Vikan - 30.05.1940, Page 1
I
EFNÍ: Steinar og götur kunna að tala,
eftir Guðmund Friðjónsson. — Jack
London stritar til þess að komast áfram,
eftir Irving Stone. — Leopold Belgíu-
konungur. — Matjurtagarðurinn, eftir
Stefán Þorsteinsson, garðyrkjukennara.
— Eyjan, sem hvergi var, Jónsi sjóari
segir frá. — Heimilið. — Krossgáta o. fl.
Nr. 22, 30. maí 1940
Vatnsþró úr segldúk hafði verið
komið upp fyrir farþegana og
Lily Monterey var í þriðja
skipti þennan dag að sýna listir sín-
ar. Skipstjórinn, stýrimennirnir og
vélstjórinn urðu aldrei þreyttir á að
dást að ungu stúlkunni. Hún var
björt yfirlitum og í ljósum baðfötum.
„Það er eins og stjörnuhrap," sögðu
þeir, þegar hún stökk efst ofan úr
reiðanum, gerði tígurlega sveiflu í
loftinu og stakst niður í laugina. Hún
skaust í vatnið eins og ör, svo að yfir-
borð þess gáraðist aðeins lítils háttar.
Þeir höfðu í fyrstu ætlað að banna
henni þetta. Þróin var ekki nema
hálfur annar meter á dýpt og alls
ekki ætluð til slíkra hluta. En Lily
sagði þá hæversklega við skipstjór-
ann:
— Ég er eldkafari. Vitið þér,
skipstjóri, hvað það er? Ég er þannig
klædd, að ég get kveikt í fötum mín-
um, án þess að það komi að sök, og
stend á palli, sem er í tuttugu og
fimm metra hæð og sting mér þaðan
niður í laug, sem er tæpur meter á
dýpt. Þetta hérna er ekki neitt. Mér
þykir svo vænt um að geta æft mig
á skipinu, þá er minni hætta á að mér
mistakist, þegar ég fer að sýna í
Suður-Afríku.
Hún fékk leyfi til að leika listir sín-
ar eins og henni þóknaðist og allir á
skipinu dáðust að leikni hennar —
nema frú Armitage. Það var einkenni-
leg tilviljun, að Monerey-fjölskyldan,
faðir, sonur og dóttir skyldi eiga
samleið með frú Armitage og syni
hennar. Á stóru og glæsilegu skipi
hefði langt verið á milli þeirra. En á
Gurkha, sem var gamalt skip og laust
við allan íburð, var aðeins eitt far-
rými. Frú Armitage hafði kosið að
fara með þessu skipi, af því að það
fór beint frá Raugoon til Mombassa.
Þá losnaði hún við að hafa skipa-
skipti í Calcutta eða fara hina miður
skemmtilegu leið til Bombay, í óþol-
andi hita, til þess að ná skipi þar.
Frúin hafði vonað, að ekki yrðu aðrir
farþegar en hún og sonur hennar, en
á síðustu stundu hafði þetta Monter-
ey fólk bæztz í hópinn, henni til sárra
leiðinda.
Lily Monterey hafði fljótt tekið
eftir því, að Ronald Armitage veitti
henni sérstaka athygli, en móðirin
var þóttafull við hana og fráhrind-
andi. Frú Armitage hafði strax við
fyrsta tækifæri sýnt það greinilega
að hún taldi sig hátt hafna yfir þessa
Framhald á bls. 11.
Eftir hvirfilbylinn
Smásaga eftir Lawrence G. Green