Vikan


Vikan - 06.09.1990, Side 26

Vikan - 06.09.1990, Side 26
af pmmœmm SMÁSAGA EFTIR J.Á.STEINSSON Vt iðgeröarmaðurinn reisti sig upp 9 og andvarpaði mæöulega. Hún er ' ónýt, sagði hann. Handónýt. Helduröu það, spurði hún undrandi. Er alls ekki hægt að gera við hana? Viðgerðarmaðurinn hristi höfuöið. Það borg- ar sig ekki. Of dýrt og allt of mikið vesen fyrir svona ónýtt drasl. Hann strauk smurfeitina af höndum sér með tvistbút og fékk sér sígarettu. Annars er mesta furða að henni skuli ekki hafa verið fleygt á haugana fyrir löngu, hélt hann áfram. Ég hef aldrei nokkurn tímann séð svona gamalt módel í notkun. Hún er vafalaust síðan löngu fyrir stríð ... Þetta er víst erfðagripur, skilst mér, sagöi hún afsakandi og borgaði viðgerðarmanninum fyrir komuna. Þvi næst fór hún upp og beið eftir Eyjólfi. Hann kom heim úr vinnunni á slaginu sex eins og hans var vani, dæsti og hlammaði sér út af í sófann. Púh... Þvottavélin erónýt, sagði hún. Haugamatur. Nújá, sagöi hann. Hvaö gerum við þá? Nú, við hendum henni og kaupum nýja, sagöi hún. Ójá, sagði hann. Komdu bara og sjáöu sjálfur, sagði hún. Síðan fóru þau saman niður í þvottahús eins og til aö kveðja þá gömlu. Þarna stóö hún líkt og gulnaður þurs innan um fagurhvítar vélar hinna íbúanna. Hver einasta rispa á emaleruð- um búknum var geymd minning um hlífðar- lausa þjónustu við ótaldar kynslóðir hús- bænda. Og nú var hún ónýt. Jæja þá, sagði Eyjólfur, þá það. Svo fór hann þegjandi upp að horfa á íþróttafréttirnar. Daginn eftir fór hún ein í bæinn og keypti þvottavél með afborgunum. Tegundin hét General Electric. Síðar um daginn kom stór sendibíll upp að blokkinni. Fílefldir burðar- menn stigu út og báru vélina inn um kjallara- dyrnar, inn í þvottahús og settu hana þar í samband. Hún horfði þögul á. Síðan fór hún þegjandi aftur upp með notkunarreglurnar og ábyrgðarskírteinið undir hendinni. Hvílíkur munur, hugsaði hún og horfði á myndirnar í bæklingnum. Nú er bara að fá hann Eyjólf til að henda þeirri gömlu. Eyjólfur kom heim á slaginu sex og hlamm- aði sér niður í sófann. Púh... Nýja þvottavélin kom í dag, sagði hún og rétti honum ábyrgðarskírteinið með myndinni af vélinni á forsíðunni. Nú jæja, já, sagði hann og teygði sig eftir fjarstýringunni og kveikti á sjónvarpinu. Ekki trufla mig, elskan. Ég ætla að horfa á heims- meistarakeppnina í handbolta, Bjarni Fel og strákarnir eru í Tékkóslóvakíu ... Þú gætir nú sýnt þessu einhvern áhuga, sagði hún snúðugt og fór fram að huga að kvöldmatnum. Mmm ... svaraði hann annars hugar. Hurðu, elskan, sagði hann svo meðan frétta- ágrip á táknmáli var á skjánum. Hann lá út af í sófanum, sposkur á svip með ábyrgðar- skírteinið í annarri hendinni og ensk-íslenska orðabók í hinni. Sko - ég fletti upp nafninu á þvottavélinni, hélt hann áfram. Það þýöir allsherjar rafmagn... Hún leit áhugalaus upp frá því að leggja á borðstofuborðið. Nú .. ? Hann stóð upp og elti hana inn í eldhús: Semsagt, al-rafknúin þvottavél, útlagði hann. Þú þarft ekkert að gera nema ýta á takka. Auðvitað, sagði hún, þannig eru allar nýjar þvottavélar. Maður þarf bara að ýta á takka og hún gerir allt sjálf. Þvær, vindur og þurrkar. Það kemur ekkert nafninu við. Hann þagði og skammaðist sín fyrir ein- feldnina. Hvenær ætlarðu að keyra þá gömlu á haug- ana? spurði hún. Hann svaraði ekki heldur gekk aftur inn í stofu og hlammaði sér í sófann. Púh ... Bráðum. Það er svo Ijótt að hafa hana þarna, sagði hún í eldhúsdyrunum. Ég geri það þegar ég má vera að, svaraði hann, blíndi á sjónvarpið og beið. Þaö voru að koma meiri íþróttir. Þú gætir vel gert það í kvöld, sagði hún. Þú hefur ekkert sérstakt að gera, er það? Eyjólfur svaraði engu heldur hækkaöi bara hljóðið í sjónvarpinu. Beina útsendingin var að byrja. Hún gekk út að eldhúsglugganum og horfði út yfir bílastæðiö. Ætli það endi ekki með því að ég geri það sjálf, tautaði hún mæðulega viö sjálfa sig. Alein og sjálf eins og allt annað á þessum bæ. Hún leit á leirtauið sem beið þess á matarborð- inu að hún myndi þvo það og raða því aftur upp í skápana. Að auki hékk óstraujaður þvott- urinn úr nýju þvottavélinni á snúrunni inni á baði, svo var þaö líka næsta vél og ... Er þetta nú hægt? hugsaði hún. Hann gerir ekkert nema þegar „hann“ má vera að. Hann...! Eyjólfur, hrópaði hún hvellum rómi innan úr eldhúsi og reyndi að yfirgnæfa sjónvarpið. Eyj- ólfur, ætlarðu að gera þetta viðvik núna strax eöa ætlarðu EKKI að gera það ... Ekkert svar. ... því ef svo er þá geri ég það sjálf og spara mér að jagast í þér í marga mánuði. Hún gerði hlé á máli sínu og beið. Engin viðbrögð. Innan úr stofu skoruðu mótherjarnir mark og Bjarni Fel hrópaði: „Ég bara trúi þessu ekki...!“ 26 VIKAN 18. TBL. 1990

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.