Vikan - 21.09.1939, Side 14
14
VIKAN
Nr. 38, 1939
Eruð þér kvæntir eða giftar?
Ef svo er, þá eru hér nokkur góð
ráð handa ykkur — tíu handa
hvoru, og við tökum eiginkonuna
fyrst:
1. Verið alltaf kátar og ferskar
eins og rós. (Það ætti ekki að vera
erfitt með þessum nýtízku hjálpar-
gögnum).
2. Verið aldrei háværar eða
önug.
3. Raulið aldrei, ef maður yðar
talar, ekki einu sinni eftirlætis-
lagið hans, nema hann sé þá
heyrnarlaus.
4. Biðjið hann aldrei um gjafir
eða greiða, fyrr en hann hefir
borðað.
5. Truflið hann aldrei á meðan
hann les kvöldblöðin — það er
. kannske eina ánægja hans allan
daginn.
6. Komið honum aldrei í vand-
ræði með því að tala við hann
blíðuorð eða kyssa hann, þegar
aðrir eru viðstaddir.
7. Verið ekki afbrýðissamar, þó
að hann hafi skemmt sér við að
spjalla við aðra konu en yður.
8. Látið engan snerta á eigum
hans. Það er það versta, sem
manninum er gert, ef hann getur
ekki haft sitt í friði.
9. Talið aldrei of mikið eða of
hátt um kosti annarra manna í
návist manns yðar.
10. Dáizt oft að dugnaði hans
og hæfileikum.
Hilla og spegill í forstofu.
eigmmannmum
Uppþvottur þykir almennt ekki skemmtilegur. Óteljandi eru þær tilraunir,
sem gerðar hafa verið til þess að létta þessari byrði af húsfreyjunni Á
síðari árum hafa verið búnar til uppþvottavélar. Hér sjáið þið rafmagns-
ofn, sem þurrkar leirtauið.
Ráðin handa
hljóða þannig:
1. Þér megið aldrei í margmenni útskýra eitthvað fyrir
konu yðar með tvíræðri þohnmæði, svo að það líti út fyrir,
að hún sé andlegur aumingi, sem þér verðið að hafa með yður.
2. Leiðréttið aldrei hinar
breytilegu skoðanir hennar á
hlutum, fataefnum og verði.
Þar skilja konur hver aðra.
3. Verið ekki með fýlusvip,
þegar hún hefir loksins lagað
sig til og gengur út á undan
yður.
4. Reynið aldrei að kenna
henni að aka bíl, spila golf
eða bridge — látið aðra um
það.
5. Segið ekki við konu yð-
ar, að þér þolið ekki málaðar
neglur, ef þér dáist að þeim
á öðrum konum.
6. Kallið ekki börn yðar
„börnin mín“, ef þau eru þæg,
en „börnin þín“, ef þau eru
óþekk.
7. Verið ekki afbrýðissam-
ur við vini hennar og biðjið
vini yðar að fara með henni
út, ef þér eruð önnum kafinn.
8. Talið um peningamálin
áður en þér kvænist.
9. Gleymið ekki, að þér
verðið að segja henni oft, að
þér elskið hana.
10. Gleymið aldrei afmælis-
degi hennar eða hinum mörgu
brúðkaupsdögum — þeir hafa
Haustfrakki. Hann er úr svörtu ullarefni, með breiðu skinnbelti og
skreyttur stórum skinnum að neðan.
mikið að segja í rómantík hjóna-
bandsins, vekja hana að minnsta
kosti einu sinni á ári.
Ljómandi fallegur kjóll úr blúndu-
efni. Pilsið er vítt og bryddað breið-
um silkiborða.
FEGURÐ OG TÍZKA: