Vikan


Vikan - 21.12.1939, Side 37

Vikan - 21.12.1939, Side 37
VIKAN, nr. 51, 1939 35 I STIGUNUM. Frh. af bls. 9. næmdist í hverri tröppu og góndi upp í myrkrið. Það rauf ekkert þögnina nema ískyggilegt marrið í stiganum. Hún var ekki í neðsta stiganum. Ég gekk jafn hægt upp næsta stiga. Ég var kominn upp í þriðju eða fjórðu tröppu, þegar ég fann nálægð hennar með því að garmarnir hennar flæktust um annan fót- inn á mér. Ég herti mig upp. Ég var ekki vitund skelkaður, aðeins heitur af æsingi. Blóðið í mér svall. — Ég ætla að segja yður það, kerling- arnorn, að þér verðið að hypja yður burt úr þessum stiga og það undir eins. Þér hafið ekkert einkaleyfi að sitja í honum, og ef ég sé yður hér oftar, skal ég láta allar illar vættir elta yður á röndum. Þér hafið herbergi hér uppi á loftinu og þar getið þér verið. Ég skók hnefana af bræði út í myrkrið. — Og þér — þér skuluð eiga mig á fæti, ef ég sé yður oftar, yðar ógeðslegu persónu hér í stigunum, þá — þá skal ég------Ég urraði út úr mér síð- ustu orðunum. Ég var hamslaus, gnísti saman tönnum af reiði. — Heyrið þér það? Hafið þér skilið mig? Ekkert svar. — Getið þér ekki svar- að, kerlingardjöfull ? Heyrið þér, hvað ég er að segja? Ekkert svar. Það er bezt að hrista helvítið til, vita hvort hún fær þá ekki málið. Ég þreif óþyrmilega í öxlina á henni. — Getið þér ekki svarað mann- eskja? Ég varð allt í einu hræddur, ofsa- hræddur. Ég var yfirkominn að geðshrær- ingu, skalf allur frá hvirfli til ilja. Dauð- ans angist gagntók mig. Ég fann helkald- an hroll leggja eftir hverri taug. Hvað hafði ég gert? Mér fannst myrkrið, kol- svart, óendanlegt myrkrið taka utan um mig tveim stórum krumlum og kremja mig saman. Mig langaði til að æpa upp, en kom ekki upp neinu hljóði. Hún datt í fangið á mér, þegar ég kom við hana. hræðilegur grunur læsti sig um mig. Ég varð trylltur, viti mínu fjær. Ég fálmaði með annarri hendinni upp að andlitinu á henni, — það var ískalt, stirðnað. Guð minn góður, hún var dáin .. . GLEÐILEG JÓL! Málningarverksm. Litir og Lökk. GLEÐILEG JÓL! Heildverzlun Þórodds Jónssonar. Jólira °9 aLiverpoaL^ Nú þegar jólakauptíðin erí algleymingi verður verzlunin aLinerpooL^ óhjákvæmilega efst í hugum manna, enda er reynslan búin að sýna, að JUoerpoo^ gerir allt- af sitt ýtrasta til að láta viðskiptamennina fá það bezta fáanlega á jólaborðið. En auk þess eru hvergi meiri líkur til að fá hina réttu jóla- gjöf, heldur en í einhverri af hinum velþekktu 6 deildum tJjverpoaL^ J ÓLASALAN fer fram undir hl jómleikum frá Liverpool-útvarpinu. Verið velkomin í 'JinerpooJ^ BETTY HENNINGS. Frh. af bls. 19. - einmitt sýnt þá leikpersónu með þeim sér- einkennum, sem skáldið hafði til ætlazt. Hún keppti ætíð að því að blása lífi í þá mannssál, sem í hlutverkinu býr, og það skeði með ákaflega nákvæmri og rök- hugsaðri vinnu. ^ Frú Hennings vissi allt um þær persón- ur, sem hún sýndi. Hún hugsaði eins og þær, kynntist venjum þeirra — og öllu lífi, svo að hún að lokum var leikpersónan. — Hún var bein mótsetning við ,,stjömur“ nútímans, — þetta, að leikarinn í vissum atriðum viti einungis af sjálfum sér, án nokkurs sambands við umhverfið og mót- leikarana. — Það var henni svo f jarlægt, eins og allt, sem var ólistrænt. Þess vegna var það í raun og veru heldur ekki frú Hennings, sem áhorfendur sáu í Noru — frú Alving — Hedvig, — nei, þeir sátu augliti til auglits við Noru — frú Alving — Hedvig. — Gagnólíkar, lifandi persón- ur með eigin hugsunum og tilfinningum, sem voru gagnólíkar tilfinningum leikkon- unnar. Ég var einu sinni spurður, hvernig áhrif list frú Hennings mundi hafa á nútíma- fólk. — Þeirri spurningu er hægt að svara með fullri vissu. Fyrir allmörgum árum síðan lék hún í danska útvarpið í síðasta sinn. Þá hlust- aði ég, ásamt hóp af ungum nútíma leik- urum, sem höfðu safnazt saman af for- vitni, til að heyra ,,naturalistiska“ leiklist frá 1880 og 90. Undir eins og þeir höfðu heyrt hana segja fyrstu setninguna, með sinni björtu, hreinu, vel tömdu rödd, þar sem nákvæm- lega hárfínar áherzlur á hverju blæbrigði málsins nutu sín til fulls, — litu þeir hver á annan steinhissa. — Svo fylgdust þeir með leik hennar, þögulir og hlustandi. Þegar útsendingunni var lokið, varð löng þögn, og svo sagði einn þeirra: — Þetta var óviðjafnanlega yndisleg list! Hann hafði rétt fyrir sér. Það er áreiðanlega ein af þeim allra mestu listakonum, sem nú er horfin inn í ókunna landið. Einn af hinum auðmjúkustu þjónum í hinu mikla musteri listarinnar.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.