Vikan


Vikan - 22.03.1990, Síða 66

Vikan - 22.03.1990, Síða 66
MANNAMOT A Stórhljómsveitin í léttri sveiflu, en þá stundina var hún skipuð eftiríarandi: F.h. Sigurður Halldórsson, sem kom alla leið £rá London til að geta leikið undir á bassann sinn, Gerður Gunnarsdóttir, flðluleikari, Kristín Mjöll á fagott, Ásgeir Böðvarsson, söngvari sem reyndar er starfandi læknir í Amsterdam og Ingunn Sturludóttir söngkona, sem stundar söngnám í Hollandi. ÞORRI BLÓTAÐUR í AMSTERDAM: Súrmatur snæddur undir leik íslenskrar stórhljómsveitar TEXTI: JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR MYNDIR: HJALTI JÓN SVEINSSON Það var heldur betur glatt á hjalla hjá íslendingafélaginu í Amsterdam, þegar langflestir meðlimir þess blót- uðu þorra að gömlum og góðum ís- lenskum sið á dögunum. Eins og endranær var vel mætt til leiks og komu vel á annað hundrað landa íslensku krakkarnir tóku nokkur létt dansspor meðan á borðhaldi stóð. saman til að snæða súrmatinn, hákarl- inn og hangikjötið, svo ekki sé minnst á brennivínið sem borið var fram með hákarlinum. Mátti víða heyra velþóknunarstunur og andvörp, þegar stungið var úr staupunum. Þorrablótið var haldið í húsnæði sem virtist nokkuð úr alfaraleið. Að minnsta kosti lenti leigubílstjórinn í ógöngum, þegar hann freistaði þess að koma blaða- mönnum á áfangastað. En allt hafðist þetta og reyndist húsnæðið ágætlega rúmgott, enda veitti ekki af. Það var Jón Kristinsson arkitekt, for- maður íslendingafélagsins, sem setti hátíð- ina með nokkrum vel vöidum orðum. Fleiri stigu í ræðustól og ávörpuðu sam- komuna einarðlega, eins og vera ber á þorra. Síðan tóku við skemmtiatriði af ýmsum toga. Til dæmis sýndu nokkur vösk og lipur börn dans við flrnagóðar undir- tektir. Stelpurnar bættu um betur seinna meir, og skelltu sér upp á sviðið og sungu. Þannig rak hvert skemmtiatriðið annað, þar til birta tók af nýjum degi. Þá létu hressir íslendingar loks staðar numið og fóru að tygja sig til heimferðar. Má búast við að ættjarðarlögin hljómi í huga margra allt ffam á vor, svo hressiiega var tekið undir. Átti það ekki aðeins við um gesti þá sem vaxnir voru úr grasi, heldur einnig hina yngri, sem létu sitt ekki eftir liggja. Var raunar eftirtektarvert hve litlu krakk- arnir kunnu mikið af „gömlu“ lögunum. Nýlenda hljómlistarmanna Það sem setti annars svip sinn á þetta þorrablót, var hin mikla og góða músík sem þar er ffarnin. Má segja að allt kvöldið hafi verið eitt allsherjar tónleikahald, með örfáum undantekningum. Ástæða þessa er sú, að fjölmargir íslendingar eru við tón- listarnám í Hollandi og þá einkum í Amst- erdam. Þessi fríði flokkur kom svo saman á þorrablótinu, auðsjáanlega staðráðinn í að skemmta landanum og auðvitað sjálfúm sér eins og kostur væri. Voru því flutt dæg- urverkin stór og smá með sannkallaðri stórhljómsveitarsveiflu. Það verður að segjast eins og er, að þessi músík gerði þorramatinn enn gómsætari en hann hefði ella orðið. Og það var ekki nóg með að leikið væri af flngrum ffam meðan á borðhaldi stóð. Hljómsveitin lét sig ekki muna um að leika fýrir dansi á eífir, eða þar til yflr lauk. En það þurfti enginn að hafa áhyggjur af því að hljómlistarmennirnir ofkeyrðu sig á sviðinu, þótt „konscrtinn" stæði yfir í 6-8 tíma. Mannaskipti á sviðinu voru nefnilega tíð og einn kom þá annar fór. Þannig var verið að skipta um fólk í hljómsveitinni allt kvöldið, og aldrei virtist verða lát á 64 VIKAN 6. TBL. 1990 L .. .

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.