Vikan


Vikan - 21.12.1939, Blaðsíða 10

Vikan - 21.12.1939, Blaðsíða 10
8 VIKAN, nr. 51, 1939 'Hju.ÍcLcl Sj,ahn<idóttVL: I STIGUNUM að vaknar alltaf einhver óhugnanleg- ur beygur í mér, þegar ég sé þetta hús þarna hinu megin við götuna. Ég átti einu sinni heima þar í tæplega eitt ár. Og ég held, að ég flytti ekki í það aftur, þó að ég hefði hvergi húsaskjól annars staðar. En þetta hús er ekkert í frásögu færandi, því að þetta er alls ekki neitt fínt hús eða fallegt. Það er ljótt. Gamall þriggja hæða timburhjallur, rauðmálaður, með svörtu þaki og auðvitað allur skáldaður utan eftir margra ára hnjask óveðra og fyrir löngu búinn að lifa sitt fegursta. Ég þarf náttúrlega ekki að taka það fram, að ég átti heima á efsta loftinu í heldur lélegu herbergi undir súð, því að auraráðin voru mjög takmörkuð í þá daga. Og minnst sex sinnum á dag þurfti ég að ganga upp og niður f jóra stiga, sem brak- aði látlaust í, þegar gengið var um. Og það er heldur ekkert nýtt til afspurnar, þó að braki í stigum á gömlum timbur- hjalh, því að það er viðburður, sem skeður margsinnis hvert augnablik lífsins. En annað dálítið óvanalegt var í stig- unum í þessu húsi, sem ég held, að ekki sé í stigum í öðrum húsum, og það var gömul kerling, sem sat þar alltaf. Og þegar ég segi, að hún hafi setið í stigunum, þá meina ég það, því að hún sat aldrei í sömu tröpp- unni eða sama stiganum, nei, heldur hing- að og þangað upp um alla stiga. Hún hafði alveg óvenjulegt lag á því að vera þar, sem maður sízt átti von á henni. Ef ég bjóst við henni í efsta stig- anum, þá sat hún í þeim neðsta, og bygg- ist ég við henni í öðrum hvorum miðstig- anna, þá var hún í þeim efsta. Og svo koll af kolli. Hún var óútreiknanleg. Og þið skuluð ekki halda, að hún hafi haft fastan samastað í einhverri vissri tröppu í hverj- um stiga. Nei, ég sá hana aldrei sitja í sömu tröppunni tvo daga í röð, ekki einu sinni einn. Ef ég til dæmis fór út að morgni og kom heim um miðjan dag, þá var hún á allt öðrum stað þegar ég kom, heldur en þegar ég fór. Og færi ég svo aftur út og kæmi heim um kvöldið, var hún komin í enn nýjan stað. Hún var samgróin stig- unum. Kerlingin leigði herbergi beint á móti mínu. Mér er enn ráðgáta til hvers. Hún var búin að eiga heima þarna á loftinu, eða réttara sagt í stigunum í mörg ár. Það vissi enginn hvað lengi. Ég spurð- ist fyrir um hana hjá öðrum íbúum hússins, en það vissi enginn þeirra neitt um hana, annað en það, að hún hefði setið þarna í stigunum, þegar þeir komu. Svo að ég var jafn nær. Það fyrsta, sem ég sá, þegar ég flutti í húsið, var kerlingin, og sat hún þá í næst neðstu tröppunni í efsta stiganum, svo mikið dúðuð í alls kyns fatatötra, að rétt grillti í feitt, rauðleitt andlitið. Ég veitti henni litla eftirtekt þá, hélt, að það væri aðeins tilviljun, að.sú gamla sæti þarna, og smeygði mér hálfergilegur fram hjá henni. En ég heyrði um leið, að hún tautaði fyrir munni sér: — Ósköp er drengurinn lengi. Ég skipti mér ekkert af þessu, hugði, að hún væri að bíða eftir einhverjum krakkahnokka, sem hún hefði líklega sent erinda fyrir sig í næstu búð. En um kvöldið fór ég út að skemmta mér með kunningjum mínum, og kom ekki heim fyrr en um miðja nótt, talsvert slompaður og löngu búinn að gleyma henni. Þegar ég kom inn í ganginn, var kolniða- myrkur, ég ætlaði að kveikja, en ljósin voru þá í ólagi, eins og þau voru reyndar oftast nær, svo að ég hljóp upp stigana í myrkrinu. En ég kipptist við, því að ég var rétt dottinn um einhverja hrúku, efst í neðsta stiganum. Mér fór ekki að verða um sel. Ég kallaði upp, — er þetta draug- ur eða hver fjandinn er þetta? — Nei, það er enginn draugur, heyrði ég einhverja rödd kumra niður í barm sinn. Þá skildi ég, að þetta var kerlingin. Hvern skrattann sjálfan eruð þér að meina, manneskja, að sitja svona í stigun- um um hánótt og hræða saklaust fólk, sem gengur um, — má ég spyrja? — Þér eigið ekki að koma svona seint heim, ungi maður, kumraði hún aftur inn í sjálfa sig. — Hvað eruð þér að segja, koma svona seint heim? Má ég spyrja, hvað yður kem- ur það við? Og ég ætla að biðja yður um það eftirleiðis að skipta yður ekki af mín- um högum. Ég stökk fram hjá henni öskuvondur til að heyra ekki hverju hún svaraði, og skellti hurðinni í lás hjá mér. Ég háttaði strax og ætlaði að reyna að sofna, en þetta atvik olli því, að hugurinn var kominn á ringulreið. Um morguninn vaknaði ég, þunnur, úr- illur, timbraður. Ég var ekki búinn að liggja lengi vakandi, þegar ég mundi eftir þeirri gömlu, og það bætti ekki upp skap- ið. Skyldi hún vera í stigunum núna? Ég reyndi að beina huganum frá henni, en áður en ég vissi af, var ég farinn að glíma við spurninguna aftur. Öll vitund mín krafðist þess að vita, hvort hún væri í stigunum ennþá. Ég bölvaði sjálfum mér, kenndi drykkjuskapnum kvöldinu áður um ástand mitt, og að ég hlyti að vera orðinn eitthvað ruglaður á taugunum. Eins og mér mætti ekki standa á sama um kerling- arafmánina, hvort hún sæti þarna eða ekki. Ég fékk mér bók að lesa, spennandi „reyf- ara“ með morði á annarri hverri blaðsíðu, sem ég hafði nýlega fengið að láni, og reyndi að sökkva mér niður í lesturinn. Ég las og las. Þegar ég var búinn með eina blaðsíðu komst ég að þeirri niðurstöðu, að ég hafði ekki hugmynd um, hvað ég var að lesa. Það var rétt eins og verið væri að toga sálina í mér fram að hurðinni, en ég streyttist á móti af öllum kröftum,líkast því að verið væri að teyma staða bykkju. Skyldi hún vera frammi ennþá? Þessi spurning var komin inn í mig, út í hvern fingurgóm og fram í tær, og var alveg að gera mig ruglaðan. Ég gat ekki setið á mér lengur. Ég varð að vita vissu mína. Ég fleygði frá mér bókinni, stökk fram úr rúminu, opnaði hurðina lítið eitt og gægðist fram. Jú, þarna sat hún rétt fyrir framan dyrnar mínar, og staglaði í sífellu ofan í barm sinn — ósköp er drengurinn lengi. Ég svitnaði af gremju, flýtti mér upp í rúm og breiddi yfir höfuð. En ég gat ekki annað en hugsað um hana. Hvers vegna var ég svona upp á móti henni, og hvers vegna kom hún mér úr öllu jafnvægi. Það var mér óskiljanlegt. Nú hafði hún ekkert gert á hluta minn, annað en það að sitja þarna í stigunum og tala til mín fáum orðum, þó ekki að fyrra bragði, og sem voru áreiðanlega meint mér í vil. Ég hafði lítið umgengizt gamalt fólk, og lítið reynt að skilja gamalt fólk. Ég verð hreinskilnislega að játa-, að mér fannst því heldur ofaukið í tilverunni. Það kann að vera, að orsökin til þess sé sú, að þegar ég var lítill drengur, var gömul kerling hjá

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.