Vikan - 22.03.1990, Side 44
KVIKMYMDIR
Með Dennis Hoppeer í kvikmyndinni „Hoosiers“.
Gene Hackman var
ásamt bekkjarbróð-
ur sínum, Dustin
Hoffman, tilnefnd-
ur „sá leikari sem ólíklegastur
væri til afreka" af Pasadena
Playhouse, þar sem hann sótti
tíma í leiklist á miðjum sjötta
áratugnum.
Núna, liðlega 30 árum og
ótal hlutverkum síðar, benda
kvikmyndarýnendur á hann
sem dæmi um hinn fullkomna
ameríska leikara, leikara sem
nálgist næstum öll sín hlutverk
af slíkum skilningi að hann á
jafhauðvelt með að túlka stál-
iðnaðarmann sem eitilharðan
athafnamann.
Fyrir átján árum, á meðan
Hackman var að undirbúa sig
fyrir aðalhlutverkið í The
French Connection, sögu Will-
Margar
myndir sem
Gene
Hackman
hefur leikið
í hefur
hann ekki
nennt að
horfa á sjálfur.
iam Friedkin, var honum lýst í
tímariti nokkru sem....stórum
bangsa, náunga sem enn not-
aði unglingamálfar."
Ætla mætti að Hackman
hefði breyst með árunum. Er
hann fékk óskarinn fyrir túlk-
un sína á hinum hrjúfa og orð-
ljóta Popeye Doyle í The
French Connection varð hann
viðurkennd kvikmyndastjarna.
Ef nafh hans var að flnna við
miðasöluopin streymdu pen-
ingar til kvikmyndaíyrirtækj-
anna — og það vissi hann. Hann
fór að krefjast sjö tölustafa
upphæðar fyrir hverja mynd. í
slúðurdálkunum var sagt að
hann væri orðinn eins ákafur
og Garbo að halda einkalífl
sínu leyndu. Sagt var að Holly-
wood væri búin að eyðileggja
bangsann.
„Ég er engin
súperstjarna"
- segir hinn hógvœri Gene Hackman
KRISTINN JÓNSSON ÞÝDDI
Síst af öllu kemur þó Holly-
wood upp í hugann þegar
menn hitta Hackman. Hann er
með dálitla ístru og er óðum
að fá skalla. Sé honum óskað til
hamingju með myndirnar
fimm, sem hann lék aðalhlut-
verkið í á síðasta ári, ypptir
hann öxlum og segir: „Nú, ja
hérna, takk. Þetta er einstak-
lega fallega sagt.“
Sló seint í gegn
Sú staðreynd að Hackman
gerir sér far um að vera lítillát-
ur — að hann er til í að taka að
sér lítil hlutverk ef um góð
verk er að ræða (í mynd Warr-
en Betty, Reds, lék hann rit-
stjóra) — stafar ef til vill af því
að hann sló seint í gegn.
Hann var fertugur þegar The
French Connection, var gerð.
Hann rifjar upp kvöldið sem
breytti lífi hans, þegar hann
fékk óskarsverðlaunin. „Ég var
mjög taugaóstyrkur þegar ég
tók á móti verðlaununum," ját-
ar hann. „Ég man ekki einu
sinni hvað ég sagði."
Jafhvel núna neitar Hack-
man að viðurkenna þá stað-
reynd að það hafi verið leikur
hans sem gerði The French
Connection að sígildu verki.
„Ég tel í raun og veru að það sé
ekki svo mjög mér að þakka
hve vel tókst til þar,“ segir
hann. „Þetta var verk leikstjór-
ans. Það hefði hver sem er skil-
að þessu hlutverki vel.“
Ein af ástæðunum fyrir vel-
gengni þessarar kvikmyndar
var hversu vel Hackman setti
sig inn í starf og líf lögreglunn-
ar í New York-borg. En núna,
fullyrðir hann, er þetta öðru-
vísi. „í rauninni kafa ég ekki
mjög djúpt í hlutverk mín,“
segir hann. „Það er ekki mín
aðferð. Ég reyni ekki að verða
einhver annar. Ég reyni að
vera ég sjálfur. Robert De Niro
tekur hlutverk sín mjög alvar-
lega og hann varð nokkuð góð-
ur boxari þegar hann æfði fyrir
Raging Bull. Meryl Streep,
sem ég tel vera bestu núlifandi
leikkonuna, er þannig líka.
Eitt af því sem veldur vand-
ræðum þegar maður er orðinn
frægur er að það er erfiðara að
rannsaka mannlífið af því að
fólkið, sem ég ætla að skoða, er
að fylgjast með mér. Líf mitt
snýst reyndar um slíkar mann-
lífsrannsóknir. Þær verða að
ástríðu. Það er heillandi að
fylgjast með hegðun fólks og
að veita táknmáli líkamans at-
hygli, hvað það er sem fólk
reynir að segja með litlum
hreyfingum. Ég er stundum
með hatt og sólgleraugu til
þess að geta gert þetta. En það
er svo skrýtið að fólk er farið
að þekkja baksvip minn. Ég
geri ráð fyrir að ég sé búinn að
leika í svo mörgum myndum
að ég þekkist frá öllum sjónar-
hornum."
„Gerði úr mér stjörnu"
Hackman snýr samtalinu aft-
ur að frammistöðu sinni sem
Popeye Doyle. „Ég verð að
viðurkenna að The French
Connection h'afði dásamleg
áhrif. Hún gerði úr mér
stjömu. Ég veit fólk trúir ekki
hversu háar fjárhæðir mér
voru boðnar aðeins vegna þess
að ég var óskarsverðlauna-
hafi.“
Það hafði slæmar afleiðingar
fyrir Hackman að hann tók að
sér hlutverk vegna pening-
anna. Dæmi um slíkt er mynd-
in Lucky Lady, gerð árið 1975,
þar sem hann lék með Burt
Reynolds og Lizu Minelli.
Hann fékk 1.250.000 dollara,
sem var himinhá upphæð í þá
daga, fyrir að koma fram í
henni.
Frh. á næstu opnu
42 VIKAN 6. TBL. 199íl