Vikan - 16.05.1940, Side 2
2
VIKAN, nr. 20, 1940
Að gefnu tilefni
skal það tekið fram, að Líftryggingarfélagið ,,Danmark“
á eignir í íslenzkum verðbréfum er nemur um
2V2 miljón króna.
Lítum vér svo á að fjárhæð þessi tryggi fyllilega þær
lífsábyrgðir, sem félagið hefir nú hér á landi.
Starfsemi aðalumboðsins heldur áfram á sama hátt og
verið hefir, og eru hinir tryggðu beðnir að senda iðgjöld
og vaxtagreiðslur á réttum tíma, svo að tryggingar þeirra
falli ekki úr gildi.
Þórður Sveinsson & Co. h.f.
Aðalumboð fyrir Líftryggingarfélagið „Danmark".
Vefnadarvörudeild
Býður yður:
Sumarkjólaefni
Flauel
Tvisttau.
Fjölbreytt úrval.
Stína litla er vinnu-
söm og langar til að
mála.
Hræðilegt járnbrautarslys.
Aðfaranótt 28. desember 1879 varð eitt
mesta járnbrautarslys, sem sögur fara af.
Þá nótt geisaði fárviðri yfir Norðursjóinn
og við strendur Skotlands var veðrið hams-
laust. Þegar hraðlestin frá Dundee fór yfir
hina nýbyggðu brú á Firth of Tay, brast
miðhluti brúarinnar og lestin og allir far-
þegamir steyptust niður í hið djúpa og
kalda vatn Tay-fjarðarins. Þar fórust yfir
200 manns. Þótt brúin væri nýbyggð höfðu
verkfræðingarnir illan bifur á henni, því að
við byggingu hennar hafði verið notað of
mikið af steypujámi og hinn frægi yfir-
smiður Firth of Forth-brúarinnar hafði
stranglega bannað konu sinni og bömum
að fara nokkru sinni um Taybrúna.
4 af öllu.
Sumir menn hafa einkennilega miklar
mætur á vissum tölum. Einn í þeirra hópi
var þýzki keisarinn Karl IV. Herafla sín-
um skipti hann í 4 flokka. Hann átti 4 hall-
ir og 4 riddarasalir vom í hverri höll. 1
hverjum sal voru 4 ofnar, 4 borð, 4 dyr og
4 ljóshjálmar. Hann borðaði 4 sinnum á
dag, 4 rétti í einu og drakk 4 tegundir af
víni með matnum. Föt hans voru í 4 litum
og hann talaði 4 tungumál. Hann kvænt-
ist 4 sinnum og átti 4 syni og 4 dætur. 4.
hvers mánaðar var hann í beztu skapi.
Hann beitti alltaf 4 hestum fyrir vagn
sinn, og hann hafði vonað að verða 4x4x4
=64 ára gamall, en varð ekki nema 63.
Fánalitimir.
Rauði liturinn er algengastur allra lita 1
þjóðfánum. I 44 af 49 ríkjafánum er rauð-
ur litur.
Gullið h já páfanum.
Guilið í dýrgripavörzlum páfaríkisins er
sagt vera meira að verðmæti en öll sú
mynt, sem er í umferð í Evrópu.
Skautarnir em gamlir.
Fyrir óralöngu síðan kunnu menn að
fara á skautum og skíðum. Víða í Norður-
Evrópu hafa fundizt spor, sem sanna þetta.
Eskimóar hafa um ómuna aldur notað
skauta og skíði, búin til úr hvalbeini.
Herskip fyrr og nú.
Fyrir hundrað árum síðan var hægt að
smíða og útbúa heilan flota fyrir þá upp-
hæð, sem einn einasti bryndreki kostar nú
á tímum.
Vikan
HEIMILISBLAÐ
Ritstjóri: Kirkjustræti 4. Pósthólf 365.
Afgreiðsla og innheimta: Austurstræti 17.
Sími 5004. Pósthólf 166.
Verð: kr. 1,75 á mánuði, 0,45 í lausasölu.
Steindórsprent h.f.
Nótubœkur (frumbœkur)
ióst ■ Steindórsprent h.l.
Aðalstrœti 4. Sími 1174
10 stk. 0,45 pr. bók. — 25 stk. 0,40 pr. bók.
tJTGEFANDI: VIKAN H.F., REYKJAVlK. Ritstjóri: Jón H. Guðmundsson, Kirkjustræti 4. Pósthólf 365. — Abyrgðarm.: Steindór
Gunnarsson. — Framkvæmdarstjóri: Bngilbert Hafberg, Austurstræti 17. Sími 5004. Pósthólf 166.