Vikan - 03.08.1939, Blaðsíða 6
Verlcfrœðingar ráða
tízkunni í framtíðinni.
— Hver á að sýna, hvernig fólk klæðir sig í framtíðinni?
spurðu umsjónarmenn heimssýningarinnar í New York eitt aðal-
tízkublaðið þar. — Er það ekki ágætt verkefni fyrir hina þekktu
tízkuteiknara okkar?
— Nei, var svarað. — Þeir hafa nóg að gera við að rannsaka
smekkvísi nútíðarinnar, svo að þeir mega ekki vera að því að
hugsa um framtíðina.
— Hver á þá að gera það?
— En verkfræðingarnir. Þeir eru hvort sem er allir að reyna
að skapa framtíðina. Látið þá sýna, hvernig menn eiga að klæða
sig í framtíðinni.
Nokkrir þekktustu verkfræðingar Ameríku hófust þegar
handa, og hér eru nokkrar myndir af verkum þeirra.
Myndirnar á næstu síðu:
IGilbert Rohde, hinn ágæti
húsgagnasmiður, teiknaði
karlmannaklæðnað framtíð-
arinnar. Hann er að mestu úr
málmefnum.
Amerískur myndhöggvari hefir byggt þetta málmlíkneski af „manni
framtíðarinnar". Hver botnar í slíkri líkamslögun ?
2Georg Sahier spáir því, að
pilsin hverfi úr sögunni, og
að kona framtíðarinnar verði
há og grönn og klæði sig
þannig, að hún geti tekið þátt
í öllum íþróttum.
SKvöldkjóll eftir Walter
Dorwin Teague, sem er
annars húsasmiður. — Kona
framtíðarinnar verður vel
vaxin, og kjóllinn, sem verður
úr vísindalega unnum gerfi-
efnum, má ekki hylja fegurð
hennar.
— Konur eiga alltaf að
vera brúður á kvöldin,
segir Henry Dreyfus, sem
hefir m. a. byggt straumlínu-
eimreið og ,,Democracity“ á
heimssýningunni. Hann álít-
ur þetta afar kvenlegan kjól.
Heimur framtíðarinnar á heimssýningunni í New York. „Tryion“, þrístrendi pyramídinn og „perisphere“, kúlan,
en þar er borg framtíðarinnar „Democracity“. Fyrir framan er líkneskið: „Hraðinn“, sem vekur mikla athygli.