Vikan


Vikan - 22.03.1990, Síða 68

Vikan - 22.03.1990, Síða 68
vændiskona er myrt og líki hennar varp- að í Hudson ána og það kemur í Ijós að þetta morð líkist í flestu morði sem fram- ið var í Saigon meðan stríðið í Víetnam geisaði. Þar var ung söngkona í nætur- klúbbi myrt. Þeir Janek og Greenburg reyna nú að finna einhvern sem tengist þessum tveimur morðum sem framin voru með margra ára millibili í sitt hvorum heimshluta. Þekktir leikarar Þeir sem fara með aðalhlutverk í Sams konar morð eru þekktir leikarar. Richard Crenna er líklega þekktastur hér fyrir hlutverk sitt sem Trautman í Rambo myndunum auk þess sem nefna má myndir eins og Body Heat og Flamingo Kid. Kate Capshaw muna allir síðan hún lék á móti Harrison Ford í Indiana Jones and the Temple of Doom og Cliff Gorman lék meðal annars í All That Jazz og An Unmarried Woman. Þessir ágætu leikar- ar ættu því að vera nokkur trygging fyrir því að þarna sé um að ræða gott efni og víst er að Richard Crenna er ánægður með handritið: „Ég er mikill aðdáandi þess dularfulla og þessi saga sem myndin byggist á minnir um margt á Agötu Christie þar sem áhugaverðar persónur birtast og áhorfendur eru hvað eftir annað leiddir í gildru." Útvarp, sjónvarp, kvikmyndir Richard Crenna byrjaði sinn feril í út- varpsleikritum en færði sig svo yfir til sjónvarpsstöðva þar sem hann lék meðal annars í The Rape of Richard Beck og fékk Emmy verðlaunin fyrir. Hann hefur leikið í ýmsum kvikmyndum og má þar nefna Wait Until Dark, Doctors Wives, Body Heat, The Flamingo Kid og Rambo myndirnar þrjár. Hann segist hafa tekið að sér hlutverk í fyrstu Rambo myndinni með mjög stuttum fyrirvara en haft mjög gaman af að leika í þeim öllum. Þetta séu ævintýramyndir og Rambo leysi hin erfið- ustu vandamál á einfaldan hátt sem gleðji áhorfendur mjög. Hann segist njóta þess að leika mjög ólík hlutverk og þegar nafn hans birtist í auglýsingum fyrir kvikmyndir viti fólk ekki hvort hann sé í hlutverki góða mannsins eða illmennis, prests eða geðsjúklings. Hins vegar segist hann gjarnan vilja leika í rómantískri mynd og telur að það sé kominn tími fyrir rómantík í sjónvarpi. í tómstundum sínum leikur Richard Crenna tennis og golf, annast viðhald á húsi sínu eða rennir fyrir fisk. Og svo er bara að koma sér þægilega fyrir við skjáinn fimmtudagskvöldið 29. mars klukkan 22.10 og horfa á fyrri hlutann af Sams konar morð. Síðan að bíða í óvissu þar til 5. apríl eftir seinni hlutanum þar sem allt upplýsist að lokum. Endirinn kemur auðvitað á óvart eins og vera ber þegar góður krimmi er annars vegar, en ekki orð um það meir. Richard Crenna sem Janek og Kate Capshaw í hlutverki hinnar dularfullu Joann Gates. Gélur lcrimmi Cliff Gorman í hlutverki Aarons Green- berg. Hörkuspennandi sakamálamynd með þekktum úrvalsleikurum verður sýnd á Stöð 2 í tveimur hlutum á næstunni. Myndin nefnist „Sams konar morð“ og er fyrri hlutinn á dagskrá fimmtudagskvöldið 29. mars en seinnihlutinn þann 5. apríl. í aðalhlutverkum eru Richard Crenna, Kate Capshaw og Cliff Gorman. Crenna leikur foringja í lögregluliði New York borgar sem heitir Frank Janek og hefur komið yfirmanni sínum bak við lás og slá eftir að sá varð uppvís að morði á tveimur konum. Hann gerir boð eftir Janek og segir honum að bræður tveir í lögreglunni, Mario og Tony Cras- elli, stundi ólöglegt brask. Janek fer að glugga í málið ásamt aðstoðarmanni sínum, Aaron Greenberg, sem leikinn er af Cliff Gorman. Rannsóknin leiðir þá til Joanna Gates en það er Kate Capshaw sem fer með hlutverk hennar. Fara nú ýmsir atburðir að gerast. Ung SAMS KONAR MORÐ: 66 VIKAN ó. TBL. 1990

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.