Vikan - 06.09.1990, Side 5
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
18. TBL. 1990 VIKAN 5
Forsíðustúlkan að þessu
sinni er hin kunna fyrir-
sæta Cindy Crawford.
Hún er ein af hæst launuðu
fyrirsætum heims og hefur
unnið mikið fyrir Revlon. Á
forsíðunni sýnir Cindy haustlit-
ina í förðun frá Revlon.
Hausttískan í fatnaði bygg-
ist á litum úr náttúrunni. Rautt
og grænt laufskrúð, steinar,
himinn og jörð endurspeglast i
skrautlega munstruðum efn-
um, jafnvel í klæðnaði hvers-
dagsins. Litatónarnir eru
mildir, eðlilegir og umfram allt
klæðilegir.
Aðskorin, kvenleg snið eru
komin aftur en í nýjum anda,
með stuttum toppum og
jökkum. Revlon fylgir þessum
línum og byggir haustförðun-
ina á litum eyðimerkurinnar.
Framleiðendur þeirrar snyrti-
vörutegundar lýsa haustlín-
unni á eftirfarandi hátt:
Hljóðlátir litir í augnskugg-
um og kinnalit eru undirstrik-
aðir með djúpum litatónum
fyrir varir og neglur.
Boðið er upp á fjóra liti i
augnskuggum. Þettaeru Cust-
om Eyes kökur með burstum,
sem passa í Custom Eyes
boxin, sem taka tvo eða þrjá
liti. Dusty Pink Frost no. 31,
Minty Silk no. 21 Burnished
Khaki no. 31 og Deepglow
Gold no. 71.
Kinnaliturinn er í New Com-
plexium förðunarlínunni, sem
byggist á steinefna-súrefnis-
sambandi og gefur létta og
eðlilega áferð. Hann er no. 4
Tawny Peach og kemur í
vönduðu boxi með spegli og
bursta.
Varalitirnir eru þrír. Desert
Spice no. 172, Sahara Rose
no. 173 og Sweet Pea no.
156.
Naglalökkin eru í sömu tón-
um og varalitirnir. Þau eru no.
172 Desert Spice, no. 173
Sahara Rose og Rich Raisin
Frost no. 79. □
Á litlu myndinnl hér til vinstri
sést Cindy með leikaranum
Richard Gere, en þegar síðast
fréttist voru þau afar ham-
ingjusöm saman. Á hópmynd-
unum tveim sést Cindy Craw-
ford ásamt nokkrum hæst
launuðu Ijósmyndafyrirsætum
heims. - Areiðanlega einhverj-
ar dýrust hópmyndir sem
teknar hafa verið upp á síð-
kastið ...
FORSÍÐA VIKUNNAR:
Haustlitir sem
skírskota til
jarðarinnar fara
einstaklega vel
við fatalínu
haustsins
dæmis söngvarinn Prince. Á
„svörtu plötunni" hans er með-
al annars lag sem heitir Cindy
C. og í textanum eru eftirfar-
andi setningar: „Hvar fékkstu
þennan fegurðarblett? Kann-
ski við ættum að hátta okkur.“
Cindy er annars 24 ára
gömul og vann á kornakri í
heimabyggð sinni, De Kalb í
lllinois í Bandaríkjunum, fyrir
sex árum þegar Ijósmyndari
nokkur, sem átti leið framhjá,
tók myndir af henni og upp-
götvaði hana þar með. Honum
gekk hins vegar erfiðlega að
koma henni á framfæri. Tísku-
frömuðum fannst hún of mjós-
legin og svo kunnu þeir ekki
við fæðingarblettinn sem hún
vildi alls ekki láta fjarlægja. Nú
er hann orðinn að einkennis-
merki hennar.
Þau Cindy og Richard hafa
verið óaðskiljanleg síðan þau
hittust í partíi hjá sameigin-
legum kunningja þeirra enda
eiga þau nokkur sameiginleg
áhugamál eins og listasöfn,
óperur, hið Ijúfa líf og ... þetta
sem maöur fer ekki að hlaupa
með í blöðin. Þótt hún sé orðin
eftirsóttasta fyrirsæta heims-
ins og fyrirmynd ótal stúlkna
finnst henni svolítið ótrúlegt að
hún skuli teljast meðal fegur-
stu kvenna veraldarinnar.
„í sambandi við vinnu mína
veit ég hvað virkar best og
hvers vegna, en ég get verið
alveg eins óörugg og hver
önnur kona,“ segir hún. „Á
þannig dögum fel ég mig á bak
við hárbrúskinn og sólgleraug-
un. Og mér finnst skrýtið að
vera talin meðal kvenna sem
mér finnst svo stórkostlegar
að ég tek andköf. Ég bíð bara
eftir því að einhver komi auga
á að ég á ekkert heima innan
um þær."
Um hvernig best sé að
halda fegurðinni við hefur hún
sagt: „Ég held að besta en
jafnframt leiðinlegasta fegrun-
araðferðin, sem ég get hugsaö
mér, sé fólgin í miklum svefni
og helling af vatni.“
TEXTI: HELGA MÖLLER