Vikan - 22.03.1990, Page 10
DULFRÆÐI
■ „í fræðsluefni
reglunnar er fjallað
ýtarlega um jurtir og
ýmsar tegundir
sveppa sem nota
má til þess að opna
fyrir dýpri vitund-
arsvið hugans. Sum
þessara efna gera
okkur mögulegt að
losa vitundina frá
líkamanum og
ferðast á milli
staða.a
öryggi, þægindi og betra heilsufar. En
þegar kemur að spurningunni um hin ei-
lífu sannindi og raunverulegt eðli manns-
ins duga vinnubrögð vísindahyggjunnar
skammt. Svörin við þess konar spurning-
um er ekki að finna í töflum, línuritum og
stærðfræðiformúlum vísindamannanna.
Flestir vilja láta kirkjunni eftir að fullnægja
æðri andlegum eiginleikum mannsins en
formfesta hennar og kreddur koma í veg
fyrir að hún sinni þessu hlutverki. Líkt og
maðurinn þarf að fullnægja sfnum frum-
þörfum, eins og til dæmis þörfum fyrir
fæði, klæði og húsnæði, þarf hann engu
að síður að fullnægja sínum sálrænu og
andlegum þörfum. A undanförnum árum
höfum við séð hvernig vaxandi hópur
fólks leitar andlegrar Iffsfyllingar í
straumum og stefnum af austrænum
toga, til dæmis jóga, taóisma og zen-
hugleiðslu. Þetta fólk er óánægt í samfél-
agsbyggingu sem er eingöngu miðuð við
efnislegar þarfir. Það léitar hins vegar
langt yfir skammt. Nornafræðin standa
okkur næst enda samofin vestrænni
menningu." □
Nútímanorn
helgar vé með
rýtingi sínum.