Vikan


Vikan - 22.03.1990, Síða 24

Vikan - 22.03.1990, Síða 24
Sigríður Unnur Jónsdóttir athugar rúm í herbergið sitt í versluninni Nýform í Hafnarfirði. að fyrsta sem blaðamanni lá á hjarta var að vita hvers vegna þau væru að láta ferma sig. Það stóð ekki á svörunum. „Við erum að staðfesta skírnina og ganga inn í kristinn söfhuð,“ sögðu piltur og stúlka nær einum rómi. Þar sem þau voru ekki í nein- um vafa um hvers vegna þau væru að fermast lá beinast við að spyrja hvort þau færu oft í kirkju. „Nei, það gerum við frekar sjaldan," sögðu flest. „Það er aðallega á jólunum," sagði einn pilturinn í hópn- um og hinir hlógu ffekar skömmustulega. Þá var spurt hvort ekki stæði til að bæta úr því þegar þau væru búin að ffæðast meira um kristindóminn hjá prestin- um og staðfesta trú sína op- inberlega. „Það getur vel verið,“ sagði einn piltanna. „Það veit ég ekki,“ sagði annar. „Það verður bara að koma í ljós,“ sögðu hin. „í mesta lagi einu sinni í mán- uði, jafhvel aðeins á fimm mánaða lfesti.“ Þá langaði blaðamann að fá að vita hvort þau færu með bænir og hvort þau gerðu það reglulega. ,Já, stundum,“ sögðu tvær stúlkur. „Af og til,“ sagði einn drengjanna og hin virtust gera það nokkuð reglulega. Höfðu þessi tilvonandi fermingarbörn verið við- stödd fermingu áður? Öll höfðu verið við fermingu áður, fyrir utan þrjú sem ekki höfðu verið við at- höfhina en farið í veisluna. Hvernig finnst hinum þessi athöfh? „Okkur finnst hún allt of þunglamaleg og við myndum vilja stytta hana til muna,“ sögðu flest. Aðstandendur allra ferm- ingarbarnanna ætla að halda þeim veislu og töldu flestir krakkanna að um fimmtíu til sjötíu gestum yrði boðið. Myndu þau halda upp á ferminguna á annan hátt en tíðkað er nú, ef þau mættu ráða? „Það væri hægt að gera margt annað ef til væru nægir peningar," sagði dökkhærð- ur piltur í hópnum. „Ég myndi vilja að allir krakk- arnir, sem fermast saman, færu til sólarlanda og þar væri haldið stórt og mikið teiti.“ Þetta leist krökkun- um vel á og fannst frumleg tillaga. „Hvers vegna getum við ekki farið í ferðalag saman eins og aðrir sem fara í skólaferðalög?“ sagði ein stúlknanna. Hvað finnst ykkur um áfengi í veislunni? Allir voru sammála um að vín passaði ekki í ferm- ingarveislum og tvær stúlk- ur sögðu að þær vildu alls ekki hafa það í sinni veislu vegna þess að það tilheyrði ekki við þetta tileftii. Blaða- maður sagði þá að vín væri drukkið í kirkjunni þegar gengið væri til altaris og spurði hvort það breytti engu um afstöðu þeirra til áfengis í veislunni. Því var svarað að bragði, að notkun vínsins þá væri af allt öðr- um toga en vanalega því þar væri um táknræna at- höfn að ræða og með því var umræðan um þetta mál- efni afgreidd. Hvað finnst tilvonandi fermingarbörnum um gjafir af þessu tileftii? Fyndist þeim rétt að þeim væri sleppt? „Ég sé ekkert að því að fermingar- börnum séu gefnar gjafir,“ sagði einn piltanna. „Það er ekkert athugaverðara en að gefa jólagjafir og aðrar gjafir," tóku þrjár stúlkn- anna undir. Hvað langar ykkur að fa í fermingargjöf, til dæmis frá þeim sem slá saman eða foreldrum ykkar, sem gefa ykkur dýrari gjafir en aðrir? Einn piltur í hópnum sagði að hann hefði þegar fengið fermingargjafirnar frá foreldrum sínum. „Þau gáfú mér skrifborð, kom- móðu og hillur og munu sennilega gefa mér eitt- Stefán Ingi, Jóhannes Bragi og Sigríður Unnur fyrir utan Víð- istaðakirkju í Hafnarfirði. 22 VIKAN 6. TBL.1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.