Vikan - 21.09.1939, Qupperneq 22
22
VIKAN
Nr. 38, 1939
Fyrir nokkrum árum ákváðu framsókn-
armenn í Eyjafirði að stofna til skipulags-
félagsskapar með sér, og var séra Gunnar
Benediktsson í Saurbæ, meðal annarra,
kjörinn til þess að semja stefnuskrá og
lög fyrir félagið.
Settust þeir nú á rökstóla séra Gunnar
og félagar hans og íhuguðu málin vand-
lega. Uppgötvar þá séra Gunnar, að allar
niðurstöður hans og skoðanir fara mjög í
bága við félagana og verður bæði honum
sjálfum og þeim ljóst, að hann er komm-
únisti og á ekki heima í þeim félagsskap.
Sumarið eftir er Jónas Jónsson á ferð
í Eyjafirði, heimsækir séra Gunnar og
spyr hann, hvernig á því standi, að hann
hafi oltið út úr félagsskapnum.
— Það var af því, segir séra Gunnar,
— að því betur, sem ég íhugaði málin, því
sannfærðari varð ég um, að ég er sósíal-
isti, en ekki framsóknarmaður.
Jónas þagði við um hríð og mælti síðan:
— Mikið andskoti var að þú skyldir
nokkuð fara að grufla út í þetta.
Jóhann Snorrason heitir unglingspiltur
á Akureyri. Hann er sonur Snorra Sigfús-
sonar, skólastjóra, og hinn mesti æringi og
skjótráður sem hann á kyn til.
Það bar til í sumar, að brekzt herskip
kom til Akureyrar og lá þar við landfestar.
Um þessar mundir hafði Jóhann umráð
yfir mótorhjóli, sem annars var hinn mesti
gallagripur og mjög dutlungafullt í tökt-
um sínum. Kom Jóhann þeysandi á hjólinu
niður á bryggju, þar sem herskipið lá, en
er hann ætlaði að snúa farartækinu á
bryggjusporðinum stöðvaðist gangvélin,
og hverjum brögðum, sem Jóhann beitti,
gat hann ekki komið vélinni aftur af stað.
Hópur sjóliða stóð við borðstokk herskips-
ins og höfðu mikla gleði af vandræðum
drengsins, og hlógu dátt að honum. Leiddi
þá Jóhann hjólið upp að skipshliðinni, nam
staðar framan við sjóliðahópinn, benti
þeim á hjólið og mælti með yfirlætislegri
ásökun:
— Made in England, please!
Allir sjóliðarnir hurfu á skammri stund
undir þiljur.
24. krossgáta
Vikunnar.
Lárétt:
1. Þráðarefni. — 3. Fúatré. — 9. Hamingju-
söm. — 12. Tveir eins. — 13. Rola. — 14. Heimta.
— 16. öðlast. — 17. Æðri vera. -— 20. Þungur. —
22. Með tölu. — 23. Úrfelli. — 25. Klær. —
26. Fyrir neðan. -— 27. Filmstjarna. — 29. Spýt-
ist. — 31. Ný. — 32. Fugla. — 33. Afleiðsluend-
ing. — 35. Ákalí, sk.st. — 37. Frumefnistákn. —
38. Sviftir fé. — 40. Algeng sk.st. — 41. Trúi
varla. — 42. Húsdýr. — 44. Gleðskapur. — 45.
Iðið dýr. — 46. Útnes, þolf. — 49. Afkvæmi. —
51. Algeng sk.st. — 53. Tvöfaldir. — 54. = 40
lárétt. — 55. Tíu dropar. — 57. Hljóða. — 58.
Töluforskeyti. —• 59. Spyrja. — 60. Vindur. —
62. Spurðir. — 64. Hreinsa. — 66. Hlé. — 68. Utan.
— 69. Mánuður. -— 71. Myndar. — 74. Litar. -—•
76. Beygingarending. — 77. Stétt. — 79. Snemma.
— 80. Grískur bókst. — 81. Úrræði. — 82. Veiðin.
— 83. Veiðistaður.
Lóðrétt:
1. Fylgir oft páskum. — 2. Flugmaður. — 3.
Skál. -— 4. 1 smiðju. — 5. Öfugur tvihljóði. —
6. Málfræðis sk.st. — 7. Planta. — 8. Grastegund.
— 10. Skeið. — 11. Fá í hendur. — 13. Velstæð. -—
15. Þekkt. — 18. Farvegur. — 19. Fugl. — 21.
Nokkrum dögum áður en yfirstandandi
styrjöld brauzt út sátu nokkrir andans
forystumenn höfuðstaðarins að kaffi-
drykkju á Hótel Borg, og ræddu þeir
ástand og horfur í alþjóðamálum. Sýndist
sitt hverjum, og urðu harðar deilur um
það, hvernig leysa bæri öngþveiti það, sem
þjóðirnar væru nú komnar í. Einn þeirra
manna, sem þátt tók í þessari orðahríð
var Þórbergur Þórðarson, rithöfundur.
Sem niðurstöðuorð á sinni skoðun á við-
horfi alþjóðamála sagði Þórbergur:
— Það er nú svo komið, að eina friðar-
vonin er sú, að það verði langvarandi stríð!
#
Snorri, bóndi í Fellsseli í Ljósavatns-
hreppi, hafði eitt sinn vinnukonu, er Indí-
ana hét, og var kölluð Inda. Það bar til um
sumar á túnaslætti, að bolakálfur nokkur
varð viðskila við Fellssels kýrnar, og sendi
þá Snorri Indu til að leita að kálfinum. Er
hún hafði lengi leitað kálfsins sér Snorri
hilla undir hana upp á f jalli, og varð hon-
um þá að orði:
— Þarna kemur þá Inda greyið kálf-
laus og finnur ekki tarfinn!
....................................iiiiiii.....""'íj,
| Fegurðardrottningarvalið. |
Þeir, sem taka vilja þátt í fegurðardrottningarvalinu, þurfa að senda at- j
1 kvæðaseðla sína strax, þannig að þeir séu í vörslum blaðsins í síðasta lagi i
j laugardaginn 23. september. Á sunnudaginn verða atkvæðin talin og í blað- j
i inu 28. september verða úrslitin birt. I
^,l||lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllÍlllllllllllllllllllllllllllllll"l"IIII"lllllllll* *l"*llllllll"lll*"l*l""l*""l*ll*l,,,,,,*,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,VV
Storknar. •— 23. Kom við. — 24. Húsdýrið. —
26. Kvenm.nafn. — 27. Mállýti. — 28. Féndur. —
30. = 35. lárétt. — 31. Furðar. — 32. Mannsnafn.
— 34. Áfengi. — 36. Líkamshluti. — 38. Fyrir-
gefning. — 39. Sterkur. — 41. Bókstafur. — 43.
Sjaldgæfur. — 47. Tveggja. — 48. Spanskur
stjómmálamaður. — 49. Lína. — 50. Suð. —
52. llát. — 54. Þannig. — 56. Ræfill. — 59. Spum-
arfomafn. •— 61. Flík. — 63. Töluorð, þolf. —
64. Kvenm.nafn. — 65. Karlm.nafn. — 67. Fóður.
— 69. Meltingarvökvi. •— 70. Lagleg. — 72. Veit-
ingastofa. — 73. Efni. — 74. Vísir. — 75. Dýr.
-—• 78. Tveir eins. •— 79. Spil.
er þvottasápa nútímans.
— Hver er þessi laglega stúlka?
— Hún er búðarstúlka.
— Hvers vegna heldurðu það?
— Ég kyssti hana einu sinni, þegar ég
var með henni í boði, og hún spurði: —
Var það nokkuð fleira ?
*
— Góða nótt, frú Jóna, og takk fyrir.
Þetta er skemmtilegasta kvöld, sem ég-
hefi lifað.
— Segið þetta ekki, frú Ásta.
— Jú, kæra frú Jóna. Ég segi þetta
alltaf.
— Hvernig líður tengdamóður þinni?
Mér var sagt, að hún væri hættulega veik.
— Já, en það er langt síðan. Nú er hún
hættulega frísk.
Frönskukennsla fyrir byrjendur:
Vinur — Un ami.
Vinkona — Une amie.
Tvær vinkonur — Bigami.
Hann: Meina konur alltaf nei, þegar
þær segja nei?
Hún: Nei.
*
Sýndu mér naglalakkið þitt, og ég skal
segja þér, hver þú ert!