Vikan - 16.05.1940, Síða 3
VIKAN, nr. 20, 1940
3
SKÓLASÝNING
Kennslan í barnaskólunum hefir tekið
allmiklum breytingum á undanförn-
um árum. Áður fyrr var kennslu-
fyrirkomulagið í höfuðatriðum þannig, að
aðaláherzla var lögð á að börnin lærðu
utan að heima tiltekinn kafla í námsbók-
unum, sem þau áttu svo að gera munnlega
grein fyrir í skólanum. Það gerðist á þann
hátt, að kennarinn tók upp eitt og eitt
bam og yfirheyrði það, en hin sátu og
hlýddu á. Þannig gat kennarinn aðeins
yfirheyrt fá böm í tíma. Hin urðu að sitja
aðgerðarlaus. En eins og fullorðiíum veit-
ist erfitt að hlýða á talað mál langan tíma
í einu, ekki sízt þar sem áhuginn er mis-
jafn, má nærri geta, að börnin hafa ekki
alltaf fylgzt með öllu því, er fram fór.
Vegna þessa vom sjálfstæð vinnubrögð
bamanna fremur sjaldgæf, og að vetrar-
náminu loknu lá því ekki fyrir sýnileg
vinna eftir börnin í almennum námsgrein-
um, og af þeim ástæðum fátt til að sýna.
Þá var og lítið um handavinnu og teikn-
Prá handavinnu 10—13 ára telpna. Þær sauma
og- prjóna flíkur, sauma út dúka, púða o. fl.
Sýnishom af útskurðarvinnu 10—13 ára drengja.
Þeir skera út hillur, pappírshnifa, lampa, vegg-
.skildi o. fl.
ingu. Um 1930 hefjast
fyrir alvöru sýningar í
barnaskólum og stafar það
af því,. að kennslan hefir
breytzt á þann veg, að
námið hefir færzt, ef svo
mætti segja, inn í skóla-
stofuna. I staðinn fyrir að
sitja aðgerðarlaus í tíma
og hlusta á yfirheyrzlur,
vinna börnin við að afla
sér upplýsinga um námsefnið frá þeim
heimildum, er kennarinn og þau sjálf hafa
safnað, og festa þær síðan á pappírinn í
formi mynda, línurita og ritgerða. Einnig
er teikning og handavinna færð inn á svið
námsgreinanna. Börnin teikna myndir úr
námsefninu, hnoða dýr, hús og aðra muni
úr leir, búa til upphleypt landkort úr
pappírsgraut og smíða ýmsa hluti úr járni
og tré, t. d. eðlisfræðiáhöld o. fl. Flest börn
hafa yndi og ánægju af þessum vinnu-
brögðum. Þau venjast á hreinlegan og
smekklegan frágang, hugkvæmni og hag-
sýni. En mest er þó um vert, að þau læra
vinnutækni og þau þekkingaratriði, er
börnin tileinka sér á þennan hátt, hljóta
að verða þeim minnisstæð, þar sem þetta
er numið með starfi, sem þeim er ljúft að
vinna. Framfarir í handavinnukennslu
hafa verið stórstígar. Auk þess sem þegar
er getið, smíða drengirnir ýmsa nytsama
hluti og skera út, og stúlkurnar læra marg-
háttaðan saumaskap. Hér í Reykjavík er
handavinna telpna sniðin í fast form,
þannig, að á aldrinum frá 10—14 ára læra
þær undirstöðuatriðin í þeim hannyrðum,
sem nauðsynlegar eru til heimilisþarfa.
Síðastliðið ár var, auk hinna venjulegu
sýninga einstakra barnaskóla, landssýning
á skólavinnu barna. Hún var hin veglegasta
og lærdómsrík. Mátti af henni glögglega
sjá þær miklu framfarir, er orðið hafa í
skólamálum vorum.
Með stríðinu hafa skapazt miklir örðug-
leikar á öllum sviðum, og þá einnig í skóla-
starfinu. Efnisskortur er þó tilfinnanleg-
astur. Því munu ekki hafa verið sýningar
í skólunum hér í vor. Þar er þó undantekn-
ing með Laugarnessskólann. Hann er ekki
mjög stór og var því pappírsskortur þar
ekki hlutfallslega eins tilfinnanlegur, enda
ef til vill meiri birgðir fyrirliggjandi í
haust en annars staðar. Sýningin var hald-
in sunnudaginn 5. maí og kom f jöldi manns
til þess að skoða hana. Hún var f jölbreytt
og skemmtileg, en bar að vísu nokkur
merki örðugleika yfirstandandi tíma. Er
undravert að sjá, hve miklum og góðum
árangri kennararnir hafa náð í starfi sínu,
enda leggja þeir feikilega vinnu í að undir-
búa það og að leiðbeina nemendunum, sem
margir hverjir sýndu þarna aðdáanleg
vinnubrögð.
Veggkortin eru unnin á hvítan pappír. Bömin
hafa gert þau sjálf í sambandi við námsefnið.
Fyrir miðju er likan af skólanum og upphleypt
kort af umhverfi skólans. Til vinstri munir úr
leir, gerðir af 9 ára drengjum.
Á borðinu er drengjavinna úr leir og fyrir ofan
sýnishorn af teikningum 7—12 ára barna. Til
vinstri eru kort, unnin af börnunum í sambandi
við kennsluna.
Sýnishorn af eðlisfræðivinnu 13 ára drengja, sem
unnin er í sambandi við eðlisfræðikennslu. Þar
sjást hreyflar, dyrabjöllur, vogir, ritsímar, þenslu-
mælar o. fl.
Efst eru teikningar 12—14 ára barna. Fyrir neð-
an uppfestar vinnubækur. Til hægri bækur 8 ára
barna, en fyrir miðju bók um Asíu eftir 11 ára
dreng. Til vinstri Evrópukort barnanna, unnið af
þeim sjálfum.
4