus samanburður, andleg deyfð og gremja yfir einskis verðum hlutum. Þetta er líka spurning um innra sjálfstæði. Sjálf nenni ég ekki að gera mikið af því sem mér þykir leiðinlegt og ég tala nú ekki um eitthvað sem ég get heldur ekki gert nógu vel! Ég þarf á því að halda að íhuga mína eigin ytri og innri mynd. Af og til helst ég ekki við í Reykjavík, þarf að fara langt upp í sveit. Stundum næ ég í sjálfa mig suður við Mið- jarðarhafið eða einhvers staðar ein í skafli uppi í fjöllum. í þessi heimsskaut flý ég þegar þessi íslenski horjarmur er að drepa mig. En ég kem alltaf aftur, ný og betri. Er það lausnin? Fyrir mig, svo langt sem hún nær. Spurningin er hvort nokkur lausn er til. Hver metur fyrir sig hvað er aðalatriðið. Hvað rekur fólk áfram — í listum, stjórn- málum, viðskiptum. Fólki er raðað í met- orðastigann, allt er þetta eins og kaka sem hefúr ekki nema tiltekinn radíus. Hver sneið sem ég fæ er tekin ffá þér og öfugt. Og mér dettur ekki í hug að halda því fram að svona séu allir nema ég sjálf. Svona hugsum við öll meira eða minna. Sumir miklu meira. Það er oft býsna gegnsætt, þegar fólk reynir að fela sig á bakvið fögur fýrirheit. En sem betur fer er líka fúllt af fólki sem reynir að verjast þessu, sem hef- ur hugsjónir og stendur ávallt í skuggan- um af verkum sínum. Svoleiðis fólk dýrka ég. Sem lítur ekki á velgengni og viður- kenningu annarra sem ógnun við sig. Og mér þykir óskaplega vænt um hvað marg- ar konur hafa skrifað mér eða hringt í mig út af leikritinu mínu. Nú spyrja sjálfsagt allir: Hvað ertu að skrifa núna? Ekkert. Efnið mun leita mig uppi, ekki ég það. Eins og Appolónía og Fuhrmann fúndu mig — ekki ég þau. Ég ætla að pína mig til að bíða svolítið. Það sagði við mig maður um daginn: „flýttu þér nú með ann- að leikrit á meðan það er markaður fyrir þig.“ Ég hef aldrei heyrt annað eins bull! Ég ætti nú ekki annað eftir en fara að skrifa leikrit af því að „það er markaður fyrir mig“. Kannski skrifa ég bara um amtmenn. Einn var Bjarni Thor. Hann var alger lúsa- blesi, þótt hann væri gott skáld. Hann bað þriggja formæðra minna, tvær voru Steph- ensen og ein Finsen, en þær höfðu sem betur fer allar vit á að hryggbrjóta hann. Við hliðina á honum var Fuhrmann bless- aður mjög „jafnréttur" maður. Bjarni þyrfti að komast á svið. Hvenær skrifarðu aftur leikrit sem gerist í nútímanum? Ég á eftir að skrifa svo mörg verk úr for- tíðinni fýrst. Ég er ekki ffá því að fólk leyfi persónum úr fortíðinni að ganga nær sér á sviði en nútímafólki. Og svo finnst mér fest skemmtilegt sem gerist eftir miðja síðustu öld. □ 16 VIKAN 19. TBL 1989
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.