Vikan - 22.03.1990, Blaðsíða 50
I
Þannig lítur mælaborðið út við
fyrstu sýn, ekki ósvipað og í
flugvél.
Alþjóðlega bílasýningin í Frankfurt:
Hann eyðir aðeins
2 Irtrum á hundraði
aðir við íyrstu sýn. Maður fær
ekki þá tilfmningu að maður sé
geimfari þegar sest er upp í
Fend 2000. Maður finnur held-
ur ekki til þeirrar óttatilfmning-
ar, þegar maður lítur út um hlið-
arrúðurnar, að verða kraminn
undir 38 tonna flutningabíl við
næsta ljósastaur. Bíllinn er
lengri en virðast kann í fyrstu.
Hann er nákvæmlega fjögurra
metra langur. Til viðmiðunar
má geta þess að Volkswagen
Golf er 3,98 metrar á lengd.
Rýmið er mjög sambærilegt við
það sem gerist í hefðbundnum
bílum. Þá er vandræðalaust að
setjast inn í bílinn og stíga út úr
honum því hliðarhurðirnar eru
vel stórar. Á gamla Messer-
schmitt-bílnum varð að lyfta öll-
um glertoppnum upp til að
komast inn. Það eina við hinn
nýja sem minnir á eldri bróður-
inn er lagið því báðir eru eilítið
sívalir.
HJALTI JÓN SVEINSSON SKRIFAR FRÁ ÞÝSKALANDI
könnunum, sem gerðar hafa
verið í Þýskalandi, hefúr komið í
ljós að það eru rétt tæplega 1,5
farþegar í hverjum bíl. Og þegar
litið er til loft- og umhverfis-
mengunar vex hrifning manna
enn því bíllinn sá arna eyðir
ekki nema tveim lítrum af bens-
íni á hundraðið. Þetta þýðir að
sjálfsögðu að stórlega myndi
draga úr mengun í andrúmsloft-
inu ryddu slíkir bílar sér til
rúms.
Ef einhver skyldi nú freistast
til að bera þessa nýjung saman
við gamla Messerschmitt-smá-
bílinn, sem Fend er raunar
meinilla við, kemur í ljós að
mismunurinn er mikill þótt bíl-
arnir virðist kannski ekki ósvip-
Þá hefur það verið opin-
berað, leyndarmálið sem
nú er talið leysa ýmiss
konar umhverflsvandamál. Það
neíhist Fend 2000. Þetta er ný-
stárlegt farartæki og það hann-
aði maður einn sem áður heíur
komið eftirminnilega við sögu í
bílaiðnaðinum þótt ekki yrði
uppfinning hans þá langlíf á
markaðinum.
Margir vita hvar borgin Reg-
ensburg er í Vestur-Þýskalandi.
En ferri vita að þar eru verk-
smiðjur þar sem áður fyrr voru
framleiddar flugvélar af gerð-
inni Messerschmitt. Á árunum
1933—1964 fór fram allt önnur
og nýstárlegri framleiðsla í þess-
um umræddu verksmiðjum. Þá
voru framleiddir þar um 75000
dvergbílar. Lítið var vitað um
þessa framleiðslu og enn minna
um þann sem stóð fyrir henni.
Raunar hófst þessi saga fyrir
um það bil fjörutíu árum. Þá
sýndi ungur, févana maður hug-
mynd sína á alþjóðlegu bílasýn-
ingunni í Frankfúrt. Þetta var
þriggja hjóla smábíll, aðeins ætl-
aður tveim, með glerkúpul í
stað venjulegs þaks. Að vísu var
bíllinn ekki sýndur inni á sýn-
ingarsvæðinu, vegna þess hve
févana uppfinningamaðurinn
var, heldur utan þess. En það
þurfti heldur ekkert sýningar-
svæði til þess að dvergbíllinn
vekti athygli. Sýningargestir
spyrntu við fótum þegar þeir
sáu íyrirbærið svo að það mynd-
aðist algjört öngþveiti við þetta
sérstæða farartæki. Lögreglan
varð að grípa í taumana og tók
bíleigandann fastan. Hann hét
Fritz Fend og var þá 29 ára.
Sagan endurtekur sig
Þessi saga hefði sem best get-
að endurtekið sig í ár. Fritz Fend
hefur nefnilega hannað nýjan
þriggja hjóla smábíl sem vakið
hefúr mikla athygli. Hann hefur
verið nefndur Fend 2000 og eru
menn þegar farnir að binda von-
ir við hann sem framtíðarlausn á
ýmsum umhverfisvandamálum.
Það sem skrítnast þykir við
þetta nýja farartæki er hversu
lítið það er. En uppfmningamað-
urinn Fend hefur sínar ástæður
fyrir því: „Hinn hefðbundni
flmm sæta bíll er yfirleitt þrem
sætum of stór,“ segir hann. Þetta
er mikið rétt því í umferðar-
48 VIKAN 6. TBL. 1990