Vikan - 30.05.1940, Page 10
10
VIKAN, nr. 22, 1940
Heimilið
Driðjudagsmatur.
Fisksúpa og þyrsklingur.
Einn vænn þyrsklingur, 2 lítrar vatn, salt, súpu-
jurtir, gulrætur, smjörlíki 50 gr., hveiti 2 matsk.,
rifinn, harður ostur.
1 sósuna: Hveiti 10 gr., 2 eggjarauður, 50 gr.
smjör.
Fiskurinn er hreinsaður og skafinn vel og síðan
soðinn. Er látinn sjóða í 5 mín. og ,,trekkja“ í
vatninu í aðrar 5 mín. Síðan er soðið sett yfir og
í það súpujurtir og smáskornar gulrætur; þegar
það er fullsoðið, er hveitijafningnum hellt í, og svo
smjörið (eða smjörlíkið) í smábitum og hrært
vel í á meðan.
I sósuna er hrærður jafningur úr hveitinu og
vatninu, hann soðinn í 5 mín. (hræra vel í á með-
an!) og síðan blandað í jafninginn eggjarauðun-
um, sem hafa verið slegnar saman við ofurlítið
af fisksúpunni. Örfáir sítrónudropar bæta sósuna.
Þegar fiskurinn er borinn fram, er sósunni hellt
yfir hann á fatinu og kartöflum raðað í kring.
Brauðbúðingur.
100 gr. rúgbrauð, 100 gr. smjörlíki, 200 gr.
mjólk, 3 egg, y2 kg. epli, 25 gr. möndlur, ein bitur
mandla, 100 gr. sykur.
Skorpan er skorin af brauðinu, og það er bleytt
í mjólkinni, smjörlikið er brætt, brauðið kreist
upp úr mjólkinni, og það hvort tveggja bakað
saman og þynnt með afganginum af mjólkinni.
Síðan er deigið kælt, hrært saman við eggjarauð-
umar, eina í einu. Hvíturnar eru barðar í stinna
froðu og hrærðar í deigið. Eplin eru skræld, skorin
í smástykki og soðin með sykrinum og ofurlitlu
vatni, lögð í vel smurt gratin-form, deigið þar
ofan á. Búðingurinn er síðan stráður með steytt-
um möndlum og bakaður í %—1 kl.st.
Tízkumyndir.
011um kjólum fylgja nú jakkar. Hér er einn úr
svörtu og hvítu silkiefni. Jakkinn er með
kraga og er hnepptur að framan. Kjóllinn er
ákaflega einfaldur með svörtu belti.
Borðið á þessari mynd er einnig hurð
fyrir skáp, sem gott er að geyma
smjör, brauð o. s. frv. í. Þegar skáp-
urinn er svo opnaður er 'ákaflega þægi-
legt að geta smurt brauð á hurðinni.
Húðin helzt mjúk og falleg, ef hún er
burstuð með mjúkum bursta úr volgu
sápulöðri tvisvar til þrisvar í viku.
Burstann á að hreyfa í hringi.
Húsráð.
Hagfeld eldhúsborð og skápar. Ætli nokkurri
konu finnist það skemmtilegt að húka á hnján-
um fyrir framan neðstu hillurnar í skápunum til
þess að draga fram það, sem nota þarf? Væri
ekki hægara, allra hluta vegna, að hafa fætur
undir eldhúsborðum og skápum ?
Það er einnig óþægilegt að standa fyrir framan
,,vask“ með skáp undir, þar er tæplega rúm fyrir
fætuma, og tærnar á skónum slíta málningunni
af skápnum.
Til þess að hreinsa hárbursta má nota um V2
líter af heitu vatni, og uppleyst i því 1 teskeið
af borax og 1 matskeið af sóda. En gæta verður
þess, að bakið á burstanum vökni ekki i heita
vatninu.
Músum er illa við terpentíulykt. Bleytið tusku
í terpentíu og stingið inn í músarholurnar. Það
fælir þær oft burt úr húsinu.
Það er betra að smyrja kökuformið með tólg
eða svínafeiti en smjöri og smjörlíki, því að þá
festist kakan síður við formið.
Slæmt drykkjarvatn verður betra, ef það er
soðið og síðan siað i gegnum kramarhús úr þerri-
pappír.
1 vor verða klæðskerasaumaðir jakkar við
einlita kjóla mikið í tízku. Þeir eru mis-
síðir, en samt virðast þeir, sem ná niður
fyrir mjaðmir, ætla að verða vinsælastir.
Þessi er með belti og stórum vösum. Kjóll-
inn er með síðu, felltu pilsi.