Vikan


Vikan - 07.09.1939, Síða 11

Vikan - 07.09.1939, Síða 11
Nr. 36, 1939 VIKAN 11 Ha 140, vél af nýjustu gerð. Notuð til flugs yfir Suður- og Norðuratlantshaf. hún dregin upp af flugvél. Þetta eflir fé- lagslyndi og samheldni. Svifflugmenn eru góðir félagar, sín á milli, og við félaga sína í öðrum löndum. Einstaklingurinn er ekki neitt, en heildin skapar afrekin. Svifflug á Islandi. Svifflugið eins og það er iðkað nú, er um 20 ára gamalt, þar sem það er elzt, þ. e. í Þýzkalandi. Hér á Is- landi er það ekki nema rúmlega þriggja ára. Árangurinn, sem þegar hefir náðst, bæði hér í höfuðstaðnum og fyrir norðan á Akureyri, er þó furðu góður. Samheldnin milli félagsmanna er góð, en á þó eftir að styrkjast. Svifflugsmenn eru nógu margir, sem stendur, þó má bæta við byrjendum, bæði hér og fyrir norðan. Þeir sem lengst eru komnir, eru góðir flugmenn, sumir af- bragðsgóðir; á ég hér við svifflugkennar- ana í Reykjavík og á Akureyri og flug- manninn, sem flaug 5 tíma í fyrra. Afrekum eins og þessum mun fjölga bráðum. Framfarirnar yrðu örari, ef félag- arnir mættu oftar vera að því að halda námskeið og liggja úti vikum saman til þess að sæta lagi og hagnýta góðviðris- dagana. En eins og svifflug er nú stundað hér, í hjáverkum og einungis um helgar, hefir það borið bezt hugsanlegan árangur. Ég þykist vita, að svifflugmennirnir ís- lenzku séu þakklátir kennurum sínum, þeim Reichstein, Böhme, Ludwig og ef til vill mér. En nú verða þeir bráðum „fleygir" og geta haldið áfram, út á þá braut, sem liggur til alþjóða svifflugmóta og sam- keppni. Áður þyrftu þó nokkrir að sigla til þess að fullkomna sig í smíðum og smíðakennslu. Vík ég nú að einu atriði, sem mér þykir mikilsvægt fyrir alla Islendinga og íslenzk flugmál almennt: Með starfi svifflugfélag- anna færist flugkennslan til Islands. Hing- að til hafa íslenzkir flugmenn orðið að sækja menntun sína til útlanda. Nú geta þeir þó a. m. k. byrjað hér, byrjað með svifflugi og einkatímum á þeim flugvélum, sem til eru. Ég get ekki séð annað en að flugið eigi glæsilega framtíð fyrir sér á Islandi, sem er strjálbyggt, en býður þó ágæt flugskilyrði. Þá mun vera bezt, að allir íslenzkir flugmenn byrji að fljúga yfir íslenzka grund í svifflugum sínum. Þá verð- ur skýlið á Sandskeiði með tímanum há- skóli íslenzkra flugmanna! Afrek og met. íslenzkir svifflugmenn, sem aðrir flugmenn um víða veröld, keppa að metum, og er eini mismunurinn milli meta í svifflugi og meta í öðrum íþrótta- greinum sá, að í fluginu verða metin seinna til, þ. e. sá flugmaður, sem einhvern tíma er svo heppinn að geta sett met, hefir þá áreiðanlega lagt fram miklu meiri vinnu, orku og sjálfsfórn en methafi í öðrum íþróttagreinum. — Þrepin að hverju meti eru ótal afrek. Bezta afrek er og mun ávallt verða að lenda vélinni óbrotinni, enda er svifflugmet ekki viðurkennt, nema bæði maðurinn og vélin komi heilu og höldnu til jarðar. Milli brottferðar og lendingar liggur þá metið. Metin, sem set hafa verið af svif- flugmönnum hin síðari ár, eru svo ótrú- leg, að þau hefðu verið met með mótor- flugum fyrir nokkrum árum. Ætla ég hér aðeins að geta nokkurra þeirra: Tímamet settu tveir ungir Þjóðverjar í fyrra við Eystrasalt í tveggja manna vél, ,,Kranich“ (samskonar vél og Ludwig sýndi í fyrra listflug á), með því að halda sér uppi í 50 klst. 15 mín. Á vél af sömu gerð setti einn flugmaður hæðarmet með því að kom- ast 9.200 metra upp fyrir brottferðarstað- inn. Dýrmætasta met í svifflugi mun þó vera hið svokallaða markflug, þ. e. flugmaður- inn reynir að ná fyrirfram ákveðnu marki í ákveðinni fjarlægð. Þjóðverjinn Peter Riedel, sem einmitt um þetta leyti er að sýna sig og ,,Kranich“ sinn í Ameríku og m. a. flaug yfir Rocky Mountains (5800 mtr.), átti lengi metið í markflugi, 370 km. Á meðan hann dvaldi nú vestan hafs, notuðu félagar hans, sem eftir voru í Þýzkalandi, tímann til þess að bæta met Riedels, svo að um munaði: Einn flaug 530 km. að ákveðnu marki (lengri leið en þvert yfir Island frá Látrabjargi til Gerpis); hann hefði þó að líkindum getað lent einhvers staðar á þurru landi, en það var ekki hægt fyrir ameríska svifflug- manninn, sem flaug yfir Michigan-vatnið: 110 km á tæpum klukkutíma! Allir þessir drengir og miklu fleiri frá öðrum löndum munu koma saman í Hel- sinki á olympisku leikana árið 1940, en þar verður keppt í svifflugi í fyrsta sinn á olympíuleikum. Allir þátttakendur verða að nota svifflugu af sömu gerð (,,Meise“). Hagnýting svifflugs. Svifflug er þó ekki einungis iðkað flugmannanna vegna, það kemur öllum almenningi að gagni á marg- víslegan hátt. Ég ætla hér aðeins að nefna tvö dæmi: Svifflugur eru víðast hvar not- aðar til veðurathugana. Veðurfræðingur- inn, sem um leið verður að vera góður svif- flugmaður, lætur draga sig upp af mótor- flugu í ca. 5.000 metra hæð. Síðan reynir hann að hækka flugið sjálfur, en samtímis mælir hann lofthita, loftraka, loftþrýsting, athugar skýjafar. Mælingar hans verða miklu nákvæmari en mælingar gerðar í mótorflugu, vegna þess að í svifflugunni þurfa ekki að vera neinir hlutir úr málmi, er geta haft áhrif á mælingaáhöldin. Svo er hitt: Betri undirbúningur undir mótorflug en svifflug er ekki til. Eins og sjómaðurinn lærir bezt að mæta vindi og sjávargangi á seglskipi, fær flugmaðurinn bezta reynslu í viðureign sinni við vind og loftstrauma í svifflugu. Var þess vegna ákveðið í Þýzkalandi og mörgum öðrum löndum, sem reka farþegaflug, að gera svifflug að skyldunámsgrein fyrir farþega- flugstjóra. Svo strangt var gengið eftir þessu, að jafnvel frægir flugmenn, sem stjórnað höfðu risavöxnum farþegaflugvél- Prh. á bls. 19. Do X, stærsti flugbátur heimsins, smíðaður 1929 i Domierverksmiðjunum.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.