Vikan - 22.03.1990, Qupperneq 8
Bretarnir Gerald Brosseau Gardner (vinstri) og Alex Sanders (hægri) eru upphafs-
menn nornahreyfinga tuttugustu aldarinnar. í dag er talið að rúmlega 30.000 manns
leggi stund á nornagaldur í Bretlandi einu saman.
andi hætti námi og flutti heim. Við bjugg-
um í ágætri íbúð í nágrenni skólans. Eg
réð ekki við að borga húsaleiguna eftir að
ég var ein og sá ekki fram á annað en að
þurfa að hverfa frá námi. En þegar neyð-
in er stærst er hjálpin næst. Ég rakst á
auglýsingu þar sem auglýst var rúmgott
herbergi með aðgangi að öllum þægind-
um. Leigusalinn reyndist vera elskuleg
eldri kona sem bauð mér herbergið fyrir
mjög sanngjarna leigu. Ég var í sárum
eftir skilnaðinn og hefði ekki getað staðið
undir þeim kröfum sem til mín voru
gerðar, hefði þessi góða kona ekki tekið
mig upp á arma sína í orðsins fyllstu
merkingu. Hún reyndist mérsem móðir.
Fljótlega fann ég að frá henni stafaði
óvenjumikill kraftur og hún virtist alltaf
eiga svör á reiðum höndum við öllum
mínum vandamálum. Svo var það eitt
kvöld að hún spurði mig hvort ég vildi að
hún kenndi mér nornafræði. Ég hélt satt
að segja að það hefði slegið út í fyrir
gömlu konunni en henni var fyllsta al-
vara. Ég ákvað að láta slag standa. Og á
ótrúlega stuttum tíma náði ég mínu fyrra
andlega þreki og gott betur. Þegar ég
lauk síðan námi var ég mjög efins hvort
ég ætti að flytja heim en reglan ráðlagði
mér eindregið að fara og stofna deild hér
á landi. Þetta hefur síðan þróast smátt og
smátt og nú erum við orðin níu í íslensku
reglunni. Tveir komu vígðir til landsins,
hin hafa vígst hér heima."
Hvað var það nákvæmlega sem þessi
norn kenndi þér?
„Eins og sagði þér áðan er þetta leyni-
leg regla þannig að ég get ekki farið út í
smáatriði. Á fyrsta stigi er nýnemum
kennt að beisla þá orku sem allir menn
búa yfir og nota hana sér til framdráttar.
Einnig er lögð rík áhersla á að efla sjálf-
stæði einstaklingsins. Eins og Aleister
Crowley sagði: „Sérhver maður og kona
er stjarna." “
Hvað hefur íslenska nornafélagið
starfað lengi og hvers konar fólk tekur
þátt í starfsemi þess?
„íslenska reglan hefur nú starfað í
rúmlega sjö ár. Eins og áður sagði eru
■ „Satan er ekki
óvinur mannsins
heldur líf, Ijjós og
unaður. Hann er
uppspretta alls þess
sem vert er að
sækjast eftir. Máttur
hans gerir menn
heila.“
„Gjör þú vilja þinn skal lögmálið allt“ eru
kjörorð íslensku nornareglunnar. Þetta
málverk heitir „ísis afhjúpuð“ og var mál-
að árið 1954 af Austin Osman Spare.
Austin Spare var um tíma náinn sam-
starfsmaður Aleister Crowley en þróaði
síðan sitt eigið iðkunarkerfi sem hann
nefndi Zos Kia Cultus.
níu fullgildir meðlimir i reglunni, þrír karl-
menn og sex konur. Flest af þessu fólki
hefur lokið háskólanámi og um helmingur
hópsins starfar sjálfstætt, það er rekur
eigið fyrirtæki eða þjónustu á sínu sér-
sviði. Við hittumst yfirleitt einu sinni í
mánuði til þess að stunda fræðin og einn-
ig í minni hópum ef sérstakt tilefni gefst
til. Samskipti okkar eru eingöngu bundin
starfsemi reglunnar. Einstaklingar innan
hópsins hittast aldrei yfir kaffibolla eða til
þess að fara saman í leikhús. Slíkt væri
brot á siðareglum félagsins. I Bretlandi er
talið að um 30.000 manns taki þátt í
starfsemi félaga sem eru af svipuðum
toga og íslenska nornareglan. íslenska
reglan er hins vegar mun lokaðri en sam-
bærilegar reglur erlendis, sem sést á því
að þetta er í fyrsta sinn sem minnst er á
íslensku nornaregluna opinberlega."
Þið voruð með mynd af geit og kross
sem var á hvolfi á miðju altari. Nú hefur
geitin lengi verið tengd hugmyndum
manna um djöflinn. Eru þið djöfladýrk-
endur?
„Nei, ekki í hefðbundnum skilningi
þess orðs. Hinn hyrndi guð, geitin, er
ævafornt tákn máttar og visku. Hún er
fyrir daga Krists. Kirkjan bjó síðar til hug-
myndina um djöfulinn og hafði hann með
horn og hala til að sverta geitina. Síðan
hefur fólk ruglað þessu saman. Við tign-
um guðlega veru sem Forn-Egyptar
nefndu Shaitan. Kristnir menn kalla hann
Satan og segja að hann sé andstæðingur
mannsins. Ekkert er jafnfjarri sanni. Sat-
an er ekki óvinur mannsins heldur líf, Ijós
og unaður. Hann er uppspretta alls þess
sem vert er að sækjast eftir. Máttur hans
gerir menn heila. Við höfnum kennisetn-
ingum sem gera menn bljúga og lífið
gleðisnautt. Allt annað er hræsni.“
Nú hef ég lesið um að kynlíf sé snar
þáttur í trúariðkunum norna. Eru kynmök
hluti af vígslum reglunnar?
„Kynlíf er eðlilegur þáttur ( mannlífinu.
Dýrin eðla sig aðeins til að auka kyn sitt
en við mennirnir höfum í árþúsundir not-
að kynlíf til annars og meira. Það er eng-
in tilviljun að kynlíf veitir flestum einstak-
lingum mikla lífsuppfyllingu því að í þeirri
fullnægju sem kynlíf veitir heilbrigðum
einstaklingi kemst hann í kynni við frum-
krafta sem hann getur ekki upplifað á
annan hátt. Við höfum lært að nota þessa
krafta á meðvitaðan og markvissan hátt.“
Þú svaraðir ekki spurningunni. . .
„Jú, kynlíf er mikilvægur þáttur í vígsl-
um og ýmsum öðrum helgisiðum regl-
unnar.“
En notkun skynörvandi efna?
„[ fræðsluefni reglunnar er fjallað ýtar-
lega um jurtir og ýmsar tegundir sveppa
sem nota má til þess að opna fyrir dýpri
vitundarsvið hugans. Við notkun þessara
jurta verður aö Krlgja ákveðnum reglum
ef vel á að fara. Ahrif þeirra eru stórfeng-
leg og geta verið hættuleg í sumum tilvik-
um. Sum þessara efna gera okkur mögu-
legt aö losa vitundina frá líkamanum og
ferðast á milli staða. Þetta hafa nornir
gert í aldaraðir. Til þessa má rekja hug-
myndir manna um að nornir fljúgi um á
8 VIKAN 6. TBL.1990