Vikan - 06.09.1990, Qupperneq 24
Hljómsveitin Orgill. Frá vinstri: Ingólfur, Kolli, Hemmi, Hanna Steina og Einar.
í HEILÖGU STRÍDIGEGN
GÖMLU KLISJUNUM
rgill verður t
þannig að..
vááá," segir gíl
arleikari hljóm
sveitarinnar, Kol
beinn, Kolli, þega
undirritaður biður hanr
um að skýra frá tilurc
sveitarinnar. Hermanr
bassaleikari kveikir í retti
og fær sér kaffisopa. Við erurr
staddir á sýrðasta barnum
bænum, N1 bar á Klapparstíg
og sitjum undir berum himni.
„Við höfum öll áhuga á að
gera nýja hluti og við byrjuðum
á því að djamma í stúdíói
Hljóðakletti, ég (Kolli), Hemmi,
söngkonan Hanna Steina og
eigandi Hljóðakletts, Valgeir.
Hljóðfærin voru til dæmis
kontrabassi, bongótrommur,
leirtrommur, ukulele sem er
HLJÓMSVEITIN ORGILL í VIKUVIÐTALI
hljóðfæri frá Hawaii og bala-
laika sem er rússneskt
strengjahljóðfæri. Þar urðu
fyrstu lögin til. Síðan datt
Valgeir út og í stað hans kom
Ingólfur Sigurðsson, trommari
í Síðan skein sól. Að endingu
bættist við Einar Jónsson,
básúnuleikari úr Júpíters.
Fyrsti konsertinn var fyrir vini
og vandamenn i Djúpinu 4.
febrúar á þessu ári, gáfum út
40 boðsmiða. Svo höfum við
einu sinni spilað á Borginni og
tvisvar fyrir Listahátíð á
Hressó. Það varð einmitt mjög
skemmtileg uppákoma þar því
að trommarinn, sem kom með
bandi Salif Keita hingað til
lands á Listahátíð, spilaði
trommudúett með Ingó þetta
kvöld. Það var mjög skemmti-
legt.
Það kemur strax upp vanda-
mál um leið og við hittumst á
æfingum, við fáum alltof marg-
ar hugmyndir. Orgill er ekki
nema rúmlega hálfs árs gömul
hljómsveit og við eigum núna
30-40 lög i prógramm. En við
erum á leið í hljóðver í þeim til-
gangi að festa þau á band til
þess að eiga þau klár og von-
andi hittum við einhvern góð-
an mann sem á peninga og vill
gefa þetta efni út. Nú, ef hann
á ekki peninga, en vill gefa
efnið út, þá verður hann bara
að búa þá til!“
Hljómsveitin Orgill er ekki
bara mjög virk í að semja efni
heldur eru þau í hljómsveitinni
að vinna í því þessa dagana
að koma sér til Þýskalands, f
samvinnu við þýska sendiráð-
ið. Þessu fylgir hins vegar sú
kvöð að í staðinn verða þau
að skipuleggja hingaðkomu
þýskrar hljómsveitar. Eins
konar íslensk-þýsk menning-
arsamskipti.
- En af hverju Þýskaland?
„Það er bæði vegna ævin-
týraþrár og ferðalagafýsnar og
svo er líka mikið að gerast í
tónlistarlífi Berlínar og Ham-
borgar sem höfðar til okkar.“
- Hafið þið fram að færa
einhverja nýja hluti f íslenska
tónlistarbransann?
„ Já, við leyfum okkur að full-
yrða það hér og nú! Okkur
gremst þetta hugmyndagjald-
þrot sem vestræn dægurtón-
list er komin f. Við reynum að
blanda saman þeirri tónlist
sem okkur finnst skemmtileg
og það er svokölluð heimstón-
list, jafnvel smáslatta af aust-
urlenskri tónlist og svo þess-
um popphefðum sem við höf-
24 VIKAN 18. TBL. 1990