Vikan - 07.09.1939, Page 22
22
VIKAN
Nr. 36, 1939
Barði Guðmundsson fór til útlanda í
sumar, eins og kunnugt er, til þess að
sannfæra menntamenn á Norðurlöndum
um þá kenningu sína, að menn af sjálenzk-
um uppruna hefðu átt drjúgan þátt í land-
námi íslendinga.
Margt gleðimanna var á skipsfjöl, og
bjuggu þeir saman í klefa prófessor Nor-
dal og Barði.
Barði dró sig hvergi í hlé við gleðskap-
inn, en fór þó að öllu prúðmannlega.
Þegar verið var að leggja að bryggju í
Kaupmannahöfn, og farþegar höfðu gert
upp reikninga sína við brytann, ber
prófessor Nordal þar að, sem Barði Guð-
mundsson horfir á reikning sinn í þungum
þönkum. Lítur þá Barði snöggt upp og
segir við prófessorinn:
— Hann er ekki fallegur þessi frá bók-
menntalegu sjónarmiði, en hann er hins
vegar ágætt heimildarrit.
Bezta
amatörmyndin
Tveir hátt uppi.
Sigurður Einarsson, dócent fór til út-
landa í sumar, en alllöngu eftir að þeir
prófessorar guðfræðideildar fóru til Palest-
ínu, og Guðbrandur prófessor Jónsson
hafði lýst erindum þeirra.
Daginn sem Sigurður fór hitti hann
kunningja sinn á götu, og mælti hann:
— Ert þú að fara utan í dag ?
— Jú, svarar Sigurður.
— Ætlar þú líka til Palestínu?
— Ekki er það nú á áætluninni, en hver
veit, hvar maður lendir á ferðalagi.
— Að hverju ert þú nú helzt að hugsa
um að leita, ef þú kemur þangað?
— Með því gjaldeyrisástandi, sem hér
ríkir í landi, held ég, að það lægi næst að
skyggnast eitthvað eftir þessum 30 silfur-
peningum, svaraði Sigurður.
KEIMLEIKARNIR
VH) VATNIÐ.
Frh. af bls. 14.
Daginn eftir fóru strákarnir með apann
til umferðaleikflokksins. Hans hafði verið
saknað. Strákarnir fengu ekki einungis
ókeypis aðgang að sýningunni um kvöldið,
heldur fimm krónu seðil hvor frá eiganda
apans.
Þegar þeir fóru fram hjá bæ skógar-
varðarins á heimleiðinni, stóð gamh vinnu-
maðurinn úti á hlaði.
— Við náðum draugnum við vatnið,
kölluðu þeir. — Bara, að þeir væru fleiri.
Vinnumaðurinn hristi höfuðið.
— Svona er ungdómurinn, tautaði hann
og horfði á eftir þeim, þar sem þeir hent-
ust áfram. Síðan bætti hann við bros-
andi.
— En það er gott, að hann skuli vera
þannig.
Kóngaljós.
Einmana fór ég um öræfi og fjöll
og aflraunir þreytti við jötna og tröll.
Ég lamdi þau niður og lemstraði öll
í logandi vígamóði.
— Ég hræddist aldrei, þótt ögn rynni af blóði —.
Ég lék mér að hættum, og lífsins ég naut.
Mig lamaði hvorki sorg eða þraut,
því alla hlekki ég af mér braut
í æskunnar vígamóði.
— Ég hræddist aldrei, þótt ögn rynni af blóði —.
Svo yfirgaf ég mín fögru fjöll.
Mín freistuðu dalsins hlátrasköll.
Og síðan eru mín auðæfi öll
ómur — áf hetjuljóði —
— aðeins ómur af hálfkveðnu hetjuljóði —.
Axel Ben.